Morgunblaðið - 17.08.2021, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 2021
www.rafkaup.is
ÚRVAL
ÚTILJÓSA
og hefur starfað þar mikið und-
anfarin ár. „Virkilega skemmtilegur
félagsskapur .“ Guðlaugur segir að
hann hafi alltaf verið með króníska
laxveiðidellu og hafi farið mikið í
veiði með Sigríði, konu sinni, og
fleirum í gegnum tíðina. „Það er að-
eins að minnka enda erum við kom-
in á fullt í golfið og svo er maður
alltaf að dunda sér í sumarbústaðn-
um í Kjósinni.“
Fjölskylda
Eiginkona Guðlaugs er Sigríður
Þorsteinsdóttir, f. 9.11. 1951. For-
eldrar hennar eru hjónin Þorsteinn
Björn Jónsson, f. 2.6. 1925, d. 18.7.
1996, og Valdína Kristlaug Stef-
ánsdóttir, f. 23.3. 1924, d. 23.1. 1968.
Börn Guðlaugs og Sigríðar eru 1)
Jenný Bára, f. 4.11. 1973, d. 29.11.
1978; 2) Valdís markaðsfræðingur,
f. 24.6. 1976, gift Gunnari Zoëga
framkvæmdastjóra, f. 12.2. 1975, og
þau eiga börnin Jenný, f. 22.8. 2006,
og Svein, f. 2.6. 2012, d. 16.12. 2013;
3) Hildur Guðný innkaupastjóri, f.
8.7. 1980, gift Jóni Arnari Ragn-
arssyni viðskiptastjóra, f. 27.1. 1979,
og þau eiga börnin Sigurrós Völu, f.
19.5. 2010, og Emilíu Unu, f. 26.4.
2013; 4) Bjarni Már tölvufræðingur,
f. 13.3. 1985, kvæntur Sunnu Rún
Baldvinsdóttur, nema í grasalækn-
ingum, f. 25.9. 1985, og þau eiga
börnin Ronju, f. 16.7. 2014, og
Lottu, f. 26.7. 2019. Systkini Guð-
laugs eru Björn, f. 29.6. 1941; Krist-
ín, f. 10.12. 1942, og stúlka, f. 18.7.
1949, d. 18.7. 1949.
Foreldrar Guðlaugs eru hjónin
Jón Björnsson skipstjóri, f. 28.7.
1910, d. 13.8. 1996, og Jenný Guð-
laugsdóttir húsfreyja, f. 10.6. 1912,
d. 27.11. 2009. Þau bjuggu í Reykja-
vík.
Guðlaugur
Jónsson
Anna Jónsdóttir
húsfreyja í Efri-Tungu,
Fróðársókn, Snæf. og víðar, ekkja
í Eiríksbúð, Hellnasókn, Snæf.
Jón Jónsson
bóndi í Efri-Tungu,
Fróðársókn,Snæf., síðar húsb. í
Brekkubæ, Ólafsvíkursókn, Snæf.
Kristín Jónsdóttir
húsfreyja í Eiríksbúð,
Hellnasókn, Snæf.
Guðlaugur Halldórsson
kaupmaður og bóndi í
Eiríksbúð, Hellnasókn,
Snæf., drukknaði í
Búðaósi
Jenný Guðlaugsdóttir
húsfreyja í Reykjavík
Solveig Þorleifsdóttir
húsfreyja á Efri-Brúnavöllum,
Ólafsvallasókn, Árn.
Halldór Halldórsson
húsbóndi á Efri-Brúnavöllum,
Ólafsvallasókn, Árn., síðar í
Eiríksbúð, Hellnas., Snæf.
Auðbjörg Runólfsdóttir
húsfreyja í Neðridal,
Haukadalssókn, Árn., bústýra í
Auðsholti, Skálholtssókn, Árn.
Páll Stefánsson
bóndi í Neðridal,
Haukadalssókn, Árn.
Anna Pálsdóttir
húsfreyja í Ánanaustum
í Reykjavík
Björn Jónsson
stýrimaður og skipstjóri í
Ánanaustum í Reykjavík Hildur Jónsdóttir
húsfreyja í Ánanaustum
í Reykjavík
Jón Björnsson
húsbóndi í Ánanaustum
í Reykjavík
Úr frændgarði Guðlaugs Jónssonar
Jón Björnsson
skipstjóri í Reykjavík
„VONANDI ERTU HRIFINN AF KÖKUM.
ÞESSI ER GLÆPSAMLEGA GÓÐ.“
„ÞÚ HRINGIR ÞIG EKKI INN VEIKAN. ÞAÐ
ER ÚTBORGUNARDAGUR.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að finna enn neistann.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÞAÐ ER EKKERT AÐ MARKA ÞESSAR
KÍNVERSKU SPÁDÓMSKÖKUR
KJAMS
KJAMS
ÞÚMUNT BORÐASPÁDÓMSKÖKU.
MUNDIRÐU EFTIR
MJÓLKINNI?
JÁ!HELGA, ÉG ER
KOMINN HEIM!
Guðmundur Arnfinnsson yrkir á
Boðnarmiði og kallar „Vorblíðu“:
Fögur ljóma loftin blá,
laus úr dróma niðar á,
lifna blóm í brekku smá,
berast ómar ströndu frá.
Vorið glæðir von og þrá,
vængi kvæðin líka fá.
Lífsins gæði meta má,
meðan æðar finn ég slá.
„Logn eftir storminn,“ skrifar Guð-
mundur. „Legsteinahús Páls á Húsa-
felli fær að standa“:
Hjá bænum þeir biðu á velli
og bjuggust við Miklahvelli,
fyrir eyrun héldu,
nú allt er með felldu
eftir uppþot á Húsafelli.
Gunnar J. Straumland yrkir:
Það lærir sá er vonarleið um veröldina
fer,
þá viskuslóð um heimsins láð er örkuð,
að munurinn á heimskunni og hugans
snilli er
að heimskan virðist gjarnan ótakmörkuð.
Þá er limra eftir Helga Ingólfsson:
Þeir endalaust gerðu glettur
Gunnari – svartur er blettur;
í einelti lagður
enda var sagður
írskur prins, jaðarsettur.
Og önnur eftir Helga:
Ein ungfrú frá Eystri-Giljá
er ættuð og og heitir Diljá.
Hún nældi í Nóa,
þau níu’ áttu króa.
Svo skildu þau – það ég skil, já.
Dagbjartur Dagbjartsson setti
ljósmynd á vefinn með þessari
skýringu: „Karl faðir minn á Goggi.
Myndin er tekin 1956. Um þennan
hest orti Valdimar Benónýsson“:
Bjartur þjóninn bestan á
blakkinn Skjóna kostaríka.
Vart á Fróni finna má
fegri sjón en gripi slíka:
Minnisstæður marinn er
mjúkra kvæða taktinn stígur.
Litinn æðarblikans ber,
best á gæðingskostum flýgur.
Hjálmar Jónsson vakti athygli á,
að Valdi Kam gerði ekki ódýrari
vísur en hringhendur.
Hallmundur Kristinsson kveður:
Íslensk þjóð er alveg bit.
Ekki er henni rótt því
ef í hópnum eru smit
allir þurfa í sóttkví.
Káinn orti:
Stundum gaman hef ég haft
heimsku minni að flíka,
þegar allir þenja kjaft
þá vil ég skrafa líka.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vorblíða og legsteinahús Páls