Morgunblaðið - 17.08.2021, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 2021
Hótel Sandafell
Þingeyri
Eigandinn er orðinn áttræður, nú þarf nýtt fólk.
Hótelið er fyrir 50 gesti, fullbúið tólum og tækjum. Árið 2020 fullbókað í
gistingu og mat til 25. september. Árið 2021 fullbókað í gistingu og mat.
Þeir sem að hafa áhuga geta haft samband við Hlyn í síma 860-5530.
Hótel Sandafell s. 456-1600 til að skoða. Tilboð.
Sandafell
TIL SÖLU
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir
segir að ef ná ætti hjarðónæmi í sam-
félaginu með náttúrulegum sýking-
um myndi það hafa mjög neikvæð
áhrif á heilbrigðiskerfið. Sem stend-
ur segir Þórólfur ekki tímabært að
tala um bóluefni sem myndu vernda
fólk gegn smiti. Eina lausnin í far-
aldrinum nú sé að reyna að ná upp
betra ónæmi í samfélaginu með þeim
bóluefnum sem standa til boða.
„Smit auka auðvitað ónæmið í
samfélaginu en það þyrftu miklu
fleiri að smitast til þess að ná hjarð-
ónæmi. Við erum að fá þessa alvar-
legu stöðu í heilbrigðiskerfinu, við
getum ekki leyft veirunni að ganga
eitthvað meira og hraðar í samfélag-
inu. Þá fáum við enn stærra vanda-
mál á spítalanum með enn fleiri af-
leiddum vandamálum eins og á að
vera öllum ljóst.“
Þórólfur bendir á að ef 10% þjóð-
arinnar myndu smitast á skömmum
tíma, um 36.000 manns, myndi það
leiða af sér 900 innlagnir á spítala.
„Ég veit ekki hvernig það ætti að
ganga upp. Við þyrftum að leggja
130 manns á gjörgæslu, bara við 10%
útbreiðslu. Það yrði algjört neyðar-
ástand með stóru N-i,“ segir Þórólf-
ur.
„Það er bara ekki tímabært að tala
um sérstök bóluefni gegn Delta. Það
hafa ekki komið neinar tilkynningar
um það eða á hvaða stigi rannsóknir
á þeim bóluefnum eru staddar eða
hvert ferlið verður í markaðssetn-
ingu. Núna erum við bara með þessi
bóluefni og það er engin tímasetning
á því hvenær við gætum hugsanlega
fengið önnur bóluefni.“
Bóluefnin eina
lausnin í boði
- Ótímabært að tala um Delta-bóluefni
Morgunblaðið/Eggert
Bólusetning „Núna erum við bara
með þessi bóluefni,“ segir Þórólfur.
Logi Sigurðarson
logis@mbl.is
Virkum og staðfestum kórónu-
veirusmitum hefur fækkað umtals-
vert undanfarna viku. Runólfur
Pálsson, yfirmaður Covid-göngu-
deildar Landspítalans, segir erfitt að
segja til um hvort þessi bylgja far-
aldursins sé í rénun. Of snemmt sé
að segja til um það, en smittölur í
dag og á morgun gætu gefið vís-
bendingu um hvert faraldurinn
stefni.
„Við vonum að staðan fari að
skána. Fjöldi smita var lægri um
helgina en hafði verið vikuna á und-
an en við höfum séð það oft um helg-
ar, þar sem þá eru færri sýni tekin.
En smitum fækk-
aði líka á föstu-
daginn þannig að
það verður mjög
fróðlegt að sjá
hver staðan verð-
ur í dag,“ segir
Runólfur.
Þórólfur
Guðnason sótt-
varnalæknir seg-
ir fækkun smita
ánægjulega en kveðst ekki viss um
að það sé hægt að túlka smittölurnar
þannig að faraldurinn sé á niðurleið.
„Við erum enn þá með tiltölulega
hátt hlutfall af jákvæðum sýnum,
um 3 til 4%. Enn greinist um helm-
ingurinn utan sóttkvíar sem segir
okkur að það sé meiri útbreiðsla í
samfélaginu,“ segir Þórólfur og bæt-
ir við að bíða þurfi með að leggja ein-
hverja vigt í þessar tölur helg-
arinnar. „Vissulega eru þetta
ánægjulegar tölur og við erum alla-
vega ekki að sjá uppsveiflu.“
Stundum áður fengið bakslag
Runólfur segir fjölda fólks enn í
eftirliti Covid-göngudeildarinnar og
þótt útlitið sé gott þá geti ástand
fljótt breyst til hins verra, þar sem
oft versni einkenni sjúklinga hratt.
Hann segir stöðuna þó mun betri
síðustu tvo daga á spítalanum þar
sem innlögnum hafi ekki fjölgað.
„En allt í einu geta komið þrjár til
fjórar innlagnir að kvöldi til, þótt allt
hafi litið vel út um morguninn.“
Runólfur er vongóður um að
bylgjan taki að dvína á næstu vikum
en erfitt sé að spá um þróun farald-
ursins vegna margra óvissuþátta.
Hann telur styttingu einangrunar
hjá bólusettum og óbólusettum úr
fjórtán dögum niður í tíu, að því
gefnu að þeir hafi verið ein-
kennalausir í minnst þrjá daga, hafi
haft áhrif á skráðan fjölda virkra
smita síðustu viku.
„Maður er að vona að þetta sé til
marks um það að þessi bylgja sé far-
in að réna. Það er of snemmt að lýsa
því yfir hver þróunin verður. Við
höfum stundum áður fengið bakslag
þegar við höfum haldið að helgarnar
hafi litið vel út, þannig að maður
þorir ekki að fullyrða um þetta.“
Runólfur telur að vissar vísbend-
ingar séu um að þeir sem eru í
áhættuhópum séu farnir að halda sig
meira til hlés og gæta sín meira.
„Það hefur verið minna af smitum
að greinast hjá fólki sem við lítum á
sem sérstaka áhættuhópa; þá sem
eru elstir og með alvarlega sjúk-
dóma.“
Býst hann við því að það taki
þessa bylgju lengri tíma að fjara út
en fyrri bylgjur þar sem sam-
komutakmarkanir eru minni og hóf-
legri en áður.
„Það er erfitt að ráða í hvað sé
fram undan þar sem slakari tak-
markanir eru í gildi og samfélagið er
á fleygiferð.“
2
2
5
3
0
0
4
2
6
6
2
5
72
5
93
7 9
92
1.
0
87
1.
2
0
5
1.
2
16
1.
2
3
2 1.
2
93 1.
3
5
1 1.
4
13
1.
4
34
1.
4
47
1.
3
8
5
1.
3
8
6
1.
4
3
5
1.
3
8
3
1.
3
2
8
1.
2
8
0
1.
2
9
4
1.
2
3
2
1.
17
3
2 5 10 7 13 10 11
38
56
78 82
95 88
71
123 123
129
124
154
86
68
109
116
151
107
119
57
105
141
84
119
130
82
64
55
Heimild: LSH
Heimild: covid.is kl. 11.00 í gær
55 ný innan-
landssmit
greindust sl. sólarhring
873 einstaklingar eru
í skimunarsóttkví
1.988 einstaklingar
eru í sóttkví
2020 2021
Einstaklingar undir eftirliti
Covid-göngudeildar LSH kl. 15.00 í gær
150
125
100
75
50
25
0
9.578 staðfest
smit alls
Fjöldi innanlandssmita frá 28. febrúar 2020
106 100
21. 22. 23. 26. 27. 28. 29. 30. 31. 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11. 12. 13. 14. 15. 16.
Fjöldi einstaklinga undir eftirliti LSH frá 21. júlí*
*Engar tölur fyrir 24.-25. júlí226 af þeim
sem eru
undir eftirliti eru börn
66 ár er
meðalaldur
innlagðra á LSH
Væg eða engin einkenni
Aukin einkenni
Alvarlegri einkenni
12. 13. 14. 15. 16. 17. 18. 19. 20. 21. 22. 23. 24. 25. 26. 27. 28. 29. 30. 31. 1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9. 10. 11. 12. 13. 14. 15.
Fullbólusettir
Bólusetning hafin
Óbólusettir
Fjöldi innanlandssmita frá 12. júlí
eftir stöðu bólusetningar*
1.173 einstaklingar
eru undir eftirliti
Covid-göngudeildar LSH
40 af þeim sem
eru undir eftir-
liti flokkast sem gulir
30 sjúklingar
eru inni-
liggjandi á LSH
með Covid-19
24 eru innilagðir á
bráðalegudeildum 6 sjúklingar eru
á gjörgæslu
76 hafa alls lagst inn á
LSHmeð Covid-19
í fjórðu bylgju faraldursins
Um þriðjungur
þeirra óbólusettir
Um tveir þriðju bólusettir
1 flokkast
sem
rauður
16 þeirra fullbólusettir Átta óbólusettir
Fjórir þeirra fullbólusettir
Tveir óbólusettir
Þrír gjör-
gæslusjúk-
lingar þurfa
öndunar-
vélastuðning
Engir sjúklingar
í innlögn eru
hálfbólusettir
30. júlí 2021
154 smit
Erfitt að segja til um rénun bylgjunnar
- Enn hátt hlutfall jákvæðra sýna - Staðan fljót að breytast á spítalanum - Vongóður fyrir kom-
andi vikum - Staðan mun betri en fyrir helgi - Ánægjulegt að sjá ekki uppsveiflu - Mikil óvissa
Runólfur
Pálsson
KÓRÓNUVEIRUSMIT Á ÍSLANDI