Morgunblaðið - 17.08.2021, Síða 8
8 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 2021
hafðu það notalegt
vottun reynsla
ára
ábyrgð
gæði
miðstöðvarofnar
Vagnhöfða 11 - 110 Reykjavík - sími 577 5177 - ofnasmidja.is
Eigum úrval af
miðstöðvar- og handklæðaofnum
Viðtal Dagmála Morgunblaðsins
við Björn Zoëga, forstjóra Kar-
ólínska háskólasjúkrahússins í
Stokkhólmi, hefur vakið töluverða
athygli. Þar komu fram ýmist
áhugaverð atriði sem eiga mikið er-
indi í umræðu um heilbrigðismál hér
á landi.
- - -
Meðal þess er að
Björn upplýsti
að þegar hann tók
við sjúkrahúsinu ár-
ið 2019 hafi hann
fækkað þar um 550
starfsmenn og um
aðra 400 síðar. Nú
séu um 800-900 færri starfsmenn á
sjúkrahúsinu en þegar hann tók við.
- - -
Á sama tíma og þessi mikla fækk-
un hefur átt sér stað
hefur sjúkrarúmum fjölgað úr um
950 í 1.200. Rétta þurfti hallarekstur
af og um leið auka afköst og eins og
þessar tölur sýna þá tókst það.
- - -
Hér á landi er umræðan um heil-
brigðismál öll á þann veg að
aukið fjármagn þurfi til að bæta
stöðu mála. En eins og Björn benti á
í viðtalinu þarf líka að setja inn í
kerfið hagræna hvata. Vissulega
vilja allir sinna sjúklingum vel, en
krafan um að það sé gert á hag-
kvæman hátt er einnig sjálfsögð. Og
þetta tvennt þarf alls ekki að stang-
ast á. Spurningin snýst um viðhorf
og skipulag.
- - -
Útgjöld til heilbrigðismála fara
sífellt vaxandi hér á landi en
töluvert vantar upp á framleiðnina.
Skýrist það að hluta til af fjand-
samlegu viðhorfi til einkarekstrar
en að hluta til má ætla að horfa þurfi
til skipulags Landspítalans.
- - -
Getur ekki verið að þar megi hag-
ræða líkt og gert var í Stokk-
hólmi?
Björn Zoëga
Það þarf að nýta
peningana betur
STAKSTEINAR
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra ræddi um bakslag í jafnrétt-
ismálum síðastliðin ár og þakkaði al-
þjóðlegum kvennahreyfingum og
aðgerðasinnum fyrir baráttu þeirra
gegn kynbundnu ofbeldi í opnunar-
ávarpi á Reykjavík Dialogue í Hörpu
í gær.
„Ég hlakka til að fá að fylgjast
með umræðunum, vinnunni ykkar
næstu daga og fá síðan í hendur
drögin að yfirlýsingu um aðgerðir til
að binda enda á ofbeldi gegn konum
og stúlkum til næstu fimm ára,“
sagði Katrín.
Um er að ræða viðburð sem helg-
aður er baráttunni gegn kynferð-
islegu og kynbundnu ofbeldi og
stendur hann yfir dagana 16.-18.
ágúst. Mun annars vegar fara fram
alþjóðleg ráðstefna og hins vegar
heimsfundur aðgerðasinna og
kvennasamtaka. Er Reykjavík Dia-
logue samvinnuverkefni forsætis-
ráðuneytisins og RIKK – Rannsókn-
arstofnunar í jafnréttisfræðum við
Háskóla Íslands. Var fundurinn
skipulagður af alþjóðlegri verkefn-
isstjórn með fulltrúum frá ólíkum
heimshlutum.
Öllum er velkomið að skrá sig á
ráðstefnuna og heimsfundinn en
skráning fer fram á vefsíðu Reykja-
vík Dialogue.
Reykjavík Dialogue haldið í Hörpu
Opnunarávarp Katrín Jakobsdóttir.
- Forsætisráðherra ræddi um bakslag
í jafnréttismálum í opnunarávarpinu
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Þórshöfn | Frænkurnar
Ásta Rut og Þyrí fengu þá
hugmynd að bjóða upp á
kaffihús í Gistiheimilinu
Lyngholti sl. sunnudag og
létu ekki sitja við orðin
tóm. Þar sem þær eru að-
eins átta og níu ára gaml-
ar hófu þær samninga-
viðræður við ömmur sínar
sem tóku því vel, eins og
góðar ömmur gera þegar
barnabörnin fá skemmti-
legar hugmyndir.
Þær útbjuggu listræna
auglýsingu og auglýst var
á Facebook en þeim
fannst líka vissara að
ganga um bæinn með aug-
lýsinguna og spjalla við
bæjarbúa. „Við ætlum að
bjóða upp á kaffihús frá
klukkan þrjú til fimm í
dag, vertu velkomin, það væri gam-
an að sjá þig,“ sögðu litlu veit-
ingakonurnar.
Enginn var svikinn af ömmu-
bakstrinum hjá ungu veitingakon-
unum á Lyngholti og nóg að gera
þessa tvo tíma sem opið var en
bæði heimafólk og ferðamenn komu
í kaffið enda voru þær ánægðar
með aðsóknina.
„Við ætlum bara að hafa svona
kaffihús allt næsta sumar,“ sögðu
frænkurnar Ásta Rut og Þyrí en
ósagt var hvort búið væri að semja
við ömmurnar um baksturinn en
eitthvað áttu þær að fá fyrir snúð
sinn. „Við getum svo borgað þeim
fimm hundruð fyrir að baka,“ sögðu
ábúðarmiklar veitingakonur.
Ásta Rut er ekki ókunnug veit-
ingarekstri þótt ung sé að árum en
móðir hennar rekur Gistiheimilið
Lyngholt, þar sem litla kaffihúsið
var opnað.
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Frænkur Þyrí Úlfsdóttir og Ásta Rut Ólafs-
dóttir eru efnilegar veitingakonur í Lyngholti.
Ungar kaffihúsa-
konur á Þórshöfn