Fréttablaðið - 11.12.2021, Page 14

Fréttablaðið - 11.12.2021, Page 14
Hús þarf að vera lifandi og maður sér það að eftir að hótelið lokaði, þá er eins og hverfið þarna í kring sé hálfdautt. Pétur H. Ármannsson Mikil óvissa ríkir um framtíð Hótel Sögu. Stór hluti húss- ins hefur staðið auður síðan hótelrekstur lagðist af í fyrra vegna áhrifa faraldursins. Pétur H. Ármannsson segir bygginguna stórmerkilega og vill fara varlega í breytingar. REYKJAVÍK Bændahöllin, eða Hótel Saga eins og hún er gjarnan nefnd í daglegu tali, var opnuð árið 1962 og er án efa eitt þekktasta hótelið í sögu íslenskrar ferðaþjónustu. Arki- tektinn Pétur H. Ármannsson, sem vinnur nú ásamt fleirum að bók um arkitekt hótelsins, Halldór H. Jóns- son, segir bygginguna vera hluta af þjóðarsögu 20. aldar. „Menn höfðu misjafnar skoðanir á útliti hússins í bakgrunni aðalbygg- ingar Háskóla Íslands og stærð þess og hæð var umdeild á sínum tíma. En þessi bygging varð snemma hluti af þjóðarsögunni. Opnun Hótel Sögu markaði þáttaskil í ferðaþjónustu á Íslandi á sínum tíma. Þetta var fyrsta nútímalega hótelið í alþjóðlegum gæðaflokki sem var opnað hér landi, þremur áratugum á eftir Hótel Borg,“ segir hann. Hótel Saga var um árabil mið- stöð funda- og ráðstefnuhalds, skemmtanalífs og matargerðar- listar á Íslandi, sem sést glöggt á því hvaða sess hótelið skipar í þjóðarvitundinni. Hótel Saga og Grillið eiga sér fjölmargar birtingar- myndir í íslenskri menningarsögu og má þar einna helst nefna fræga senu í kvikmynd Friðriks Þórs Frið- rikssonar Englum alheimsins, eftir samnefndri skáldsögu Einars Más Guðmundssonar. Pétur segir hót- elið hafa ótvírætt gildi í hönnunar- sögunni. „Arkitekt Bændahallarinnar, Halldór H. Jónsson, hannaði ekki bara bygginguna sjálfa heldur líka allar innréttingar hótelsins, valdi efni og áklæði, hannaði húsgögn og gólfteppi, lampa og f leira. Þannig hafa upphaflegar innréttingar Hótel Sögu ótvírætt gildi í hönnunarsög- unni. Margar kynslóðir Íslendinga eiga dýrmætar minningar tengdar þessu húsi. Þar voru haldnar ráð- stefnur og mikilvægir fundir, fín- ustu veislur bæjarins og landsfrægir tónlistarmenn spiluðu undir dansi í Súlnasalnum um árabil. Þetta er húsið sem fólk heimsótti til að halda upp á merk tímamót í lífi sínu. Þannig að það er ekkert alveg sama hvað um það verður.“ Margþætt starfsemi í húsinu Pétur segir Bændahöllina hafa frá upphafi verið hannaða sem fjölnota hús og telur eðlilegast að þar yrði áfram margþætt starfsemi eins og var gert ráð fyrir frá upphafi, en auk hótels og verslana voru skrifstofur Bændasamtakanna og fleiri stofn- ana og fyrirtækja í húsinu. Engin föst starfsemi hefur verið í hótel- hluta hússins frá 2020, en hluti þess var leigður undir skólastofur fyrir nemendur í Hagaskóla, sem þurftu frá honum að hverfa vegna myglu. „Ég verð að segja að eftir að hót- elið lokaði fyrir ári síðan sakna ég þess mikið. Það var nýbúið að opna þarna skemmtilegan veitingastað, Mími, sem var alveg frábær. Ég vona að það verði áfram margþætt starf- semi í húsinu, gisting og veitinga- rekstur í bland við annað, óháð því hvernig úr því spilast. Það er ágætt að menn hafi það í huga að þetta er stórmerk bygging og það þarf að fara varlega út í breytingar á henni,“ segir Pétur. Hús þarf að vera lifandi Uppbygging hússins er engu að síður mjög sveigjanleg og því auð- velt að laga ákveðna hluta þess að nýrri starfsemi. Að sögn Péturs er húsið ekki friðlýst og væri því ekk- ert til fyrirstöðu fyrir nýja eigendur Hluti af þjóðarsögunni stendur nú auður Pétur H. Ármannsson vinnur nú ásamt fleirum að bók um arkitekt Hótel Sögu, Halldór H. Jónsson. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Bændahöllin, eða Hótel Saga eins og byggingin er kölluð í daglegu tali, er eitt helsta kennileiti Vesturbæjarins. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Leikmenn Austur-Þýska- lands æfa sig á Melavelli fyrir landsleik á móti Íslandi 1961. Hótel Saga í byggingu í baksýn. MYND/LJÓSMYNDA- SAFN REYKJAVÍKUR Stór hluti Hótel Sögu hefur staðið meira og minna auður síðan hótelrekstur lagðist af í fyrra vegna áhrifa heimsfaraldursins. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Þorvaldur S. Helgason tsh @frettabladid.is að gera róttækar breytingar á inn- viðum þess. „Það er kannski ekki aðalmálið hver á húsið eða rekur það, heldur bara hvaða hugmyndir menn eru með og hvernig mönnum tekst að nýta kosti hússins án þess að fórna gæðum þess. Hús þarf að vera lif- andi og maður sér það að eftir að hótelið lokaði, þá er eins og hverfið þarna í kring sé hálfdautt. Eftir að hótelið lokaði kemur í ljós hvað starfsemin í húsinu hafði mikið gildi fyrir Háskólasvæðið og Mela- hverfið,“ segir Pétur og bætir við að mikil eftirsjá yrði að hótelinu ef því yrði alveg lokað. Hvað verður um Hótel Sögu? Nokkur fyrirtæki og stofnanir eru í dag með rekstur í Bændahöllinni, þar með talið Bændasamtökin, Pósturinn og Hið íslenska bók- menntafélag. Sá hluti hússins sem heyrði undir Hótel Sögu hefur þó staðið meira og minna tómur frá því rekstur hótelsins lagðist af í nóv- ember 2020. Ýmis áform hafa verið uppi um framtíð Bændahallarinnar og Bændasamtökin hafa verið í við- ræðum við nokkra aðila um mögu- leg kaup á húsinu. Í sumar var greint frá því að aðilar tengdir Hótel Óðinsvéum væru í viðræðum um kaup á húsinu til áframhaldandi hótelreksturs. Sam- kvæmt heimildum Fréttablaðsins runnu þær áætlanir út í sandinn, þegar í ljós kom að fara þyrfti út í mjög kostnaðarsamar framkvæmd- ir til að halda áfram hótelrekstri. Háskóli Íslands hefur einnig lýst yfir áhuga á því að kaupa Bænda- höllina og koma þar upp stúd- entagörðum eða f lytja starfsemi menntasviðs háskólans þangað. Í fjárlagafrumvarpi ársins 2022 er lagt til að fjármála- og efnahags- ráðuneytið fái heimild til að skoða kaup á Hótel Sögu. Framtíð hótels- ins er því enn óráðin, en ljóst þykir að ef áætlanir háskólans ganga eftir er áframhaldandi hótelrekstur í Bændahöllinni nokkuð ólíklegur. n Tímalína Bændahallarinnar 1941 1956 1964 2020 1991 1948 1962 1985 2018 Búnaðarþing ályktar um bygg- ingu bændahúss í Reykjavík. Fyrsta skóflu- stungan tekin að Bændahöllinni. Stjörnusalurinn, eða Grillið, er opnað á 7. hæð hússins. Hótel Saga lokar eftir 58 ára starf- semi. Samningur gerður við Búnaðarbank- ann um að Hótel Saga sjái um rekstur Hótel Íslands. Búnaðarfélagið fær lóð og byggingar- leyfi við Hagatorg. Hótel Saga er opnuð formlega. Sjö hæða viðbygg- ingu bætt við. Hótelið opnað aftur eftir framkvæmdir. FRÉTTASKÝRING FRÉTTABLAÐIÐ 11. desember 2021 LAUGARDAGUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.