Fréttablaðið - 09.12.2021, Qupperneq 60
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Gústaf Bjarnason gustaf@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is,
Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson
jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056:
Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Lok, lok og læs
Yrsa Sigurðardóttir1 Sigurverkið
Arnaldur Indriðason
Orri óstöðvandi
Bjarni Fritzson
Rætur
Ólafur Ragnar Grímsson
Þín eigin ráðgáta
Ævar Þór Benediktsson
Dagbók Kidda klaufa 15
Jeff Kinney
Læknirinn
í Englaverksmiðjunni
Ásdís Halla Bragadóttir
Bannað að eyðileggja
Gunnar Helgason
Sextíu kíló
af kjaftshöggum
Hallgrímur Helgason
Úti
Ragnar Jónasson
2
3
5
7
9
8
10
6
4
Metsölulisti
Vikuna 1. - 7. desember
Hafsteinn Einar
Birgisson
stjórnmálafræð-
ingur
„Ég er sokk-
inn í hyldýpi
skandinavískra
glæpaþátta í kóf-
inu. Sú sem er í
gangi núna heitir
Snöänglar,“ segir Hafsteinn.
„Þáttaröðin er sænsk og hún
fjallar um rannsókn á máli þar
sem ungabarn hverfur af heimili
sínu rétt fyrir jólin. Alveg týpískur
norrænn drungi sem svífur þar
yfir vötnum,“ útskýrir fræði-
maðurinn.
„Svo elska ég Succession en
er samt ekki byrjaður á þriðju
seríunni. Ég fer að byrja á því,
enda skíthræddur við spilla sem
gætu leynst á netinu.“
Hafsteinn segist síðast hafa
farið í bíó á Dune. „Ég var eigin-
lega bara gjörsamlega dolfallinn.
Kvikmyndagerðin var til fyrir-
myndar en söguþráðurinn vissu-
lega hægur, samt ekkert verri
fyrir það.“ n
Skíthræddur við spilla og snjóengla
n Á skjánum
Alexandra Ýr van Erven
vinnur við framkvæmd
hraðprófa vegna Covid-19
hjá Heilsugæslu höfuðborgar-
svæðisins, samhliða starfi
sínu sem ritari Samfylking-
arinnar. Hún segir starfið
súrrealískt en hafa komið sér
skemmtilega á óvart.
toti@frettabladid.is
„Þetta er algjör stemning en smá
súrrealískt. Covid er auðvitað sam-
eiginlegt verkefni samfélagsins og
mér fannst nú bara vera kominn
tími til að leggja mitt af mörkum
í baráttunni,“ segir stjórnmála-
fræðineminn og ritari Samfylking-
arinnar, Alexandra Ýr van Erven.
Alexandra starfar einnig við að reka
hina alræmdu sýnatökupinna upp í
nasirnar á fólki.
Hún segir samlíkingu farald-
ursins við stríðsástand hafa verið
henni hugleikna. „Þá er mikilvægt
að allir leggi hönd á plóg og leggi sitt
af mörkum og mér finnst það vel við
hæfi.
„Ég heyrði að þau vantaði sárlega
starfsfólk á Suðurlandsbraut, hafði
loksins tíma til að bæta við mig
smá aukavinnu og finnst frábært
að geta hjálpað til í baráttunni við
þessa veiru,“ segir Alexandra. Hún
segist geta mælt með starfinu og
er þakklát frábærri þjálfun heil-
brigðisstarfsmanna.
Lítil dramatík
Spurð hvort fólk sé almennt stressað
fyrir skimun segir Alexandra lang-
f lesta vera farna að þekkja þetta
ágætlega. „En, jú jú, það eru eðlilega
margir sem eru ekkert spenntir að fá
þennan pinna upp í sig sem er mjög
eðlilegt. En heilt yfir er furðulítil
dramatík í þessu.“
Hún segist sjálf hafa vanist því
hægt og rólega að stinga pinna
upp í nefið á fólki. „Það kom mér
skemmtilega á óvart hvað fólk hefur
misjöfn nef svo það er ekki alltaf
sama handbragðið sem virkar hjá
öllum. Ég prísa mig alltaf sæla að fá
stundum að heyra frá fólki að ég sé
einstaklega mjúkhent við þetta, svo
ég hlýt að vera að gera eitthvað rétt,“
segir Alexandra hlæjandi.
Börnin erfiðust
Alexandra segir erfiðast að skima
börn. „Af því að maður vill auðvitað
alls ekki meiða litlu greyin. Þau eru
mörg hver samt orðin vön þessu
og það hefur komið mér mikið á
óvart hversu mörg börn mæta keik
í skimun og virðast alveg óhrædd.
Þau fá svo aðeins mjórri og styttri
pinna sem gerir þetta bærilegra,
sem betur fer.“
Hún segir aðspurð það fljótt hafa
vanist að vera í hlífðargalla allan
daginn. „Ég bjóst við því að þetta
yrði f ljótt þreytandi en trikkið er
greinilega að vera ekki að taka grím-
una af sér að óþörfu og setja hana
svo upp aftur. Og svo lengi sem að
hún er hrein þá tekur maður ekki
eftir henni. Andlitsskildirnir eru
að vísu aðeins óþægilegri en maður
lætur sig hafa það. Ég hef bara verið í
hraðprófunum svo það er lukkulega
ekki alveg sami búnaður og í PCR-
prófunum.“ n
Pinninn fer ýmsar leiðir
upp í mismunandi nef
Alexandra er
ritari Sam-
fylkingarinnar
en lætur ekki
sitt eftir liggja í
veirustríðinu og
er nýbyrjuð að
starfa við sýna-
tökur.
MYND/AÐSEND
Hlífðarbúningar og grímur allan
daginn venjast furðuvel að sögn
Alexöndru. MYND/AÐSEND
40 Lífið 9. desember 2021 FIMMTUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ