Fréttablaðið - 11.12.2021, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 11.12.2021, Blaðsíða 12
Þá gekk Einarr jarl til Hálfdanar. Hann reist örn á baki homum þeima hætti, at hann lagði sverði á hol við hrygginn ok reist rifinn öll ofan á lendar, dró þar út lungun. Var þat bani Hálfdanar. Haralds saga Sigurðarsonar Samkvæmt nýrri rannsókn á hinni alræmdu aftökuaðferð víkinganna, blóðerninum, hefði fórnarlambinu blætt út og það kafnað á örskotsstund. Doktor við Háskóla Íslands telur aðferðina hafa verið notaða sem hefnd. kristinnhaukur@frettabladid.is VÍSINDI Ný rannsókn vísindamanna við Háskóla Íslands og Keele- háskóla í Bretlandi, sýnir að hin víðfræga aftökuaðferð víkingaaldar, blóðörn, var ekki jafn sársaukafull og hún hljómar eða hefur verið sýnd í sjónvarpi. Fórnarlambið hefði dáið á aðeins mínútu. „Blóðörn er öfgafullur og skrítinn. Hann minnir á undarlegt atriði úr hryllingsmynd,“ segir Luke John Murphy, doktor við fornleifafræði- deild Háskóla Íslands, sem vann rannsóknina ásamt Heidi Fuller, Peter Willan og Monte Gates við læknadeild Keele-háskóla. Blóðörn hefur fengið aukna athygli undanfarin ár vegna sjón- varpsþáttanna The Vikings og tölvu- leiksins Assassin ś Creed: Valhalla. Í grófum dráttum gengur hann út á að kljúfa hrygg fórnarlambsins með beittu blaði og brjóta upp rifbeinin að aftan. Þá eru lungun rifin upp og strengd yfir rifbeinin líkt og hamur á vængjum fugls. Sérstakur hugbúnaður var not- aður við rannsóknina til þess að reikna út áhrif blóðarnarins á líf- færin. Murphy var fenginn inn í rannsóknina til þess að veita sögu- lega innsýn í þennan sið og þær frá- sagnir sem til eru í fornritunum. „Blóðörn er ekki jafn sársauka- fullur og fólk heldur. Þetta hefur verið sárt í eina eða tvær mínút- ur og svo er fórnarlambið dáið,“ segir Murphy. Fórnarlambinu blæðir hratt út og getur ekki andað. Aðgerðin sjálf hefur þó tekið umtalsvert lengri tíma og hefur því að langmestu leyti verið gerð á líki. Ekki eru allir sannfærðir um að blóðörninn hafi nokkurn tímann verið gerður. Fyrsta þekkta heim- ildin er Knútsdrápa, sem er ekki á Norrænu heldur engilsaxneskri skandinavísku, og hefur því verið haldið fram að um mistúlkun sé að ræða. Þá er í Orms þætti Stórólfs- sonar frásögn af því að Ormur hafi reist blóðörn í bakið á trölli. Murphy er ekki sammála því að þetta útiloki að blóðörninn hafi verið til. „Við höfum svo margar frá- sagnir af blóðerni að hann er greini- lega fyrirbæri sem var þekkt,“ segir hann. „Þetta er óvenjulegt og öfga- fullt, en samt ekki úr karakter fyrir stríðsmenn á víkingaöld. Það eru frásagnir af fleiri skrýtnum hlutum sem gerðir voru við lík.“ Þetta hafi í raun ekki verið ósvipað og hið svo- kallaða „kólumbíska hálsbindi“ sem latneskir fíkniefnasalar nota til að hræða fólk. Það er að skera fólk á háls og draga tunguna í gegnum sárið. Í rannsókninni er þó ekki full- yrt að blóðörn hafi verið fram- kvæmdur, aðeins að hann hafi verið vel mögulegur. Murphy nefnir aðra aftökuaðferð, að festa garnarenda við tré og láta fórnarlambið ganga í kringum það, sem dæmi um aðferð sem augljóslega hafi ekki verið gerð. Það hafi komið úr kristnum frásagnaarfi í gegnum dýrlinga- sögurnar. En hver var tilgangur blóðarnar? Murphy telur frásagnirnar ekki benda til þess að hann hafi verið mannfórn til Óðins eins og sumir hafa haldið fram. Þvert á móti kemur hann með þá kenningu í rannsókninni að blóðörninn hafi verið form hefndar fyrir slæm dráp. Til að mynda hafi Ormur Stórólfs- son verið að hefna fyrir Ásbjörn fóstbróður sinn. ■ Blóðörn ekki jafn kvalafullur og ætla mætti Samkvæmt fornritunum ristu synir Ragnars loðbrókar blóðörn í bak Ella konungs Norðymbralands, til að hefna fyrir föður sinn, eins og sýnt var í þáttunum The Vikings. SKJÁSKOT/YOUTUBE Luke John Murphy, doktor við fornleifa- fræðideild Há- skóla Íslands birnadrofn@frettabladid.is DÝRAVELFERÐ Ester Rut Unnsteins- dóttir, spendýrafræðingur hjá Nátt- úrufræðistofnun, segir lífgildrur bestu leiðina til þess að veiða haga- mýs sem leita í híbýli manna. Líkt og Fréttablaðið greindi frá í gær er sér- lega mikill músagangur hér á landi nú og er líklegasta skýring hans gott veðurfar langt fram eftir hausti. Fréttablaðið hafði ranglega eftir Ester í gær að best væri að veiða mýs í límgildrur. Þá leið segir Ester stang- ast á við dýravelferðarlög, það segir einnig á síðu Matvælastofnunar. Í 21. grein laga um velferð dýra segir að dýr skuli aflífuð með skjótum og sársaukalausum hætti. Forðast skuli að valda dýrum óþarfa þjáningum eða hræðslu. „Þetta er skelfileg leið til að aflífa dýr og það er alls ekki mælt með að nota límgildrur,“ segir Ester. Mýsnar festist í lími gildrunnar þar sem þær svo veslist upp og deyi, til séu dæmi um það mýsnar slíti af sér útlimi þegar þær reyna að sleppa úr slíkum gildrum. „Það er í rauninni ótrúlegt að það megi selja svona gildrur og hvað þá að þær seljist í bílförmum.“ Þá segir Ester að í langflestum til- vikum sé óþarfi að aflífa hagamýs sem flækist inn í hús. Farsælast sé að loka öllum götum á húsum svo mýsnar komist ekki inn. Fari svo að þær komi inn skuli veiða þær í líf gildrur og hleypa þeim út. „Mikil- vægt er að athuga reglulega hvort mús hafi komið í gildruna og hleypa henni út sem fyrst. Mýs hafa hröð efnaskipti og geta ekki lifað án matar lengi.“ ■ Límgildrur skelfileg leið til að aflífa dýr Ester Rut Unn- steinsdóttir, spendýra- fræðingur hjá Náttúruvísinda- stofnun benediktboas@frettabladid.is LANDBÚNAÐUR „Ullin okkar er ein- stakt hráefni sem hægt er að nýta á svo marga vegu,“ segir Unnsteinn Snorri Snorrason, verkefnastjóri sauðfjárræktar hjá Bændasam- tökum Íslands. Flíkur í nýrri útivistarlínu Icewear eru allar einangraðar með íslenskri ull. Einangrun af þessu tagi er nýtt fyrirbæri í útivistarfatnaði. Hjá Icewear er notast við 80 prósenta íslenska ull í einangrunina. „Þetta er í raun nýsköpun byggð á gömlum grunni sem mun færa ull- ariðnaðinn inn í framtíðina,“ segir Aðalsteinn Pálsson, framkvæmda- stjóri Icewear. Hann bendir á að það sem skipti máli sé að íslenska ullin gefi góða öndun og jafnan varma með einstökum eiginleikum sínum eins og Íslendingar þekki svo vel. Þessi nýja nálgun gefur von um upphaf að nýrri búgrein hér á landi, þar sem bóndi fengi hærra verð fyrir ullina, sem nýtist til framleiðslu á verðmætum vörum. Það sem áður nýttist ekki í prjónaband gæti með þessu leitt til þess að búhættir bænda breyttust og að hér skapist skilyrði til ullarræktunar í stað þess að leiða lömb til slátrunar.■ Sauðfjárrækt gæti snúist um ullina Unnsteinn Snorri Snorra- son 10 Fréttir 11. desember 2021 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.