Fréttablaðið - 22.12.2021, Qupperneq 2
Hvað ungur nemur, gamall temur
Allir fjórir synir fiskikóngsins Kristjáns Berg feta í fótspor föðurins. Hér eru þrír þeirra, Alexander Örn, Eyjólfur Júlíus og Ari Steinn, en Ægir Örn var við
störf í búðinni á Höfðabakka er þessi mynd var tekin af feðgunum í angandi skötulyktinni sem nú leggur brátt um borg og bæi. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Mikill fjöldi Íslendinga verður
á eyjunni Tenerife yfir jól og
áramót. Á íslenskum bar er
búist við 400 manns í mat og
afbókanir verið mjög fáar.
kristinnhaukur@frettabladid.is
SAMFÉLAG Sífellt verður vinsælla
að fara á sólarströnd um hátíðirnar
og í ár verða þúsundir Íslendinga á
eyjunni Tenerife. Margar vélar flytja
sólarþurfi Íslendinga til eyjunnar á
degi hverjum.
„Ég held að hálf þjóðin verði hér
um jól og áramót,“ segir Herdís
Hrönn Árnadóttir sem rekur ásamt
manni sínum Sævari Lúðvíkssyni
veitingastaðinn Nostalgíu, sem
gjarnan er kallaður Íslenski barinn
á Tenerife og torgið fyrir framan
hann Íslandstorgið.
Herdís og Sævar eiga von á 400
manns í mat yfir hátíðirnar og
færri komast að en vilja. „Ég bjóst
alveg við því að einhverjir myndu
veikjast og ekki koma en það hafa
nánast ekki verið neinar afbókanir,“
segir Herdís.
Samkvæmt Herdísi finna venju-
legir ferðamenn ekki fyrir miklum
breytingum á eyjunni. Strendurnar,
hótelin, verslunarmiðstöðvarnar
og veitingastaðirnir eru opin. En
stærri hópum þarf að deila niður á
fleiri borð. Rétt eins og hér á Íslandi
er þó grímuskylda í verslunum. „Á
veitingastöðum er mjög mikið um
að krafist sé bólusetningarvottorðs
eða PCR-prófs,“ segir Herdís.
Rétt eins og Ísland er Tenerife
rauðlituð á hinu fræga Covid-korti
Evrópsku sóttvarnastofnunarinnar
og nýgengi veirunnar hátt. Hafa
yfirvöld á Tenerife meðal annars
áhyggjur af miklum samgangi milli
eyjunnar og meginlandsins á jól-
unum.
Á Nostalgíu eru meðal annars
sýndir jólatónleikar, boðið upp á
skötu og saltfisk á Þorláksmessu,
hangikjöt og uppstúf á jóladag og
annan í jólum og um áramótin
verður horft á skaupið og skotið upp
flugeldum.
Frá því Nostalgía var stofnuð,
árið 2016, hefur skötuveislan verið
hvað vinsælust. Herdís segir að
fólk panti borð í ágúst, sem er ekki
seinna vænna því það þarf að sækja
skötuna til Íslands. Það var hins
vegar í fyrra sem aðfangadagur kom
sterkur inn.
„Við sáum að Íslendingar höfðu
þörf fyrir að fá hamborgarhrygginn,
hlusta á messuna og fá smá Ísland
í sig í tvo til þrjá tíma áður en þeir
héldu út í hitann og sólina,“ segir
Herdís. Hátíðin í ár verður ekki síðri
ef marka má aðdragandann. „Við
ætluðum að hafa rólega viku fram
að jólum og gera laufabrauð en það
varð brjálað að gera hjá okkur.“
Herdís og Sævar stofnuðu barinn
eftir að hafa farið til Tenerife í frí.
Tóku þau eftir að það vantaði sár-
lega bar sem sýndi landsleiki Íslands
í fótbolta. Um tíma göntuðust þau
með hugmyndina en létu svo slag
standa. „Það fara jafn margar vélar
til Íslands og koma hingað. Þannig
að ef þetta virkar ekki förum við
bara aftur heim. En við erum enn
þá hér,“ segir Herdís. n
Fá fjögur hundruð gesti í
hátíðarmatinn á Tenerife
Íslendingar hafa eignað sér torgið fyrir framan Nostalgíu. MYND/AÐSEND
Sævar og Herdís þurfa að sækja
skötuna til Íslands. MYND/AÐSEND
Faxafeni 11 • Sími 534 0534 • partybudin.is
Áramótaskraut!
Kvöldopnun til áramóta Opið til kl. 17 á gamlársdag
Páll Winkel,
fangelsismála-
stjóri
elinhirst@frettabladid.is
„Við höfum tekið þá ákvörðun
vegna fjölgunar Covid-smita að
af þakka komu listamanna í fang-
elsin fyrir jólin,“ segir Páll Winkel
fangelsismálastjóri. „Það er svipuð
staða hjá okkur og á Landspítal-
anum, við eigum enga varamenn.“
Að sögn Páls bjóða margir lista-
menn fram krafta sína um jólin, þar
á meðal Herra Hnetusmjör, og fyrir
það séu menn þakklátir.
„Bubbi ætlar að gefa öllum föng-
um ókeypis aðganga að streymi af
Þorláksmessutónleikunum sínum.
Þannig að þeim verður streymt inn
í hvern klefa,“ segir Páll. „Það má
segja að það sé jólagjöf frá Bubba.“
Frekar en að efna til tónleika-
halds segir Páll að valið hafi verið
að leyfa heimsóknir aðstandenda
til fanga. „Við megum ekki við
miklum skakkaföllum og gætum vel
Bubba verður streymt inn í fangelsin
að öllum sóttvörnum. Fangaverðir
og fangar hafa fengið Covid, en við
höfum ráðið vel við ástandið hingað
til með markvissum aðgerðum eftir
leiðbeiningum sóttvarnalæknis,“
segir Páll.
Jólin eru að sögn Páls auðvitað
erfiðasti tími ársins fyrir fanga að
vera fjarverandi frá ástvinum.
„Við reynum að halda jólin eins
hátíðleg og hægt er. Prestur verður
með helgihald og svo verður góður
jólamatur á boðstólum,“ segir fang-
elsismálastjóri. n
benediktboas@frettabladid.is
COVID-19 Samtök fyrirtækja á veit-
ingamarkaði, eða SVEIT, lýsa yfir
gríðarlegum vonbrigðum með hert-
ar sóttvarnaaðgerðir. Er bent á að
ástandið á veitingamarkaði sé gríðar-
lega alvarlegt, þar sem aðgerðir hafi
frá fyrsta degi haft bein áhrif á starf-
semi þar sem rauði þráðurinn í þeim
sé að takmarka að fólk komi saman
þar sem vínveitingar eru seldar.
„Er það ósk SVEIT að viðeigandi
aðgerðaáætlun verði hönnuð með
það fyrir augum að rekstraraðilar
öðlist öryggi og stöðugleika þegar
gripið er til sóttvarnaraðgerða,“ segir
í yfirlýsingunni.
Þá er bent á að undanfarin ár hafi
verið lagðar þungar hömlur á starf-
semina sem hafa lýst sér í miklu brott-
falli og óvissu. Vonbrigði samtakanna
lúta fyrst og fremst að vöntun úrræða,
tekjutapi og viðbragðstíma sem sé
enginn. Er bent á að fyrir yfirvofandi
takmarkanir hafi verið spáð 40 millj-
arða tekjutapi en nú þegar jólunum
hafi verið aflýst sé ljóst að það verður
enn meira. n
Milljarða tekjutap
veitingageirans
40
milljarða tekjutapi
var spáð fyrir hertar
aðgerðir.
2 Fréttir 22. desember 2021 MIÐVIKUDAGURFRÉTTABLAÐIÐ