Fréttablaðið - 11.12.2021, Blaðsíða 94
Víkurhvarfi 6 - 203 Kópavogur - Sími 412 1700 - idex@idex. is
www.idex.is
Byggðu til framtíðar með lausnum frá IDEX
Betri gluggar - betri heimili
TÓNLIST
Miðevrópsk
kvikmyndatónlist
Kaldalón í Hörpu
mánudagur 6. desember
Jónas Sen
Tónskratti, eða Diabolus in musica,
er bil á milli tveggja tóna sem kall-
ast stækkuð ferund. Hún þótti
óskaplega ljót í gamla daga; þaðan
kemur nafnið. Tónbilið er algengt
í tónlist sem fjallar á einhvern hátt
um öfl myrkursins. Þannig er uppi
á teningnum í kvikmynd Romans
Polanski, The Ninth Gate. Wojciech
Kilar samdi tónlistina og stækkaðar
ferundir eru úti um allt.
Tónlist Kilars er sjaldheyrð á tón-
leikum hérlendis, og því fylltist ég
eftirvæntingu þegar ég sá nafn hans
á efnisskránni á tónleikum í Kalda-
lóni í Hörpu á mánudagskvöldið.
Átti maður von á einhverjum
spennandi djöfulgangi?
Nei, svo var ekki. Það sem hér
var f lutt var bara hugljúfur vals úr
kvikmyndinni The Promised Land
eftir Andrzej Wajda. Tónlistin var
þægileg áheyrnar, risti reyndar
ekki djúpt, en átti væntanlega ekki
að gera það.
Eins og nemendahljómsveit
Tónleikarnir samanstóðu af lögum
úr miðevrópskum kvikmyndum.
Kammersveit hljóðfæraleikara
spilaði og virtust þeir flestir vera úr
Sinfóníuhljómsveit Íslands. Leikur
þeirra olli nokkrum vonbrigðum.
Fiðlurnar voru ekki alveg hreinar
og var það á köflum svo áberandi
að það var eins og nemendahljóm-
sveit væri að spila. Hljómburðurinn
í Kaldalóni hjálpaði ekki, en hann er
skraufþurr og hentar því betur raf-
magnaðri tónlist. Órafmagnaður
söngur kemur alltaf einstaklega illa
út þar, sem og fiðlur – líka þegar þær
eru hreinar.
Tónlistin var engu að síður
skemmtileg. Lögin voru eftir Michal
Novinski, Attila Pacsay, Krzysztof
Komeda, Henryk Wars, Judit Varga,
Markétu Irglovu og Glen Hansard.
Þau voru fremur keimlík; laglínur
voru grípandi og oft angurværar,
stemningin brothætt og tregafull.
Útsetningarnar voru eftir Zbig-
niew Zuchowicz og voru býsna
sannfærandi. Þær voru fjölbreyttar
og litríkar; mismunandi raddir sam-
svöruðu sér ágætlega. Þarna var
píanó, slagverk, gítar (í einu lagi) og
strengjasveit. Verst hvað fiðlurnar
voru ókræsilegar.
Besta lagið
Markéta Irglova átti langbesta
lagið á tónleikunum, The Hill, úr
myndinni Once, eftir John Carney.
Irglova mun vera búsett hérlendis
og er margverðlaunað tónskáld.
Hún flutti lagið sjálf, söng einstak-
lega fallega og spilaði undir á píanó.
Lagið var unaðslegt áheyrnar, ein-
falt en dáleiðandi. Hinir vondu
strengir voru sem betur fer víðs
fjarri.
Tónlist í kvikmyndum kemur oft
ekki vel út á tónleikum ein og sér.
Tónleikarnir nú voru undantekn-
ing. Laglínurnar voru svo hrífandi
að það var sérlega ánægjulegt. Bara
að hljómsveitarleikurinn hefði
verið jafngóður. n
NIÐURSTAÐA: Frábær tónlist
en flutningurinn var misjafn og
slæmur hljómburður hjálpaði ekki.
Forkunnarfagur söngur bar af
Markéta Irglova söng einstaklega fallega, segir Jónas Sen. MYND/AÐSEND
BÆKUR
Ótemjur
Kristín Helga Gunnarsdóttir
Útgefandi: Bjartur
Fjöldi síðna: 293
Brynhildur Björnsdóttir
Bækur um afturhvarf til náttúr-
unnar hafa átt sín blómaskeið í bók-
menntasögunni og nú er eitt slíkt
mögulega í uppsiglingu, enda kallar
samtíminn á lausnir við vanda sem
skapast af firringu og aftengingu
manns og náttúru, vanda sem gæti
kostað okkur framtíðina. Kristín
Helga Gunnarsdóttir hefur gert
þetta f lókna samband manns
og náttúru að umfjöllunarefni í
nokkrum bóka sinna og er skemmst
að minnast bókarinnar Fjallaverk-
smiðja Íslands sem kom út fyrir
tveimur árum, þar sem umhverfis-
pólitík var í fyrirrúmi. Hér er róið á
aðeins önnur mið.
Lukka er þrettán ára og ber nafn
sitt ekki með rentu. Hún býr í lítilli
kjallaraíbúð með ömmu sinni og
Stínu, sem dregur íbúa undirheima
Reykjavíkur heim með reglulegu
millibili, hún fer sjaldan í skólann
því hún er allt of skrýtin fyrir
krakkana þar og hennar eina vin-
kona er amma Fló sem er nýdáin
þegar sagan hefst. Lukka stendur
því uppi alein en þó ekki alveg,
því amma hennar hefur brugðið
á það ráð að útvega henni fóstur á
hrossaræktarbúgarði í Skagafirði
og þangað er hún f lutt nauðug og
í f lóttahug, eins og hvert annað
ótamið tryppi. Á bænum kynnist
hún dýrum og fólki og finnur jafn-
vægi sem hana hefur skort frá því
hún man eftir sér.
Kristín Helga er löngu búin að
stimpla sig inn sem barnabóka-
höfundur og hefur einnig sent frá
sér skáldsögur fyrir fullorðna. Í
þessari bók nær hún að beita ein-
stökum frásagnartöfrum, persón-
urnar eru heilsteyptar og marglaga
og atburðarásin er óvænt og göldr-
ótt með kæruleysislegri yfirnátt-
úru á köflum. Lýsingarnar á upp-
lifun barns á óreglu og óreiðu eru
sársaukafullar og að sama skapi eru
lýsingarnar á sveitalífinu heillandi
og þó kannski megi ætla af þessum
fullyrðingum að hér sé á ferðinni
dæmigerð sveitarómantík frá miðri
síðustu öld þá er fjarri því. Meira er
sýnt og gefið í skyn en sagt berum
orðum og lesandinn er ekki með
allar upplýsingar fyrr en langt er
liðið á bókina.
Ótemjur er heillandi saga af
sársauka, bata og endurreisn sem
situr með lesandanum löngu eftir
að lestri lýkur. n
NIÐURSTAÐA: Heillandi saga af
sársauka, bata og endurreisn.
Ótamin Lukka
Lagið var unaðslegt
áheyrnar, einfalt en
dáleiðandi.
Í þessari bók nær hún
að beita einstökum
frásagnartöfrum,
persónurnar eru
heilsteyptar og marg-
laga og atburðarásin er
óvænt.
kolbrunb@frettabladid.is
Fimm teikningar er innsetning eftir
Gunnhildi Hauksdóttur myndlist-
armann, ásamt nýjum blekverkum
í sýningarrými MULTIS að Tryggva-
götu 21, Hafnartorgi.
Fimm teikningar samanstendur
af tveim hljóðrásum, skúlptúr og
teikningum. Verkið er hluti af röð
verka þar sem Gunnhildur vinnur
með umbreytingu teikninga yfir í
raddskrár. Gunnhildur vann með
fimm ungar djasssöngkonur í Lista-
háskólanum í Klaipeda í Litháen.
Ein söngkona túlkar hverja teikn-
ingu fyrir sig. n
Fimm teikningar Gunnhildar
Gunnhildur sýnir á Hafnartorgi.
MYND/AÐSEND
kolbrunb@frettabladid.is
Úrslit í ritlistarkeppni Ungskálda
2021 voru kynnt í Amtsbókasafn-
inu á Akureyri á dögunum. Fyrstu
verðlaun hlaut Þorsteinn Jakob
Klemenzson fyrir „Vá hvað ég hata
þriðjudaga!“ Í öðru sæti var Halldór
Birgir Eydal með „Ég vil ekki kaupa
ný jakkaföt“ og Þorbjörg Þórodds-
dóttir hreppti þriðja sætið fyrir verk
sitt „Mandarínur“. Alls bárust 52
verk frá 29 þátttakendum í keppn-
ina að þessu sinni.
Fyrr í haust var haldin sérstök
ritlistasmiðja í Menntaskólanum á
Akureyri í tengslum við Ungskáld
2021. Leiðbeinendur voru Fríða
Ísberg og Halldór Laxness Halldórs-
son, eða Dóri DNA. n
Þorsteinn Jakob er ungskáld Akureyrar
Ungskáldin góðu á Akureyri. MYND/AÐSEND
68 Menning 11. desember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ