Fréttablaðið - 09.12.2021, Síða 58
Því má þó halda til
haga að myndin virkar
á köflum full tilgerðar-
leg.
Við segjum ekki frá því
sem við erum að plana
og mikil spenna bygg-
ist upp fyrir deginum.
Guðmundur
Felixson
KVIKMYNDIR
The House of Gucci
Leikstjórn: Ridley Scott
Aðalhlutverk: Lady Gaga, Adam
Driver, Al Pacino, Jeremy Irons og
Jared Leto
Oddur Ævar Gunnarsson
Verandi landkrabbi í veröld heims
tískunnar vissi ég ekkert við hverju
ég átti að búast þegar ég settist niður
til þess að horfa á House of Gucci,
sem fjallar um ættarveldið sem hið
fræga tískuhús er kennt við.
Vanþekking mín á straumum
og tískustefnum kom hins vegar
alls ekki að sök, enda dugir sögu
þráður myndarinnar mestmegnis
til að halda áhuga áhorfenda. Þar
fyrir utan er myndin hlaðin stór
stjörnum og þungavigtarleikarar í
f lestum hlutverkum.
Lady Gaga tekur hér sinn besta
sprett hingað til og er öflugust allra
leikara í myndinni, sem hin metn
aðargjarna Patrizia Reggiano sem
giftist inn í Guccifjölskylduna.
Adam Driver skilar sínu sem Maur
izio Gucci en virkar á köflum eins
og honum leiðist í hlutverkinu og er
óttalega líkur sjálfum sér eitthvað.
Al Pacino aftur á móti fer á kostum
í hlutverki auðjöfursins Aldo Gucci
og skemmtir sér greinilega konung
lega og Jeremy Irons klikkar ekki
frekar en fyrri daginn.
Gersamlega óþekkjanlegur Jared
Leto þarf svo eiginlega sérkafla fyrir
frammistöðu sína sem misheppn
aði aukvisinn Paolo Gucci, sem lét
mig kastast á milli þess að dást að
honum fyrir magnaðan leik og að
láta hann fara í taugarnar á mér
vegna stórkostlegs ofleiks.
Handrit myndarinnar stendur að
mestu leyti fyrir sínu, en myndin er
líklega aðeins of löng og á tímabili í
síðari hluta hennar byrjaði maður
að hugsa „jæææææææja!“ með
sjálfum sér.
Allt er þetta þó síðan hnýtt
smekklega saman, að hætti tísku
hússins, þannig að engin hætta er á
að bíógestir verði fyrir vonbrigðum.
Þvert á móti vekur myndin slíkan
áhuga að f lestir munu einmitt
demba sér á Wikipedia til þess að
lesa um Guccifjölskylduna og þá
hefur Ridley Scott líklega náð tak
marki sínu.
Því má þó halda til haga að mynd
in virkar á köflum full tilgerðarleg
og rokkar einhvern veginn stundum
á milli þess að taka sig gríðarlega
alvarlega á milli þess sem hún virkar
lygilega léttvæg.
Kannski er það bara Jared Leto
með ýktan SuperMario hreim í
fitubúningi með gerviskalla. En
þarna er í það minnsta eitthvert
ójafnvægi sem er erfitt að setja
fingur á.
NIÐURSTAÐA: Áhugaverð mynd
en undarlega tilgerðarleg á köflum
þar sem stórstirni fara ýmist á
kostum eða virðast láta sér leiðast
í söguþræði sem stundum missir
dampinn.
Gucci-mynd um Gucci
Verðlaunaþáttaröðin Amer-
ican Crime Story fór af stað með
miklum glæsibrag 2016 þegar
mál O.J. Simpson var tekið fyrir,
með þá Cuba Gooding Jr. og John
Travolta í broddi fylkingar í hlut-
verkum O.J. og lagaklækjarefsins
Robert Shapiro.
Önnur sería tók fyrir morðið á
tískumógúlnum Gianni Versace
og nú er komið að því að kafa ofan
í skandalinn í kringum Monicu
Lewinsky og Bill Clinton. Sjón-
varp Símans sýnir Impeachment:
American Crime Story, sem er
virkilega vel leikið sjónvarpsefni
sem óhætt er að mæla með þar
sem Clive Owen, Sarah Paulson og
Beanie Feldsten fara á kostum. n
Sjónvarp
Impeachment: American
Crime Story
Lady Gaga er fremst meðal jafningja
í House of Gucci en Jared Leto er
óþekkjanlegur og yfirdrifinn á
vinstri kantinum.
n Allra best
Bókin
Hættuleg sambönd eftir
Pierre Choderlos de Laclos
Hin mikla
skáldsaga
Pierre Cho-
derlos de Lac-
los, Hættuleg
sambönd,
er komin út
í íslenskri
þýðingu Frið-
riks Rafns-
sonar. Þetta
er frægasta
bréfaskáldsaga allra tíma og þar
kynnist lesandinn lævíslegum
og lúalegum áformum Merteuil
markgreifaynju og Valmont vísi-
greifa, sem eiga það sameiginlegt
að hafa einstaka ánægju af að
leika sér að fólki og ákveða örlög
þess. Þau skrifast á um áætlanir
sínar en ekki fer allt eins og þau
reiknuðu með. Hér er á ferð
algjörlega mögnuð skáldsaga sem
fjarska auðvelt er að gleyma sér í.
Meistaraverk fyrir lesendur sem
gera kröfur um gæði. Höfundur
bregst hvergi. n
Guðmundur Felixson ólst upp
við skemmtilega og öðru
vísi jólahefð, því feður hans
tóku upp á því fyrir tuttugu
árum eða svo að láta hvern
fjölskyldumeðlim skreyta sitt
jólatré. Trén eru eins konar
listaverk og hefðin hefur
þróast þannig að vinir og
vandamenn fá að giska á hver
eigi hvaða tré.
svavamarin@frettabladid.is
„Þetta byrjaði þegar við systkin
in vorum lítil, eftir að f jögur
lítil jólatré höfðu verið keypt á
jólatrjáa markaði, og pabbar okkar
tóku upp á því að hver fjölskyldu
meðlimur myndi skreyta sitt eigið
jólatré,“ segir Guðmundur Felixson,
leikari og meðlimur spunahópsins
Improv Ísland, þegar hann útskýrir
skemmtilega öðruvísi jólahefð sem
þróast hefur hjá fjölskyldu hans
undanfarna tvo áratugi.
„Við skreyttum öll okkar tré en
hefðin breyttist f ljótlega út í smá
vitleysu þar sem trén voru orðin
einhvers konar listaverk frekar en
raunveruleg jólatré. Útfærslurnar
hafa verið eins mismunandi og
þær eru margar og ég man að eitt
sinn klæddi ég systur mína í græna
peysu og setti á hana jólaseríu. Hún
var þá mitt jólatré.“
Listrænu jólatrjánum hefur í
gegnum árin fjölgað í takti við
stækkun f jölskyldunnar og nú
þegar systkinin bæði eru komin
með maka og börn eru trén sem
gerð eru ár hvert orðin átta.
Gaman að sjá tré hinna
Aðspurður segir Guðmundur mikla
leynd hvíla yfir hönnun trjánna,
sérlega innan fjölskyldunnar, áður
en þau eru afhjúpuð. „Við segjum
ekki frá því sem við erum að plana
og mikil spenna byggist upp fyrir
deginum,“ segir Guðmundur.
Fjölskyldan kemur saman heima
hjá feðrum Guðmundar á Túns
bergi, einn dag í desember, þar
sem hver mætir með sinn efnivið og
útfærir sitt tré í sínu horni hússins.
Guðmundur bætir við að hefðin
feli í sér að gestkomandi í Túnsbergi
fá að giska á hver hafi gert hvaða tré
en ljóstrað er upp um þau leyndar
mál á jóladag á Facebooksíðu Felix
Bergssonar, föður Guðmundar.
„Þá kemur í ljós hver bjó til hvaða
tré en það hefur engum tekist að
giska á rétt, hvað þá nú þegar trén
eru orðin átta,“ segir Guðmundur í
jólastuði. n
Breytti systur sinni í listrænt jólatré
Jólatré í sönnum covid anda.
Pappír sem aftur verður að tré.
Jólatré búið til úr lego kubbum . .
Jólapökkum
staflað upp í
jólatré í stað
þess að setja þá
undir.
MYNDIR/
AÐSENDAR.
Skáldlegt jólatré.
Taflmenn í jóla-
skapi.
38 Lífið 9. desember 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐLÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 9. desember 2021 FIMMTUDAGUR