Fréttablaðið - 11.12.2021, Blaðsíða 8
Fjögur atriði skipta mestu máli, segir Róbert Wessman
Í samtali við Fréttablaðið
sagðist Róbert Wessman,
stjórnar formaður Alvo-
tech, ekki óttast miklar
innlausnir í Oaktree
Acquisition Corp. II.
Fjögur atriði ráði mestu
varðandi það:
„Í fyrsta lagi þarf bak-
hjarl yfirtökufyrirtækisins
að hafa reynslu og trú-
verðugleika. Oaktree og móður-
félag þess, Brookfield, eru saman
einhverjir stærstu og traustustu
viðskiptaaðilar banka og verð-
bréfafyrirtækja vestan hafs. Við
völdum Oaktree vegna þess að
þeir voru búnir að vinna með
okkur sem lánveitandi frá 2018.
Í öðru lagi er mikilvægt að
ná í nýtt hlutafé. Það staðfestir
traust fjárfesta á viðskipta-
módelinu og samrunanum. Við
náðum í 200 milljónir dala í nýtt
hlutafé sem er um 45
prósent af heildinni og
ekki háð innlausn.
Þriðja atriðið er að
fyrirtækið sjálft verður
að vera tilbúið að fara á
markað og við erum búin
að verja níu árum í að
byggja upp framleiðslu-
og þróunarstarfsemi.
Keppinautar eru fáir, það
eru ekki margir sem leggja út í
tíu ára fjárfestingu sem kostar
yfir milljón dali.
Fjórða lykilatriðið er svo verð-
lagningin. Fjárfestarnir nú leggja
inn hlutafé á mjög hagstæðu
verði að okkar mati. Það skiptir
miklu máli að fá inn sterka og
trausta aðila, jafnvel þó að okkar
hlutur þynnist eitthvað. Alvo-
tech er því, að okkar mati, í mjög
sterkri stöðu þegar kemur að
fjármögnun.“
Einhverjir kunna að
reyna að nota sérstök
yfirtökufyrirtæki til að
losna undan ábyrgð á
skuldum.
Gary Gensler, forstjóri banda-
ríska fjármálaeftirlitsins
kristinnhaukur@frettabladid.is
FJARSKIPTI Evrópusambandið hefur
framlengt niðurfellingu reikigjalda
innan ESB- og EES-svæðisins um
áratug, eða til ársins 2032. Breyting-
in, sem á ensku kallast Free Roam-
ing eða Roam Like Home, var lögfest
2017 og átti að renna út á næsta ári.
Olli þetta straumhvörfum og
margfaldaðist gagnamagnsnotkun
á einu ári eftir breytinguna.
„Niðurfelling reikigjalda var
mikil bylting fyrir neytendur,“ segir
Hrafnkell V. Gíslason forstjóri Fjar-
skiptastofu. Er Fréttablaðið náði af
honum tali var hann einmitt í Sví-
þjóð að nýta sér umrædda þjónustu.
Niðurfellingin þýðir að borgararnir
geta ferðast á svæðinu án þess að
hafa áhyggjur af reikigjöldum, sem
geta annars staðar verið mjög há.
Hrafnkell bendir á að ferðist fólk
til Sviss, sem er hvorki í ESB né EES,
geti fólk fengið nokkur hundruð
króna reikning fyrir stutt símtal
heim. Fjarskiptafyrirtæki geti gert
samninga milli landa. Það hafi þau
til dæmis gert í sambandi við Brexit
og sé gjöldum haldið niðri.
„Ég get ekki ímyndað mér að Evr-
ópusambandið muni nokkurn tím-
ann bakka út úr þessu,“ segir Hrafn-
kell, spurður hvort hann haldi að
niðurfellingin sé komin til að vera.
Aðgerðin sé ein af skrautfjöðrum
Niðurfelling reikigjalda framlengd um áratug
Hrafnkell
V. Gíslason,
forstjóri
Fjarskiptastofu
framkvæmdastjórnar ESB, að hafa
búið til eitt markaðssvæði fjarskipta
í Evrópu. „Þetta er sú aðgerð sem
borgararnir finna hvað best fyrir
við að vera þegnar í Evrópusam-
bandinu eða á Evrópska efnahags-
svæðinu,“ segir hann.
Bendir Hrafnkell á að hvergi í
heiminum hafi tekist að fara sömu
leið. Í Bandaríkjunum, sem dæmi,
geti verið mjög mismunandi gjöld
milli einstakra svæða. n
Fjárfestar og eftirlitsaðilar
virðast hafa áhyggjur af því að
brotalöm sé á eftirliti með sér-
stökum yfirtökufyrirtækjum
og upplýsingagjöf þeirra
til fjárfesta. Kallað er eftir
hertum reglum og á undan-
förnum mánuðum hefur borið
á því að fjárfestar innleysi
hluti sína í stórum mæli eftir
að tilkynnt er um samruna.
olafur@frettabladid.is
VIÐSKIPTI Sérstök yfirtökufyrir-
tæki, sem á ensku nefnast special
purpose acquisition companies
eða SPAC, eru í raun skúffufyrirtæki
sem stundum er líkt við óútfylltan
tékka. Þau eru skráð á markað og
hafa enga starfsemi aðra en að finna
fyrirtæki til að sameinast. Í frum-
útboðum sérstakra yfirtökufyrir-
tækja er ekki vitað hvaða fyrirtæki
verður fyrir valinu til sameiningar
og því leggja fjárfestar traust sitt á
stofnendur sérstaka yfirtökufyrir-
tækisins, bakhjarla þess.
Financial Times greindi frá því
í gær að Gary Gensler, forstjóri
bandaríska fjármálaeftirlitsins,
SEC, segði nauðsynlegt að herða
reglur um eftirlit með sérstökum
yfirtökufyrirtækjum.
SEC rannsakar nú nokkurn fjölda
fyrirtækja sem kosið hafa að fara
þessa leið í skráningu á markað.
Óttast er að þessir viðskipta-
gerningar haf i ekki fengið þá
gagnrýnu skoðun og eftirlit sem
lögbundin er við hefðbundin frum-
útboð hlutabréfa.
SEC hefur hafið rannsókn á við-
skiptum nýs samfélagsmiðlafyrir-
tækis Donalds Trump, og raf bíla-
framleiðandans Lucid Motors við
sérstök yfirtökufyrirtæki og horfir
sérstaklega til viðskipta þeirra á
milli, áður en tilkynnt var um sam-
runa og skráningu og upplýsinga-
gjöf til fjárfesta.
Gensler sagði almenna fjárfesta
Óttast um öryggi almennra fjárfesta
Gary Gensler, forstjóri bandaríska fjármálaeftirlitsins, SEC, hyggst herða
reglur um eftirlit með sérstökum yfirtökufyrirtækjum. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
ekki njóta sömu verndar við fjár-
festingar í sérstökum yfirtökufyrir-
tækjum og þeim er tryggð í hefð-
bundnum frumútboðum.
Sagðist Gensler telja þörf á nán-
ara eftirliti með stjórnarmönnum,
bakhjörlum, fjármálaráðgjöfum og
endurskoðendum – sem hann kall-
aði „hliðverði“ í SPAC-samrunum,
þeir framkvæmi mögulega ekki
áreiðanleikakannanir, eins og gert
sé í hefðbundnum frumútboðum.
„Einhverjir kunna að reyna að
nota sérstök yfirtökufyrirtæki til
að losna undan ábyrgð á skuldum,“
sagði Gensler.
Í síðustu viku tilkynnti stafræna
fjölmiðlafyrirtækið BuzzFeed að
fjárfestar yfirtökufyrirtækisins
hefðu innleyst 94 prósent hlutafjár
síns, eftir að tilkynnt var um sam-
runa.
Á fyrsta degi eftir að tilkynnt var
um samruna Alvotech og sérstaka
y f irtökufyrirtækisins Oaktree
Special Acquisition Corp. II, skiptu
10 prósent hlutafjár í Oaktree um
eigendur án þess að það hefði áhrif
á verð. Gefur það vísbendingu um
að ólíklegt sé að innlausnir hluta
í Oaktree vegna samrunans verði
miklar, að óbreyttu. n
Róbert
Wessman
lovisaa@frettabladid.is
FJÖLMIÐLAR Blaðamannafélag
Íslands (BÍ) hvetur Alþingi til að
hækka styrki til einkarekinna fjöl-
miðla í samræmi við hækkun til RÚV.
BÍ gagnrýnir að í fjárlagafrumvarpi
ársins 2022 skuli vera gerð tveggja
prósenta aðhaldskrafa á styrki til
einkarekinna fjölmiðla, sem þýði að
þeir lækki um átta milljónir króna.
Að sögn BÍ eru framlög til Ríkis-
útvarpsins á sama tíma aukin um
420 milljónir, sem sé hærri upphæð
en styrkir til allra einkarekinna fjöl-
miðla. Hvetur BÍ til þess að styrkir til
einkarekinna fjölmiðla hækki í sam-
ræmi við hækkunina til RÚV, eða um
8 prósent. Þannig myndu styrkirnir
hækka um 30 milljónir í stað þess að
skerðast um átta milljónir. n
Blaðamenn vilja
hærri ríkisstyrki
ser@frettabladid.is
JÓL Í Fréttablaðinu í dag er að finna
eina örk sem nýtist lesendum sem
jólagjafapappír. Þetta er nýlunda í
anda endurvinnslu og minni sóunar
– og minnir á að sem fyrr eru marg-
vísleg not fyrir dagblaðapappír.
Örkina er að finna á blaðsíðu 4,
með myndríkri auglýsingu frá KFC,
en að af loknum lestri blaðsins er
upplagt að draga hana út og geyma
til innpökkunar á næstu dögum. n
Gjöfum pakkað í
Fréttablaðið í dag
6 Fréttir 11. desember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ