Fréttablaðið - 11.12.2021, Blaðsíða 74
Fólk ársins er klárlega
fólkið sem hefur nennt
að standa í röðum í
skítakulda til að láta
troða eyrnapinna upp
í nefið á sér og mæta á
viðburði.
Máni
Við erum
öll íhald.
Við erum
náttúrlega
bara mis-
munandi
„Shades of
Grey“ af
Fram-
sóknar-
flokknum,
það er bara
svoleiðis.
Fanney
Fanney Birna Jónsdóttir og
Máni Pétursson gera upp
árið sem senn líður í aldanna
skaut. Bólusetningar, MeToo,
Bubbi Morthens, Instagram,
talningarklúður og plast-
pokar er meðal þess sem bar
á góma.
Enda þótt þau Máni Péturs-
son og Fanney Birna Jóns-
dóttir hafi sagt skilið við
umræðuþættina Harma-
geddon og Silfrið í haust
gefa þau engan afslátt af skoðunum
sínum á samfélagsmálum.
Hvað stendur upp úr þegar litið er
yfir árið 2021?
Fanney: „Rétt eins og síðasta ár
hafði Covid mikil áhrif. En það er
eins og það sem gerðist, sérstak-
lega fyrripart árs, hafi bara gerst
í annarri vídd, á annarri öld. Ég
man að Kári var í einhverju debatti
við sænska sóttvarnalækninn um
hvernig okkur myndi ganga að
bólusetja þjóðina, hvort það yrði
búið fyrir sumarið. Svo eru bara allt
í einu flestir þríbólusettir.“
Máni: „Instagram-mómentin
sem verða tekin fyrir í Skaupinu
eru af bólusetningum og eldgosinu.
Það var eins og enginn hefði farið í
bólusetningu án þess að hafa deilt
því með okkur á netinu.“
Sóttvarnaaðgerðir ...
Máni: „Íslendingar elska yfirvaldið
og horfa því á þá sem eru á móti
sóttvarnaaðgerðum sem skrítið
fólk, þá sem eru að berjast fyrir
frelsi. Hún sást í kosningunum,
þessi foringjahollusta.“
Fanney: „Við erum öll íhald. Við
erum náttúrlega bara mismunandi
Shades of Grey af Framsóknar-
flokknum, það er bara svoleiðis.“
Máni: „Íslendingar eru allir Fram-
sóknarmenn, ef það er eitthvað sem
þessar kosningar sýndu okkur, þá er
það það.“
MeToo ...
Máni: „MeToo-byltingin sem kom
upp núna var að einhverju leyti
heiftúðugri en fyrri – en það voru
líka alveg ástæður fyrir því. Það hafði
ekki mikið breyst frá síðustu MeToo-
byltingu og fólk er einhvern veginn
búið að fá algjörlega fokking nóg.“
Fanney: „Í fyrri byltingunni voru
það hópar kvenna sem stigu fram
nafnlaust. Þær voru að blamm era
heilu stéttirnar: „Sjáið hvað við
þurfum að díla við!“ Í fáum tilfellum
var einhver nafngreindur. En núna
eru þetta konur, að mestu leyti
ungar konur, að stíga fram og nafn-
greina ákveðna karlmenn sem hafa
brotið á þeim. Eðli málsins sam-
kvæmt verður það heiftúðugra – en
kröftugra að sama skapi.“
Máni: „Þetta verður það. Í fyrstu
MeToo-byltingunni voru allir að
taka þátt með hasstöggin sín og allt
að frétta en síðan var ekkert gert.
Þess vegna stöndum við frammi
fyrir þessu öllu núna. Og þetta
verður ekkert skárra fyrr en ein-
hver stjórnmálamaður ákveður að
snúa þessari þróun við. Koma því
þannig fyrir að hægt sé að ákæra í
þessum málum, fá sekt þar sem við
á og sýknu þar sem við á.“
Fanney: „Mér finnst rosa leiðin-
legt þegar þessu málefni er stillt
upp sem einhverjum öfgum. Og guð
blessi stelpurnar í Öfgum og alla
þá sem hafa talað með öfgafullum
hætti í gegnum tíðina. Við værum
ekki hér að ræða þetta ef ekki væri
fyrir þær. En þú þarft ekkert að vera
rosalega öfgafullur til að vera á
þeirri skoðun að það séu brotalamir
í þessum málaflokki og það hrein-
lega verði að gera eitthvað.“
Máni: „Allt þetta dæmi mun á
endanum búa til betra samfélag. En
stjórnmálamenn á Íslandi virðast
uppteknir af einhverju allt öðru.
Þeir eru til í að hoppa á alla vagna en
gera svo ekki rassgat. Þetta er algjör-
lega verklaust fólk. Það er hægt að
telja á fingrum annarrar handar það
fólk á þingi sem gæti þegið sömu
laun úti á hinum almenna vinnu-
Töpuð hjónabönd,
bólusetningar í
beinni og byltingar
Þau Máni og Fanney Birna spjölluðu við blaðamann yfir kaffibolla einn desembermorgun. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Björk
Eiðsdóttir
bjork
@frettabladid.is
markaði. Enda er þetta fólk búið
að vera duglegt við að skammta sér
hærri laun og það eru bara fimmtán
prósent þingmanna á venjulegum
launum.
Gerandinn er alltaf sökudólgur-
inn en má ekki alveg segja að þetta
sé líka samfélaginu, stjórnmála-
mönnum og lögreglunni að kenna?
Reyndar er þetta ekki lögreglunni
að kenna nema að því leyti að hún
er fjársvelt. Það mætti til dæmis
nota þessa 2,8 milljarða sem þing-
flokkarnir hafa skammtað sér í það
að styrkja lögregluna og rannsóknir
á svona málum.“
Fanney: „Það eru margir óbeinir
og beinir gerendur í þessum málum.
Við öll sem höfum kóað með alls
konar hegðun í gegnum tíðina, svo
þeir sem viljandi eru að brjóta á
konum eða styðja slíka menn.“
Máni: „Þetta er líka vegna þess að
samfélagið er svo lítið.“
Fanney: „Já, já, en við getum ekki
skýlt okkur endalaust á bak við
það.“
Máni: „Nei, nei, við getum ekki
gert það. Mér finnst þó skrítið þegar
verið er að kalla fólk inn í umræð-
una. Það er eins og við eigum öll að
vera þátttakendur í allri umræðu og
pósta því á samfélagsmiðlum. Við
megum alveg hafa skoðanir án þess
að opinbera þær.“
Fanney: „Við Máni erum partur af
þeim þjóðflokki sem hugsar allt of
lítið áður en hann talar. En við biðj-
umst þá bara vægðar ef við segjum
eitthvað vitlaust. Ég held þó að það
sé betra að við tölum og segjum það
sem okkur finnst og rekum okkur
þá bara á og bökkum, frekar en að
hætta því.“
Máni: „Mér þykir leiðinlegt að
segja það en ég held að það þurfi
10–15 MeToo-byltingar í viðbót svo
fólk nái kjarna málsins. Kannski
vegna þess að fólk er meira til í að
taka þátt í umræðunni en að gera
eitthvað og á ég þá við stjórnendur
í þessu landi.“
Fanney: „Í femínískri umræðu
erum við líka að tala um vanda-
mál feðraveldisins aftur til upp-
hafs mannkyns og ég held að alveg
sama hvað ríkisstjórnin gerir þá
þurf i viðhorfsbreytingin, ekki
bara hér heldur alls staðar, að vera
svo gríðarleg að þetta er eins og
olíutankskip sem snúa þarf við
í Panamaskurðinum. Það tekur
bara tíma og það er auðveldara að
vera þolinmóðari þegar maður er
orðinn snemmmiðaldra eins og
ég. En ég tek hatt minn ofan fyrir
þeim sem ætla ekki að bíða. Von-
andi hreyfa þær skipið hraðar.“
Útilokunarmenning ...
Fanney: „Mér finnst líklegt að í
þessum málum þar sem útilokun-
armenning í tengslum við MeToo
hefur snert við einhverjum, þá hafi
þetta ekki verið þannig undirmáls-
fólk að það sé líklegt til að verða
undir mjög lengi. Ég held að oftast
eigi fólk afturkvæmt í þessu sam-
félagi.“
Máni: „Við verðum samt að passa
okkur í allri orðræðu. Það er dýrt að
taka mannorð einhvers ef hann á
það ekki skilið. Við eigum að hugsa
það áður en við setjum eitthvað út
á netið. Fólk sem slúðrar um annað
fólk er upp til hópa drullusokkar.
Maður á ekki að tala nema út frá
staðreyndum. Ef þessi umræða á
öll að fara fram á samfélagsmiðlum
erum við aldrei að fara að gera þetta
að betra samfélagi. Samfélagsmiðlar
ganga út á átakalínur. Viðskipta-
módel þeirra snýst um það.“
Fanney: „Á sama tíma og ég er
sammála þá held ég að þetta sé svo
mikið valdeflingartól fyrir þá sem
hafa verið beittir ofbeldi af kerfinu
eða persónulega af einhverjum
öðrum, til að ná vopnum sínum.
Hvíslhringur kvenna hefur virkað
sem forvörn og haldið lífi í konum:
„Passaðu þig á hinum og passaðu þig
á þessum.““
Máni: „Þetta er ekki beint slúður,
því þarna er verið að byggja á
reynslu.“
Fanney: „Það er ekki alltaf þín
eigin reynsla, oft ertu að byggja á
reynslu einhverrar annarrar sem
getur kannski ekki talað sjálf. Þetta
er rosalega grátt svæði. En það þarf
að passa að umræðan verði ekki
bara þarna og festist ekki í ein-
hverjum skotgröfum.“
Máni: „Við eigum ekki að vera
í einhverri óvild. Þetta hlýtur að
vera eitthvað sem samfélagið þarf
að laga. Ég skil ekki að einhver sé
eitthvað á móti því að hér ríki rétt-
látara samfélag.“
Eldgos í Geldingadölum ...
Genguð þið upp að því?
Máni: „Nei.“
Fanney: „Ekki ég heldur. Ætli við
séum ekki bara tvö eftir?“
Máni: „Ég tók ekki heldur mynd
af mér í bólusetningu.“
Fanney: „Ég tók mynd af mér
í fyrstu bólusetningu. Ég var svo
mass ívt peppuð.“
Máni: „Þetta er eins og flugfreyj-
urnar sem voru svo ánægðar með
að vera flugfreyjur að þær létu allar
taka mynd af sér uppi í hreyflinum.
Kannski náðum við svo góðri bólu-
setningu hér á landi því allir vildu
ná að birta bólusetningarmynd af
sér?“
Fanney: „Ég var bara að taka
mynd því ég var ógeðslega glöð og
hélt að þetta væri þar með búið.“
Máni: „Það skal enginn ljúga því
að það voru ákveðin vonbrigði að
bóluefnin skyldu ekki hafa virkað
og við þurfum bara að bíða í þessu
þrjú, fjögur ár á meðan heimsfar-
aldur gengur yfir.“
Samkomutakmarkanir ...
Máni: „Þegar rafmagnið fór
48 Helgin 11. desember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ