Fréttablaðið - 11.12.2021, Blaðsíða 51
Umsjón með starfinu hafa
Jensína K. Böðvarsdóttir
(jensina@vinnvinn.is) og Hildur J.
Ragnarsdóttir (hildur@vinnvinn.is).
Creditinfo er ört vaxandi, alþjóðlegt fyrirtæki á
sviði miðlunar fjárhags- og viðskiptaupplýsinga.
Tilgangur Creditinfo er að auka virði upplýsinga
í þágu einstaklinga, fyrirtækja og opinberra
aðila og stuðla þannig að réttri ákvarðanatöku
og trausti í viðskiptum. Á Íslandi vinnum við
í samhentu teymi í verkefnamiðaðari vinnu-
aðstöðu. Starfsemin er ISO 27001 vottuð, allar
okkar greiningar eru unnar í vöruhúsi gagna og
markmið okkar er bættur árangur á hverjum
degi. Hjá félaginu starfa um 40 manns hérlendis
og rúmlega 400 manns úti um allan heim.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur um
hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Ásamt því að senda inn dæmi af fyrri
verkefnum.
Viðmóts- og vefhönnuður
(UX/UI hönnuður)
Creditinfo leitar að öflugum viðmóts- og vefhönnuði til að slást í hópinn og vinna að
metnaðarfullum verkefnum.
Helstu verkefni:
• Ábyrgð á stafrænni hönnun félagsins og gerð prótótýpa.
• Þátttaka í vöruþróun og hugmyndavinnu.
• Ábyrgð á vefsíðu félagsins.
• Önnur verkefni tengd markaðs-og kynningarmálum.
Hæfniskröfur:
• Reynsla af viðmótshönnun, bæði UX og UI hönnun.
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi er kostur, eins og á sviði viðmótshönnunar,
upplýsingafræði eða grafískri hönnun.
• Góður skilningur á notendaupplifun og flæði.
• Færni til að setja fram upplýsingar á skýran og fallegan hátt.
• Góð almenn tölvukunnátta.
• Þekking og reynsla af notkun Figma er kostur.
Umsóknarfrestur er til og með 20. desember.
Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is.
Umsjón með starfinu hafa Auður Bjarna-
dóttir (audur@vinnvinn.is) og Jensína K.
Böðvarsdóttir (jensina@vinnvinn.is).
Píeta veitir fyrstu hjálp, aðgengilega þjónustu,
stuðning og meðferð fyrir þá sem eru í
sjálfsvígshættu og brú í úrræði fyrir aðra.
Þjónustan er með öllu gjaldfrjáls og stendur
til boða öllum þeim sem hafa náð átján ára
aldri. Píeta samtökin vinna einnig að því að efla
þekkingu og skilning á sálrænum sársauka
og sjálfsvígum. Samtökin vilja vera leiðandi í
forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum á Íslandi.
Píeta samtökin leita að öflugum einstaklingi í starf framkvæmdastjóra sem hefur áhuga,
getu og drifkraft til að leiða daglegan rekstur félagsins. Í boði er fjölbreytt og krefjandi
starf þar sem reynir á frumkvæði, lausnamiðað viðhorf og ríka samskiptahæfni.
Framkvæmdastjóri heyrir undir stjórn Píeta samtakanna og starfar náið með henni.
Helstu verkefni:
• Daglegur rekstur og stjórnun.
• Mannauðsmál.
• Stefnumótun í samstarfi við stjórn og innleiðing stefnu.
• Yfirumsjón með kynningarstarfi og upplýsingagjöf.
• Samskipti við samstarfsaðila.
• Skipulagning og vinna að fjáröflun.
• Undirbúningur stjórnarfunda.
• Önnur verkefni í samráði við stjórn.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi.
• Reynsla af rekstri og stjórnun þ.m.t. verkefnastjórnun.
• Leiðtogahæfni og framúrskarandi færni í samskiptum.
• Frumkvæði, metnaður og árangursdrift.
• Reynsla af framsetningu og miðlun upplýsinga.
• Hæfni í tjáningu í ræðu og riti á íslensku.
• Reynsla af fjáröflun og geta til að virkja aðra í fjáröflunarverkefnum er kostur.
• Reynsla af störfum fyrir félagasamtök er kostur.
Umsóknarfrestur er til og með 30. desember næstkomandi.
Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is.
Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarlegt
kynningarbréf og starfsferilsskrá þar sem
gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og
rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Framkvæmdastjóri
ATVINNUBLAÐIÐ 3LAUGARDAGUR 11. desember 2021