Fréttablaðið - 11.12.2021, Blaðsíða 7
kristinnhaukur@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL Í umsögn um ný
sóttvarnalög telur Félag íslenskra
heimilislækna varhugavert að heil
brigðisráðherra verði falið að skipa
sóttvarnalækni.
Samkvæmt núgildandi lögum
er það landlæknir sem ræður sótt
varnalækni.
Í umsögninni segir að spenna geti
myndast milli pólitískra afla varð
andi tillögur sóttvarnalæknis. Erfitt
geti verið fyrir ráðherra að víkja frá
tillögum hans en einnig geti verið
pólitískt erfitt að samþykkja þær.
Mikilvægt sé að faglegt sjálfstæði
sóttvarnalæknis sé virt.
„Af heilbrigðissjónarmiðum er
mikilvægt að tillögur sóttvarna
Þórólfur Guðnason
sóttvarnalæknir var
ráðinn 2015 af Birgi
Jakobssyni, þáverandi
landlækni.
TRYGGÐU ÞÉR RAM Í FORSÖLU
TIL AFHENDINGAR EFTIR ÁRAMÓT
ÍSBAND UMBOÐSAÐILI RAM Á ÍSLANDI
UMBOÐSAÐILI JEEP® OG RAM Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR
S. 590 2300 • WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-17 • LAUGARDAGA 12-16
R A M
Heimilislæknar vara við að ráðherra skipi sóttvarnalækni
Verði lögin
samþykkt mun
Willum Þór
Þórsson heil-
brigðisráðherra
fá valdið til að
skipa sóttvarna-
lækni.
læknis séu settar fram óháð pól
itískum átökum, þó svo að um til
lögurnar sé síðan rætt á pólitískum
vettvangi,“ segir í umsögninni
Þórólfur Guðnason sóttvarna
læknir var ráðinn 2015 af þáverandi
landlækni. Hann hefur sjálfur sagt
að ekki sé óeðlilegt að ráðherra skipi
sóttvarnalækni frekar en landlækn
ir. Faglegt mat fari alltaf fram. n
Andrea Sif Pétursdóttir
landsliðskona í hópfimleikum
Íslenska kvenna
landsliðið í hóp
fimleikum varð
Evrópumeistari
um síðustu helgi
með afar drama
tískum hætti.
Fyrirliði liðsins,
Andrea Sif, sleit
hásin í næstsíðasta stökki sínu
á mótinu. Hún neitaði að fara á
spítalann fyrr en eftir verðlauna
afhendinguna og þurftu þjálfar
arnir að bera hana á pall.
Ásgeir Jónsson
seðlabankastjóri
Öll spjót standa á
Ásgeiri Jónssyni
seðlabankastjóra
sem Bergsveinn
Birgisson, doktor
í norrænum
fræðum, vænir
um ritstuld í
kærum, til bæði
siðanefndar Háskóla Íslands og
nefndar um heilindi í vísindum.
Ásgeir vísar ásökununum alfarið
á bug.
Vanda Sigurgeirsdóttir
formaður Knattspyrnusambands Íslands
Formaður
KSÍ var dag
lega í fréttum í
vikunni vegna
skýrslu úttektar
nefndar Íþrótta
sambands
Íslands, um með
ferð KSÍ á ásök
unum um kynferðislega áreitni
og of beldi. Sjálf segist Vanda ekki
hafa orðið vitni að þöggunar
menningu innan sambandsins.
Með beiðni um skýrslugerðina
hefði sambandið viljað setja öll
mál upp á borðið. n
n Þrjú í fréttum
Afstaða til blóðmerahalds
15%
19%
66%
n Hlynnt
n Hvorki né
n Andvíg
Afstaða til blóðmerahalds
eftir kyni (í prósentum)
80
70
60
50
40
30
20
10
0
n Karlar
n Konur
Hlynnt Hvorki né Andvíg
Mikil andstaða er við blóð
merahald á Íslandi sam
kvæmt nýrri könnun. Aðeins
15 prósent eru hlynnt því að
blóðmerahald sé leyfilegt.
Stuðningur við starfsemina
er meiri á landsbyggðinni en
meðal borgarbúa.
ingunnlara@frettabladid.is
DÝRAVELFERÐ Mikil andstaða er
við blóðmerahald hér á landi, sam
kvæmt niðurstöðum nýrrar skoð
anakönnunar Prósents. Aðeins
15 prósent segjast vera frekar eða
mjög hlynnt því að blóðmerahald
sé leyfilegt á Íslandi, en 66 prósent
eru andvíg því.
Andstaða við blóðmerahald er
mun meiri meðal kvenna en karla.
Aðeins sex prósent kvenna eru
hlynnt því að blóðmerahald sé leyft
en stuðningur karla við starfsemina
er 24 prósent.
Þá er meirihluti kjósenda allra
f lokka andvígur blóðmerahaldi.
Stuðningur er þó mestur meðal
kjósenda Sjálfstæðisflokksins, eða
28 prósent.
Þá er fjórðungur Framsóknar
manna og kjósenda Flokks fólksins
hlynntur blóðmerahaldi.
Athygli vekur að meiri stuðn
ingur er við blóðmerahald meðal
ungu kynslóðarinnar, en 23 pró
sent fólks á aldrinum 18 til 24 ára
segjast vera hlynnt því að blóðmera
hald sé leyfilegt, samanborið við 11
prósenta stuðning við starfsemina
í elsta hópnum, þeirra sem eru 65
ára og eldri.
Meiri andstaða er við starfsem
ina á höfuðborgarsvæðinu en úti
á landi. Tæp sextíu prósent lands
byggðarbúa eru andvíg blóðmera
haldi samanborið við sjötíu prósent
íbúa höfuðborgarsvæðisins.
Umfjöllun um blóðtöku úr fyl
fullum merum komst í hámæli í lok
nóvember þegar svissnesku dýra
verndarsamtökin Animal Welfare
Foundation, AWF, ljóstruðu upp
Konur mun andvígari blóðmerahaldi
um dýraníð á blóðtökubæjum hér
á landi. Skýrsla þeirra og heimildar
mynd sýndi fram á að dýralæknar,
sem starfa samkvæmt leyfi Mat
vælastofnunar, fylgdust aðgerða
lausir með hundum og mönnum
níðast á blóðmerum.
Aðeins fjögur lönd í heiminum
heimila blóðmerahald í þeim til
gangi að nýta í hormón sem spraut
að er í gyltur til að auka frjósemi
þeirra, en löndin eru Argentína,
Kína, Ísland og Úrúgvæ.
Inga Sæland, formaður og þing
maður Flokks fólksins, hefur nú
í annað sinn lagt fram á Alþingi
frumvarp sem felur í sér banna við
blóðmerahaldi og Svandís Svavars
dóttir, sjávarútvegs og landbúnað
arráðherra, hefur skipað starfshóp
til að skoða starfsemina sem tengist
blóðmerahaldi..
Könnun Prósents var fram
kvæmd frá 1. til 10. desember. Um
netkönnun var að ræða meðal
könnunarhóps Prósents.
Úrtakið í könnuninni var 2.300
einstaklingar á aldrinum átján ára
og eldri. Svarendur voru 1.134, eða
49,3 prósent. n
100%
80%
60%
40%
20%
0%
Afstaða til blóðmerahalds eftir stuðningi við stjórnmálaflokka
n Hlynnt
n Hvorki né
n Andvíg
Málið komst í hámæli fyrir atbeina dýraverndarsamtakanna AWF. MYND/AWF
LAUGARDAGUR 11. desember 2021 Fréttir 5FRÉTTABLAÐIÐ