Morgunblaðið - 19.08.2021, Síða 2

Morgunblaðið - 19.08.2021, Síða 2
2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 2021 Bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill ur .H ei m sf er ði rá sk ilj a sé rr ét tt il le ið ré tti ng a á sl ík u. At h. að ve rð ge tu rb re ys tá n fy rir va ra 595 1000 Verð frá kr. 79.900 Krít tu rb re . 24. ágúst í 10 nætur Verð frá kr. 89.900 Stökktu Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Viðhaldsvinnu vegna endurbóta á skólaskipi Slysavarnaskólans, Sæ- björgu, er lokið í bili og var skipið sjó- sett í gær og því komið fyrir á sinn gamla stað við Austurbakka gömlu hafnarinnar í Reykjavík. Töluvert verk var að þrífa og búa skipið undir málningu, að því er fram kemur á Fa- cebook-síðu skólans. „Þetta gekk allt vel,“ segir Björn Steingrímsson, verkefnisstjóri hjá Stálsmiðjunni Framtaki, sem er hér á vettvangi á meðfylgjandi mynd. Sæbjörg fór í reglubundna slipptöku 9. ágúst sl. Var skipið botn- hreinsað og teknir upp allir botn- og síðulokar auk þess sem skipið var málað að innan sem utan. Björn segir skipið einnig hafa verið þykktarmælt og að allt hafi verið eins og skyldi. „Bara alveg eins og nýtt,“ bætti hann við og hló. Spurður hvort einhver hætta væri á að skip yltu þegar þau væru sjósett, sagði Björn litla hættu á því. gso@mbl.is Skólaskipið er komið á sinn stað eftir reglubundna slipptöku Morgunblaðið/Eggert Sæbjörg lag- leg eftir and- litslyftingu Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Ljóst er að starfsemi Vöku hf. get- ur ekki talist hreinleg atvinnustarf- semi, hefur í för með sér mengunarhættu og getur ekki fallist undir léttan iðnað. Starfsemin samræmist ekki skipulagi svæðisins,“ segir í bréfi sem 65 íbúar í Laugarneshverfi í Reykjavík hafa sent Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur. Bréfið hefur að geyma athugasemdir við tillögu að starfs- leyfi fyrirtækisins sem var auglýst á dögunum. Frestur til athugasemda rann út á föstudag í síðustu viku og hefur Morgunblaðið óskað eftir að fá þær athugasemdir sem Heil- brigðiseftirlitinu bárust. Íbúar í hverfinu hafa ítrekað gert athugasemdir við starfsemi Vöku við Héðinsgötu eins og komið hefur fram í fréttum Morgunblaðsins. Starfsleyfi fyrirtækisins var fellt úr gildi í júní en í lok júlí fékk það und- anþágu fyrir hluta starfseminnar. Nú hafa 65 íbúar í Laugarnes- hverfi tekið sig saman og gera al- varlegar athugasemdir við það að fyrirtækið fái að starfa áfram. „Starfsemi Vöku hf. byggist eftir sem áður á því að fyrirtækið taki á móti allt að átta þúsund tonnum af úr sér gengnum ökutækjum árlega. Það vekur umhugsun okkar að þrátt fyrir úrskurðinn sæki fyrirtækið um leyfi fyrir móttökustöð annars vegar en hins vegar fyrir úrvinnslu öku- tækja (og bílapartasölu). Ekki er ljóst hvernig má aðgreina móttöku- stöð og úrvinnslu ökutækja og enn fremur er undarlegt að umsókn fyr- ir úrvinnslu ökutækja sé sameinuð starfsleyfisumsókn um bílaparta- sölu. Hér virðist því sem um tilraun til að reka áfram óbreytta starfsemi sé að ræða með því að gefa heil- brigðiseftirlitinu og heilbrigðisnefnd kost á að synja leyfi um móttöku- stöð en heimila úrvinnslu ökutækja. Ekki er hægt að sjá hvernig hægt er að vinna við úrvinnslu bíla án þess að tekið sé á móti efninu á einn eða annan hátt,“ segir í bréfi íbúanna 65. Íbúar í hverfinu höfðu áður sent heilbrigðiseftirlitinu ábendingu um að Vaka hefði brotið gegn skilyrðum undanþágu umhverfis- og auðlinda- ráðuneytisins hinn 5. ágúst. Í svari eftirlitsins er því hafnað að myndir sem íbúar sendu inn sýni að tekið sé á móti bílum til úrvinnslu á svæðinu. Vísað er til eftirlitsferðar frá 21. júlí þar sem öll starfsemi Vöku var skoðuð. Segir eftirlitið að þá hafi ekki farið fram vinna við móttöku eða úrvinnslu á bílum. Óttast að starfsemin verði óbreytt - 65 íbúar í Laugarneshverfi mótmæla tillögu að nýju starfsleyfi Vöku við Héðinsgötu - Segja umsókn fyrirtækisins benda til þess að engu verði breytt - Töldu Vöku hafa brotið skilmála undanþágunnar Úrvinnsla Íbúar í Laugarneshverfi héldu því fram að Vaka hefði tekið á móti bílum til úrvinnslu án tilskilinna leyfa. Því hafnar heilbrigðiseftirlitið. Oddur Þórðarson Unnur Freyja Víðisdóttir Slys varð í Stuðlagili á Austurlandi síð- degis í gær, þar sem erlendur ferða- maður féll fimmtán metra niður skriðu í gilinu og endaði í ánni Jöklu. Davíð Már Bjarnason, upplýsinga- fulltrúi Landsbjargar, segir í samtali við mbl.is að ferðamaðurinn hafi slas- ast og að tilkynning um slysið hafi bor- ist viðbragðsaðilum frá öðrum vegfar- endum á svæðinu. Óljóst var í fyrstu hvað hafði gerst og hve alvarlegt slysið væri. Því var ákveðið að kalla út bæði lögreglu og sjúkralið, björgunarsveitir og þyrlu Landhelgisgæslunnar. Vegna stopuls símasambands á svæðinu gekk þó illa að staðsetja hinn slasaða og því urðu aðgerðir við- bragðsaðila flóknari en þurft hefði, að sögn Davíðs. Fyrstu viðbragðsaðilar voru komnir á vettvang um 50 mínútum eftir að út- kallið barst, samkvæmt upplýsingum fréttaritara Morgunblaðsins sem var á svæðinu þegar slysið átti sér stað. Ekki hafa fengist upplýsingar um líðan ferðamannsins en hann á að hafa verið með meðvitund allan tímann, samkvæmt sjónarvottum. Erlendur ferðamaður féll 15 metra niður Stuðlagil - Sagður hafa verið með meðvit- und allan tímann Ljósmynd/Jónatan Garðarsson Stuðlagil Erlendur ferðamaður féll um fimmtán metra niður skriðu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.