Strandapósturinn - 01.06.1979, Blaðsíða 49
Enda þótt jeg hafi lofað að leggja eitthvað til efnis í sögu
Borðeyrar, þá dilst mjer það ekki, að þar sem nú eru liðin 50 ár
síðan jeg kom til Borðeyrar til veru, muni margt vera fallið í
gleymsku af því sem vert hefði verið að geta um. Einnig getur
komið einhver ónákvæmni í því er sagt verður frá einkum hvað
ártal snertir; verð jeg því fyrirfram að biðja velvirðingar á því.
Jeg kom til Borðeyrar 31. Október 1889 ráðinn innanbúðar-
maður, verzlunina átti þá Hans A. Clausen í Kaupmannahöfn,
ásamt fleiri verzlunum hjer á landi t.d. Isafirði, Stykkishólmi.
Ólafsvík og Búðum, hann mun hafa verið sá fyrsti er hóf sigl-
ingar til Borðeyrar, að mig minnir árið 1848. En hvenær föst
verzlun hófst þar er mjer ekki kunnugt um, en það getur valla
hafa liðið á löngu eftir því að dæma hvað gamli torfbærinn var
orðinn hrörlegur þegar jeg kom til Borðeyrar og þá aðeins not-
aður fyrir verkafólk að sofa í vor og haust. Hann mun hafa verið
fyrsta húsið sem byggt var á Borðeyri og kallaður Pjetursbærinn,
bendir það til þess að Pjetur Eggerts hafi verið fyrsti verzlunar-
stjórinn þar. Mín fyrsta ferð í kaupstaðinn var 1876 eða 1877 þá
var búið að byggja íveruhús það sem enn stendur, þá var einnig
krambúð og pakkhús undir einu þaki en aðeins einlyft. En þetta
ár var komin önnur verzlun til sögunnar á Borðeyri, það var J.
Chr. Valdemar Bryde, mjer er þetta svo minnisstætt af þvi að
hann var með 3 seglskip sem lágu bundin saman á höfninni,
þetta var mjer svo starsýnt á jeg hafði aldrei sjeð kaupskip fyrr
jeg fjekk að koma um borð í eitt skipið það hjet, Junó“, þar sá jeg
Bryde kaúpmann í fyrsta sinn, einnig sá jeg þar dreng sem mjer
var sagt að væri 14 ára gamall og hjeti Thor Jensen, hann varð
svo starfsmaður við Brydesverzlunina um nokkura áraskeið, en
er nú orðinn svo landskunnur maður fyrir sínar framkvæmdir
sem kaupsýslumaður og bóndi að um það skal ekki fara fleiri
orðum hjer.
Það mun hafa verið árið 1878 sem Bryde ljet reisa hús það sem
enn stendur á Borðeyri og altaf var kallað Brydehúsið, fyrstu
árin var Sveinn Gudmundsen frá Búðum verzlunarstjóri þar, en
nokkru síðar flutti Vald. Bryde þangað sjálfur með frú og börn,
hann bjó svo á Borðeyri til ársins 1891.
47