Strandapósturinn - 01.06.1977, Page 26
Hér var gulli í sand sáð,
sízt það verður afmáð.
Auðurinn er afls ráð,
efað fylgir manndáð.
Blessa drottinn verk vor,
vilja, þrek og hvert sþor.
Send oss náðar nýtt vor,
nógan styrk og gott þor.
Skýringar:
Samkvæmt norrænni goðafræði er áin Gjöll í dánarheimum
(Helheimi). Yfir hana þurftu menn að fara eftir dauðann, á
leiðinni til gyðjunnar Hel. Á ánni var brú, Gjallarbrú.
Gnitaheiði. Heiðin þar sem ormurinn Fáfnir lá á gullinu, sbr.
Völsungasögu. Er talin hafa verið í Suður-Þýzkalandi í nánd við
ána Rín.
Brúin á Víðidalsá er fyrsta steinsteypta brúin í Strandasýslu.
Hún er skammt frá árósnum, þar sem þrjár smáár eru komnar
saman í eitt, þ.e. Víðidalsá, Húsadalsá og Þverá, sem fellur í
Húsadalsá ca. 2—-3 km ofar í mynni Húsadals. Víðidalsárbrúin
mun að mestu — eða jafnvel öllu leyti hafa verið byggð fyrir fé
sýslusjóðs Strandasýslu, almenn samskot og aðrar fjáröflunar-
leiðir innan héraðsins. Það, sem einkum varð kveikjan að áhuga
héraðsmanna um brúarbygginguna var hörmulegt slys, er ungur
maður, Lýður Marías Sveinsson frá Kirkjubóli í Staðardal,
drukknaði í ánni í byrjun nóv. eða desember árið 1907.
Magnús Magnússon hreppstjóri á Hrófbergi í Steingrímsfirði
(f. 27/4 1848, d. 10/11 1925) var fæddur á Þiðriksvöllum í
Þiðriksvalladal í Steingrímsfirði, þar sem foreldrar hans bjuggu
um 20—30 ára skeið. Hann hóf búskap á Seljalandi í Gufudals-
sveit í Barðastrandarsýslu, en mun hafa flutzt að Hrófbergi um
24