Strandapósturinn - 01.06.1979, Page 109
björg andaðist 4. júní 1948 og vatnaði þá nokkra mánuði til að
verða 100 ára gömul.
Þegar Guðbjörg var 76 ára, var sótt fyrir hana um Vinnu-
hjúaverðlaun til Búnaðarfélags íslands. Umsóknin var svo-
hljóðandi.
Ég undirritaður leyfi mér hér með að sækja um Vinnuhjúa-
verðlaun til Búnaðarfélags Islands handa Guðbjörgu Sigurðar-
dóttur sem hjá mér dvelur 76 ára að aldri. Hún hefur verið
vinnuhjú hjá öðrum frá barnsaldri, fyrstu 20 árin hjá Halldóri
Jónssyni presti að Tröllatungu, þar næst um langt skeið hjá
foreldrum konu minnar og nú síðustu 17 árin hjá okkur hjónum.
Hún hefur jafnan viljað hag húsbænda sinna og verið kátust
þegar hagur þeirra hefur staðið best.
Sá er sótti um verðlaunin var húsbóndi Guðbjargar Jón Jó-
hannsson á Víðivöllum. Guðbjörg fékk verðlaunin, silfurskeið
skreytta og ágrafna, mjög fallegan grip, seinna gaf hún hús-
móður sinni Guðrúnu Halldórsdóttur skeiðina og nú hefur
Guðrún gefið hana til Byggðasafns Húnvetninga og Stranda-
manna að Reykjum í Hrútafirði ásamt fatakistu Guðbjargar sem
er allmerkilegur gripur þó fornleg sé.
Þegar Guðbjörg var rúmlega þrítug eignaðist hún son með
Jóni Þorsteinssyni er síðar bjó á Gestsstöðum. Þessi sonur Guð-
bjargar var Magnús er síðar var bóndi í Arnkötludal, bjó einnig
á Hvalsá og víðar.
Ennfremur átti Guðbjörg tvö börn með Gísla Jónssyni ætt-
uðum úr Tungusveit en bjó þar ekki. Gísli fluttist til Bolungar-
víkur og mun hafa gifst þar konu að nafni Jónína. Börn Guð-
bjargar og Gísla voru Áslaug og Guðmundur.
Um Guðmund hef ég ekki fengið neinar upplýsingar, hefur
sennilega dáið ungur.
Áslaug andaðist fyrir nokkrum árum þá orðin mjög fullorðin
kona, hún flutti til Isafjarðar og átti þar heima allmörg ár, en
flutti þaðan til Reykjavíkur og átti þar heima það sem eftir var
ævi hennar. Áslaug var talin glaðlynd og skemmtileg kona sem
bauð af sér góðan þokka, lagleg og vel hagmælt.
107