Strandapósturinn - 01.06.1979, Síða 44
Mér brá ónotalega við, snéri inn aftur til baðstofu og sagði
pabba að ég héldi að það væri að reka inn ís, pabbi fór út að
glugganum, þíddi héluna af rúðunni á smábletti og sagði: „Það
leynir sér ekki að svo er sem þú segir,“ en bætti svo við: „Það er
sjaldan mein að miðsvetrar ís.“
Nú fór heimilisfólkið að klæða sig, við bræður klæddum okkur
eins vel og efni stóðu til, að því búnu fórum við út til fjósverka,
hlúa að ytri fjósdyrum og sækja rekavið í éldinn. Með birtingu
herti veðrið og frostið var svo óskaplegt að okkur fannst næða í
gegnum hold og bein en þó tók okkur mest á andlitið við fengum
ullarflóka til að verja andlitið og svo var hafist handa með að
hlúa að dyrunum. Við bræður tókum það til ráðs að stinga
hnausa úr skafli sem var í lægð neðan við fjóshlöðuna og
byggðum úr hnausunum skýli fram af dyrunum, lögðum viðar-
kefli yfir og snjóplötur á þau svo þannig myndaðist þak yfir
skýlið, bæjarlækurinn rann þar skammt frá þangað sóttum við
vatn og helltum yfir snjóbyrgið, það fraus strax og varð eins og
svellhella, þetta reyndist vel og varð til stóraukinna hlýinda.
Þegar líða tók að hádegi var allur Húnaflói alþakinn hafís inn
á móts við Kaldbaksvík. Frostreykurinn var eins og skafbylur þar
sem sjórinn var auður, íshellan kvarnaðist við flúðir og sker,
stærri jakar stóðu í botni og hrannaðist þá ísinn sem á eftir kom
að þeim og mynduðust við það háar ísrastir, fyrir ofan þessa
stóru jaka nær landi mynduðust lón sem urðu strax að svelli
vegna frosthörkunnar svo sjór og land urðu samfrosta. Við sáum
fugla festast í þessum lagís, þegar þeir ætluðu að fljúga voru
fæturnir fastir við ísinn. Þessir blessaðir fuglar böðuðu vængj-
unum en gátu sig hvergi hreyft og helfrusu á skömmum tíma,
það var átakanlegt að horfa á þetta og geta enga björg veitt.
Stórir hópar af fuglum flugu undan storminum og ísnum inn
flóann og var sagt að fuglar hefðu hrakist suður yfir heiðar því
hvergi var skjól að finna.
Þegar leið að kvöldi var yfir að líta samfellda ísbreiðu hvergi
auð vök og nú gerði fannkomu með storminum og frostið var
óskaplegt, ég heyrði sagt að það hefði orðið 36 stig á celcíus fyrsta
kvöldið. Þetta var alveg ný reynsla fyrir okkur unglingana en
42