Morgunblaðið - 17.08.2021, Síða 22

Morgunblaðið - 17.08.2021, Síða 22
22 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 2021 Félagsstarf eldri borgara Árskógar 4 Smíðastofa með leiðbeinanda kl. 9-16. Opin vinnustofa kl. 9-12. Handavinna kl. 12-16. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Heitt á könnunni. Útipútt með kennslu ef veður leyfir kl. 13.30. Kaffisala kl. 14.30-15.30. Allir velkomnir. Sími 411-2600. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.10-11. Prjónað til góðs kl. 8.30-12. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Bónus-rútan kl. 13.10. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30. Garðabær Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara. Með- læti með síðdegiskaffinu er selt frá kl. 13.45 -15.15. Pool-hópur í Jóns- húsi kl. 9. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps- leikfimi kl. 9.45. Ljósmyndanámskeið kl. 10-12. Korpúlfar Morgunleikfimi kl. 9, gönguhópur Korpúlfa gengur frá Borgum kl. 10 og einnig gengið frá Grafarvogskirkju, þrír styrkleika- hópar. Dansleikfimi kl. 11. Hádegisverður kl. 11.30 til 12.30 og kaffi-húsið opnað kl. 14.30 í dag. Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag byrjum við daginn á hópþjálfun kl. 10.30, kl. 13 núvitund með leir í listamsiðjunni okkar. Við endum svo daginn á gönguferð í verslun kl. 15. Verið öll velkomin til okkar á Vita- torg. Hlökkum til að sjá ykkur! Seltjarnarnes Vatnsleikfimi í Sundlaug Seltjarnarness kl. 7.15 og 18.30, Kaffispjall í Króknum frá kl. 9, Pútt á Skólabraut kl. 10.30. Borgarstjórn Reykjavíkur samþykkti þann 15. júní 2021 að auglýsa tillögu að Aðalskipulagi Reykjavíkur til ársins 2040. Aðalskipulagstillagan er uppfærð og endurbætt útgáfa þess aðalskipulags (AR2030) sem staðfest var fyrir rúmum 7 árum. Tillagan byggir þannig á sýn og stefnumörkun AR2030, sem staðfest var í febrúar árið 2014 að undangengnu löngu og ítarlegu samráðs- og kynningarferli. Breytingartillögur miða allar að því að tryggja betur framfylgd núgildandi megin markmiða aðalskipulagsins um sjálfbæra borgarþróun. Breytingarnar snúa einkum að stefnu um íbúðarbyggð innan þéttbýlis borgarinnar. Auk þess eru boðaðar stöku breytingar á völdum atvinnusvæðum og samgönguinnviðum. Tillögurnar gera einnig ráð fyrir því að tímabil aðalskipulagsins verði framlengt til ársins 2040 og í tilefni þess eru sett fram ný megin markmið í völdum málaflokkum. Aðalskipulagstillagan, greinargerð ásamt skipulagsuppdráttum, er auglýst samkvæmt 1. mgr. 36. gr, sbr. 31. gr. laga nr. 123/2010. Tillögunni fylgir umhverfisskýrsla, sbr. lög nr. 105/2006 um umhverfismat áætlana og önnur fylgiskjöl. Tillagan er einnig auglýst með athugasemdum Skipulagsstofnunar, dagsettar 20. maí 2021. Nálgast má öll skipulagsgögn á adalskipulag.is og reykjavik.is Tillagan liggur frammi í þjónustuveri Reykjavíkurborgar að Borgartúni 12-14, 1. hæð, virka daga kl. 8:30 – 16:00, frá 21. júní 2021 til og með 31. ágúst 2021. Tillagan er einnig til sýnis á Skipulagsstofnun, Borgartúni 7b . Þau sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvött til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega til Umhverfis- og skipulagssviðs, Borgartúni 12-14 eða á netfangið skipulag@reykjavik.is, eigi síðar en 31. ágúst 2021. Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir innsendar athugasemdir með tölvupósti. Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar Reykjavíkurborg Umhverfis- og skipulagssvið Aðalskipulag Reykjavíkur 2040, tillaga Endurskoðun stefnu um íbúðarbyggð og blandaða byggð og tæknileg uppfærsla Aðalskipulags Reykjavíkur 2010-2030, með lengingu skipulagstímabils til ársins 2040. Framlenging athugasemdafrests til 31. ágúst. Borgartúni 12-14, 105 Reykjavík, sími: 411 1111, www.reykjavik.is Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar .Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. .Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. .Smíðum gestahús – margar útfærslur. .Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. .Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Byggingavörur Harðviður til húsabygginga Sjá nánar á www.vidur.is Vatnsklæðning, panill, pallaefni, parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu verði. Eurotec A4 harðviðarskrúfur. Penofin harðviðarolía. Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf. Upplýsingar hjá Magnúsi í símum 6600230 og 5611122. Rað- og smáauglýsingar 200 mílur anna á milli Sanda væri annað hefði hans og Jónu Þorsteins- dóttur, konu hans, ekki notið við um langt árabil. Hér með kveð ég góðan vin, samstarfsmann og leiðbeinanda með hans eigin orðum: „Á staðnum þar sem sagt er að aldrei hafi heiðinn maður búið kalla klukkur fólkið nú aftur til tíða – og í austri rísa tindar Öræfajökuls upp í bláan himin guðs.“ Jón Hjartarson. Í dag verður borinn til grafar Sigurjón Einarsson, sem í 35 ár var prestur á Kirkjubæjar- klaustri. Hann var bóndasonur úr Ketildölum á vesturströnd Arnarfjarðar. Þar voru flestir hvort tveggja í senn, bændur og sjómenn. Við þá atvinnuhætti ólst Sigurjón upp og á mennta- skólaárunum, 1945-50 var hann flest sumur á sjó, meðal annars þrjú sumur á togaranum Verði frá Patreksfirði. Þar naut hann í byrjun frænda síns, Braga Thor- oddsen á Patreksfirði, sem þá þegar var þaulvanur togarasjó- maður. Sumarið 1948 sigldu þeir með aflann til Hamborgar, sem þá lá í rústum eftir loftárásir heimsstyrjaldarinnar. Eitt sum- arið á þessum árum var Sigurjón líka í nokkrar vikur formaður í tveggja manna áhöfn á trillunni Bjössa, sem faðir hans átti. Í hinni frábæru uppvaxtar- sögu Sigurjóns, bókinni Undir Hamrastáli, sem út var gefin árið 2006, sjáum við hversu litlu mun- aði að hann kysi sér sjómennsk- una að ævistarfi. Hann segir þar: „Í nær sjö vikur samfleytt hafði ég verið um borð í Verði. Mér líkaði vistin vel, kveið því að fara frá borði. Ætti ég kannski að fara beint upp í brú til Gísla skip- stjóra og segja við hann: Mig langar ekki í land, fæ ég ekki pláss hjá þér í vetur? Ég efaði ekki að hann tæki mér vel. Næsta haust gæti ég svo farið í Stýri- mannaskólann. Ég stóð einn und- ir keisnum. Dimm nótt grúfði yfir skipi og sjó.“ Svo fór þó að hann gerðist prestur. Að mörgu leyti átti prestsstarfið vel við Sigurjón. Hann naut þess að beita sér í fé- lags- og menningarmálum og átti m.a. stóran þátt í þeirri byltingu sem varð í skólamálum sveitanna milli sanda þegar hið mikla skóla- hús á Klaustri var tekið í notkun árið 1971. Á æskuárum gekk Sigurjón til liðs við Sósíalistaflokkinn, sem hér starfaði á árunum 1938-1968, og fór eitt sinn í framboð fyrir þann flokk, árið 1953. Hann var þó aldrei herskár byltingarmað- ur og að skapferli var hann mað- ur sátta og samlyndis. Kom það meðal annars fram í því að á sín- um prestskaparárum var hann löngum í góðu vinfengi við helstu forystumenn Sjálfstæðisflokks- ins og Framsóknarflokksins í prestakallinu, þá Siggeir Björns- son í Holti og Jón Helgason í Seglbúðum. Í öllum sínum margþættu störfum var Sigurjóni mikill styrkur að konu sinni, Jónu Þor- steinsdóttur, sem var skarp- greind kona og framtakssöm, enda átti hún um skeið sæti í hreppsnefndinni þar austur á Síðu, líklega fyrst kvenna. Ég varð fyrst var við Jónu þegar við Sigurjón bjuggum báðir á Nýja stúdentagarðinum, hann langt kominn í sínu guðfræðinámi en ég nokkru yngri slæpingi. Eitt hið fyrsta sem ég heyrði hana segja var þetta: „Nú er prests- dóttirin komin til prestsins.“ Allt frá okkar fyrstu kynnum árið 1953 höfum við Sigurjón ver- ið tryggðavinir og bar þar aldrei skugga á. Ég á honum margt að þakka og mun sakna hans enn um sinn. Hann dó síðastur þeirra manna sem ég gat talið vini mína á mínum fyrstu Reykjavíkurár- um, árunum 1953-1956. Andlát öldungs á tíræðisaldri ætti ekki að vera harmsefni. Samt vottar fyrir titringi í göml- um streng er ég nú krota þessi síðustu orð á blað. Kjartan Ólafsson. Mikill öðlingur er fallinn, sr. Sigurjón Einarsson prófastur. Hann verður ógleymanlegur öll- um þeim sem honum kynntust og áttu hann að vini, skemmtilegur, fróður og réttsýnn var hann. Ég varð svo lánsamur að hitta hann um 1990 og hefja þá með honum samstarf um útgáfu ritsins Kristni á Íslandi sem Alþingi stóð fyrir og gaf út á þúsund ára af- mæli kristnitökunnar 2000, sem er merkilegt og veglegt rit í fjór- um bindum. Sigurjón var formað- ur ritstjórnar enda sérfróður um kirkjusögu. Fundir ritstjórnar og höfunda í húsakynnum þingsins voru til- hlökkunarefni. „Þar var ekki töl- uð vitleysan“ eins og sagt er, og glatt yfir öllu. Nokkrar ferðir fór- um við úr ritstjórninni austur á Síðu til fundahalda og vorum þá í fagnaði þeirra hjóna, Sigurjóns og Jónu Þorsteinsdóttur, á heim- ili þeirra á Kirkjubæjarklaustri. Vinátta okkar hélst þótt þessu verkefni lyki og hún efldist því að þau Jóna voru þá flutt til Reykja- víkur, og þó enn frekar eftir að Jóna dó 2001 og Sigurjón varð einbúi. Stofnuðum við þá með Hjalta Hugasyni og Indriða Gíslasyni lomberklúbb okkar sem lifað hefur síðan, með mannabreytingum þó. Við hitt- umst fyrstu árin heima hjá Sig- urjóni í Hvassaleiti og spiluðum þar. Í kaffihléi var boðið upp á möndluköku með rjóma og „silf- urte“ sem Sigurjón kallaði svo, soðið vatn, sykur, salt og mjólk út í. Sigurjón lærði að spila lomber meðan hann þjónaði sem prestur í Flatey 1959-60. Fyrirmenn staðarins, oddviti, læknir og kaupmaður báðu prest vera fjórða mann og kenndu honum reglurnar. Sigurjón var lunkinn spilamaður en gerði stundum sprenghlægilegar skyssur og skemmti sér þá best sjálfur, og spilasár var hann ekki. Til orða hans og spakmæla er oft vitnað við spilaborðið eins og föður and- anna. Klúbburinn fór minnisstæðar sumarferðir. Hæst ber för okkar um Vestfirði undir leiðsögn Sig- urjóns, m.a. um Ketildali í Arn- arfirði, þar sem hann var alinn upp. Þar þekkti hann hverja þúfu og allan sögugróður landsins. Bók hans um uppvöxt og æskuár á þessum slóðum, Undir hamras- táli, er ein hin besta af sínu tagi sem skrifuð hefur verið á okkar máli. Þegar við sátum við spila- borðið undir óborganlegum sög- um hans um sérkennilega sam- tíðarmenn á Síðu, í Landbroti, Meðallandi, Fljótshverfi og þar í kring, forna siði þeirra og háttu, óskuðum við þess heitt að einnig sá partur ævi hans færi á bók. Svo varð ekki þótt einhver drög séu til. Er leið á ævi Sigurjóns biluðu fætur hans svo að hann varð lítt ferðafær. En höfuðið var óbilað og hugurinn skýr. Ef heilsufar hans bar á góma milli okkar sagði hann: „Það er skárra að fúna neð- an frá en ofan frá.“ Alveg fram í andlátsmánuð sýndi hann, þótt rúmliggjandi væri, marga gamla takta. Ég man varla betri skemmtun en að sitja við beð hans á Hrafnistu. Undan sæng- inni talaði hann þá líka með aug- um og andliti á áhrifaríkan hátt. Það er gott að eiga þann fjársjóð nú þegar hin gamla kempa kveð- ur þetta líf. „Þakka þér fyrir komuna, og komdu, elskan, fljótt aftur“ voru síðustu orð sem ég heyrði af vörum hans. Helgi Bernódusson. Sigurjón Einarsson ✝ Guðrún J. Guðlaugsdóttir fæddist í Reykja- vík 2. október 1940. Hún lést á hjúkrunarheim- ilinu Ísafold 29. júlí 2021. For- eldrar hennar voru Guðlaugur Guðjónsson, f. 2. apríl 1913, d. 17. janúar 2010, og Ingigerður Jónsdóttir, f. 6. febrúar 1917, d. 3. febrúar 2001. Bróðir Guðrúnar er Gunnar, f. 28. júlí 1946, giftur Gunnhildi Óskarsdóttur. Guðrún giftist Jóhanni Guð- mundssyni 19. desember 1964. Hann lést 24. júlí 2008. For- búð með Geir Gunnari Sig- urðssyni, dóttir þeirra er Sól- lilja, f. 2020. Jóhann, f. 2000. 3) Guðmundur, f. 18. mars 1970, giftur Guðrúnu Ágústu Unnsteinsdóttir, f. 1970. Dætur þeirra eru: Brynja Björk, f. 2002. Rebekka Rún, f. 2003. Elínbjörg Eir, f. 2005. Guðrún ólst upp á Háteigs- vegi í Reykjavík og gekk í Austurbæjarskóla. Guðrún og Jóhann byrjuðu búskap sinn í Reykjavík en fluttust síðan í Hafnarfjörð þar sem þau bjuggu alla tíð eftir það. Guð- rún var lengst af heimavinn- andi húsmóðir en þegar börnin voru komin á unglingsaldur fór hún að vinna á leikskóla sem varð starfsvettvangur hennar fram að starfslokum. Útför Guðrúnar fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag, 17. ágúst 2021, klukkan 13. Í ljósi aðstæðna verða að- eins nánustu ættingjar og vinir viðstaddir útförina. eldrar hans voru Guðmundur Jó- hannsson, f. 16. maí 1916, d. 9. nóvember 1947, og Jónína Guðrún Jónsdóttir, f. 28. desember 1914, d. 15. nóvember 1988. Börn þeirra hjóna Guðrúnar og Jóhanns eru þrjú: 1) Inga, f. 15. ágúst 1963, gift Daða Bragasyni f. 1963. Börn þeirra eru: Valgeir, f. 1992. Viktoría, f. 1992. 2) Jóna Guð- rún, f. 19. september 1967, gift Þorgils Einari Ámundasyni, f. 1965. Börn þeirra eru: Davíð, f. 1990. Dagný, f. 1993, í sam- Elsku mamma okkar. Nú þeg- ar komið er að kveðjustund þá koma upp margar góðar minn- ingar. Fyrst og fremst minnumst við þess hversu glaðværan og ljúfan persónuleika þú hafðir. Alltaf varstu til staðar fyrir okk- ur þegar á þurfti að halda og um- hyggja þín fyrir okkur var óend- anleg. Ekki er hægt að minnast þín án þess að hugsa til stund- anna þinna í margverðlaunuðu görðunum ykkar pabba. Þar gastu verið langtímum saman og voruð þið pabbi samstíga í áhuga ykkar á garðyrkju sem skilaði sér síðar til okkar. Eftir að við flutt- um að heiman var heimili ykkar alltaf opið fyrir okkur og okkar fjölskyldum, móttökur hlýjar og strax byrjað að bera fram veit- ingar á borð. Börnunum okkar varstu frá- bær og skemmtileg amma sem þau fundu svo sterkt fyrir því alltaf var séð til þess að nóg væri haft fyrir stafni í hinum fjöl- mörgu heimsóknum og nætur- gistingum hjá ykkur pabba, hvort sem það var að spila, föndra, fara í veiðitúr, hugmynd- irnar voru endalausar. Þið eruð okkar besta fyrirmynd um hvern- ig amma og afi við viljum vera. Eftir langa baráttu við erfiðan sjúkdóm hefur þú nú fengið verð- skuldaða hvíld. Efst í huga okkar á þessari stundu er minningin um hversu yndisleg mamma þú varst sem hjálpar okkur við að takast á við þennan mikla missi okkar. Þú munt ávallt lifa í hjörtum okkar, takk fyrir allt saman. Þín börn, Inga, Jóna og Guðmundur. Guðrún J. Guðlaugsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.