Fréttablaðið - 09.12.2021, Page 64
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is
Kolbeins
Marteinssonar
n Bakþankar
Á þessari baksíðu hef ég áður ritað
um mikilvægi þess að við hrósum
meira því sem vel er gert. Ég hef
bent á að sökum þess hversu lítið
við hrósum hvert öðru hér á landi
þá er íslenskt hrós miklu verð-
mætara en víða annars staðar, þar
sem innihaldslaus hrós eru hluti af
venjum og daglegum samskiptum.
Ástæða þess að ég fór að hugsa um
hrós er spurning dóttur minnar um
besta hrósið sem ég hefði fengið
um ævina.
Ég hef fengið nokkur hrós en
það er eitt sem stendur upp úr
og ástæða þess að ég man það er
tímasetningin og hver það var sem
hrósaði.
Eftir að hafa verið hluti af síðustu
kynslóðum íslenskra borgarbarna
sem send voru í sveit man ég til-
finninguna sem fylgdi því að vera
hrósað fyrir dugnað eftir brös uga
byrjun í sveitinni, mínu fyrsta
alvöru starfi. Þá áttaði ég mig á því
að á vinnumarkaði ertu fyrst og
síðast dæmdur af því hvernig þú
vinnur verkin og hvert viðhorf þitt
er til vinnu. Þegar Óli bóndi sagði
að ég væri ekki sá aumingi sem
hann hélt í fyrstu og sagði mig dug-
legan, man ég enn tilfinninguna
sem hríslaðist niður hrygginn. Um
leið rétti ég úr bakinu og kinkaði
ákveðið til hans kolli um að ég
hefði meðtekið skilaboðin.
Síðan hafa bæst við nokkur
svona atvik til viðbótar, þegar
samtímamenn mínir og konur
hafa sagt eitthvað fallegt við mig
einmitt þegar ég þurfti mest á því
að halda. Það að fólk hafi haft trú á
manni jafnvel þegar framtíðin var
kannski ekki teppalögð á beinu
brautinni, skipti máli.
Þetta eru hrósin sem breyttu
forritinu í hausnum á mér og sem
ég man enn þann dag í dag. Af því
rétta fólkið sagði þau á réttu augna-
blikunum. Vertu þannig fólk. n
Af hrósi
Hjá okkur fæst íslensk sígræn
Stafafura
frá Skógræktinni
Trén eru ræktuð án eiturefna,
enginn áburður er notaður við
ræktun fyrir utan 10-15g á
hvert tré við gróðursetningu.
Flutningsleiðin er stutt og er
stafafuran því mun umhverfis-
vænni kostur en innflutt tré.
Að minnsta kosti 10 tré eru
ræktuð í stað hvers trés sem
fellt er sem jólatré.
Stafafura er vinsælasta íslenska
jólatréð og er einstaklega
barrheldin og ilmandi.
Stafafura
100-150 cm
Stafafura
151-200 cm
Þú finnur
Jólagjafa-
handbókina
á byko.is
4.650 kr.
vnr. 41140101
8.950 kr.
vnr. 41140104
B
ir
t m
eð
fy
ri
rv
ar
a
um
p
re
nt
vi
ll
ur
o
g/
eð
a
m
yn
da
br
en
gl
.
Allt fyrir jólin á einum stað
Jólablað Skoðaðu
blaðið á
netto.is
NÁTTÚRUVÆN EINANGRUN
ÚR ÍSLENSKRI ULL
BYLTING Á
HEIMSVÍSU
icewear.is
ULLARJAKKAR