Fréttablaðið - 11.12.2021, Blaðsíða 14
Hús þarf
að vera
lifandi og
maður sér
það að eftir
að hótelið
lokaði, þá
er eins og
hverfið
þarna í
kring sé
hálfdautt.
Pétur H.
Ármannsson
Mikil óvissa ríkir um framtíð
Hótel Sögu. Stór hluti húss-
ins hefur staðið auður síðan
hótelrekstur lagðist af í fyrra
vegna áhrifa faraldursins.
Pétur H. Ármannsson segir
bygginguna stórmerkilega og
vill fara varlega í breytingar.
REYKJAVÍK Bændahöllin, eða Hótel
Saga eins og hún er gjarnan nefnd
í daglegu tali, var opnuð árið 1962
og er án efa eitt þekktasta hótelið í
sögu íslenskrar ferðaþjónustu. Arki-
tektinn Pétur H. Ármannsson, sem
vinnur nú ásamt fleirum að bók um
arkitekt hótelsins, Halldór H. Jóns-
son, segir bygginguna vera hluta af
þjóðarsögu 20. aldar.
„Menn höfðu misjafnar skoðanir á
útliti hússins í bakgrunni aðalbygg-
ingar Háskóla Íslands og stærð þess
og hæð var umdeild á sínum tíma. En
þessi bygging varð snemma hluti af
þjóðarsögunni. Opnun Hótel Sögu
markaði þáttaskil í ferðaþjónustu á
Íslandi á sínum tíma. Þetta var fyrsta
nútímalega hótelið í alþjóðlegum
gæðaflokki sem var opnað hér landi,
þremur áratugum á eftir Hótel Borg,“
segir hann.
Hótel Saga var um árabil mið-
stöð funda- og ráðstefnuhalds,
skemmtanalífs og matargerðar-
listar á Íslandi, sem sést glöggt
á því hvaða sess hótelið skipar í
þjóðarvitundinni. Hótel Saga og
Grillið eiga sér fjölmargar birtingar-
myndir í íslenskri menningarsögu
og má þar einna helst nefna fræga
senu í kvikmynd Friðriks Þórs Frið-
rikssonar Englum alheimsins, eftir
samnefndri skáldsögu Einars Más
Guðmundssonar. Pétur segir hót-
elið hafa ótvírætt gildi í hönnunar-
sögunni.
„Arkitekt Bændahallarinnar,
Halldór H. Jónsson, hannaði ekki
bara bygginguna sjálfa heldur líka
allar innréttingar hótelsins, valdi
efni og áklæði, hannaði húsgögn og
gólfteppi, lampa og f leira. Þannig
hafa upphaflegar innréttingar Hótel
Sögu ótvírætt gildi í hönnunarsög-
unni. Margar kynslóðir Íslendinga
eiga dýrmætar minningar tengdar
þessu húsi. Þar voru haldnar ráð-
stefnur og mikilvægir fundir, fín-
ustu veislur bæjarins og landsfrægir
tónlistarmenn spiluðu undir dansi
í Súlnasalnum um árabil. Þetta
er húsið sem fólk heimsótti til að
halda upp á merk tímamót í lífi sínu.
Þannig að það er ekkert alveg sama
hvað um það verður.“
Margþætt starfsemi í húsinu
Pétur segir Bændahöllina hafa frá
upphafi verið hannaða sem fjölnota
hús og telur eðlilegast að þar yrði
áfram margþætt starfsemi eins og
var gert ráð fyrir frá upphafi, en auk
hótels og verslana voru skrifstofur
Bændasamtakanna og fleiri stofn-
ana og fyrirtækja í húsinu. Engin
föst starfsemi hefur verið í hótel-
hluta hússins frá 2020, en hluti þess
var leigður undir skólastofur fyrir
nemendur í Hagaskóla, sem þurftu
frá honum að hverfa vegna myglu.
„Ég verð að segja að eftir að hót-
elið lokaði fyrir ári síðan sakna ég
þess mikið. Það var nýbúið að opna
þarna skemmtilegan veitingastað,
Mími, sem var alveg frábær. Ég vona
að það verði áfram margþætt starf-
semi í húsinu, gisting og veitinga-
rekstur í bland við annað, óháð því
hvernig úr því spilast. Það er ágætt
að menn hafi það í huga að þetta
er stórmerk bygging og það þarf að
fara varlega út í breytingar á henni,“
segir Pétur.
Hús þarf að vera lifandi
Uppbygging hússins er engu að
síður mjög sveigjanleg og því auð-
velt að laga ákveðna hluta þess að
nýrri starfsemi. Að sögn Péturs er
húsið ekki friðlýst og væri því ekk-
ert til fyrirstöðu fyrir nýja eigendur
Hluti af þjóðarsögunni stendur nú auður
Pétur H. Ármannsson vinnur nú ásamt fleirum að bók um arkitekt Hótel Sögu, Halldór H. Jónsson. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Bændahöllin, eða Hótel Saga eins og byggingin er kölluð í daglegu tali, er eitt
helsta kennileiti Vesturbæjarins. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Leikmenn
Austur-Þýska-
lands æfa sig á
Melavelli fyrir
landsleik á móti
Íslandi 1961.
Hótel Saga
í byggingu í
baksýn.
MYND/LJÓSMYNDA-
SAFN REYKJAVÍKUR
Stór hluti Hótel Sögu hefur staðið meira og minna auður síðan hótelrekstur
lagðist af í fyrra vegna áhrifa heimsfaraldursins. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Þorvaldur S.
Helgason
tsh
@frettabladid.is
að gera róttækar breytingar á inn-
viðum þess.
„Það er kannski ekki aðalmálið
hver á húsið eða rekur það, heldur
bara hvaða hugmyndir menn eru
með og hvernig mönnum tekst að
nýta kosti hússins án þess að fórna
gæðum þess. Hús þarf að vera lif-
andi og maður sér það að eftir að
hótelið lokaði, þá er eins og hverfið
þarna í kring sé hálfdautt. Eftir að
hótelið lokaði kemur í ljós hvað
starfsemin í húsinu hafði mikið
gildi fyrir Háskólasvæðið og Mela-
hverfið,“ segir Pétur og bætir við að
mikil eftirsjá yrði að hótelinu ef því
yrði alveg lokað.
Hvað verður um Hótel Sögu?
Nokkur fyrirtæki og stofnanir eru
í dag með rekstur í Bændahöllinni,
þar með talið Bændasamtökin,
Pósturinn og Hið íslenska bók-
menntafélag. Sá hluti hússins sem
heyrði undir Hótel Sögu hefur þó
staðið meira og minna tómur frá
því rekstur hótelsins lagðist af í nóv-
ember 2020. Ýmis áform hafa verið
uppi um framtíð Bændahallarinnar
og Bændasamtökin hafa verið í við-
ræðum við nokkra aðila um mögu-
leg kaup á húsinu.
Í sumar var greint frá því að aðilar
tengdir Hótel Óðinsvéum væru í
viðræðum um kaup á húsinu til
áframhaldandi hótelreksturs. Sam-
kvæmt heimildum Fréttablaðsins
runnu þær áætlanir út í sandinn,
þegar í ljós kom að fara þyrfti út í
mjög kostnaðarsamar framkvæmd-
ir til að halda áfram hótelrekstri.
Háskóli Íslands hefur einnig lýst
yfir áhuga á því að kaupa Bænda-
höllina og koma þar upp stúd-
entagörðum eða f lytja starfsemi
menntasviðs háskólans þangað. Í
fjárlagafrumvarpi ársins 2022 er
lagt til að fjármála- og efnahags-
ráðuneytið fái heimild til að skoða
kaup á Hótel Sögu. Framtíð hótels-
ins er því enn óráðin, en ljóst þykir
að ef áætlanir háskólans ganga eftir
er áframhaldandi hótelrekstur í
Bændahöllinni nokkuð ólíklegur. n
Tímalína
Bændahallarinnar
1941
1956
1964
2020
1991
1948
1962
1985
2018
Búnaðarþing
ályktar um bygg-
ingu bændahúss í
Reykjavík.
Fyrsta skóflu-
stungan tekin að
Bændahöllinni.
Stjörnusalurinn, eða
Grillið, er opnað á
7. hæð hússins.
Hótel Saga lokar
eftir 58 ára starf-
semi.
Samningur gerður
við Búnaðarbank-
ann um að Hótel
Saga sjái um rekstur
Hótel Íslands.
Búnaðarfélagið fær
lóð og byggingar-
leyfi við Hagatorg.
Hótel Saga er
opnuð formlega.
Sjö hæða viðbygg-
ingu bætt við.
Hótelið opnað aftur
eftir framkvæmdir.
FRÉTTASKÝRING FRÉTTABLAÐIÐ 11. desember 2021 LAUGARDAGUR