Morgunblaðið - 19.08.2021, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 2021
VIÐTAL
Hólmfríður María Ragnhildard.
hmr@mbl.is
„Ég er alveg sest hérna að og mér
líður vel, bý á ofboðslega fallegum
stað. Það eru liðin 20 ár og maður
er alveg hættur að vera í einhverju
basli. Það gengur rosalega vel og
hefur gert í nokkur ár,“ segir
Selma Bjarnadóttir, jógúrtfram-
leiðandi og kotbóndi í Washington í
Bandaríkjunum.
Ólíkt mörgum öðrum Íslend-
ingum sem dreymdi um líf í sveit
sem barn fór Selma ekki þá leið að
stunda nám við Landbúnaðarhá-
skólann á Hvanneyri eða fjárfesta í
afskekktri jörð norður á landi. Þess
í stað leitaði hún út fyrir landstein-
ana og lagði stund á háskólanám í
landslagsarkitektúr í Oregon.
Starfaði hún lengi sem landslags-
arkitekt, bæði hérlendis og erlend-
is, áður en hún festi kaup á jörð í
Washington á vesturströnd Banda-
ríkjanna.
Rekur hún ásamt núverandi eig-
inmanni sínum tvo sveitabæi og
selja þau svínakjöt, lambakjöt og
nautakjöt beint frá býli, auk þess
að framleiða jógúrt sem er selt í yf-
ir 50 verslunum í Bandaríkjunum.
Langaði alltaf að verða bóndi
Selma ólst upp í Breiðholtinu en
frá unga aldri hafði hana dreymt
um líf í sveitinni. Foreldrar hennar
voru báðir utan af landi en að sögn
Selmu voru þau hvorugt það sem
mætti kalla sveitafólk. Það var ekki
fyrr en faðir hennar fór að vinna á
Grundartanga, með bónda sem var
að leita að barnapíu, sem Selmu
bauðst loks tækifæri til að láta
langþráðan draum rætast. Fékk
hún þá vinnu á Stóra-Lambhaga og
vann þar hvert sumar sem barn og
unglingur frá 12 ára aldri.
„Ég var alltaf að hugsa að ég
ætti eiginlega að vera bóndi en ég
gat bara ekki hugsað hvernig ég
ætti að gera það. Ég gat ekki séð
fyrir mér að vera á Íslandi. Mér
fannst allir bændur rétt ná endum
saman og þeir unnu flestir aðra
vinnu í viðbót. Ég hef oft hugsað
samt að ef ég hefði verið send í
sveit á Borgarfirði eystra, þaðan
sem pabbi var ættaður, þá hefði ég
örugglega aldrei farið frá landinu.“
Selma varð þó aldrei eftir á
Borgarfirði eystra en árið 1987
lagði hún land undir fót og ferðað-
ist alla leið til Oregon í háskólanám
í landslagsarkitektúr. Vestanhafs
kynntist hún fyrri eiginmanni sín-
um, Markthor MacFarlane, og sett-
ist hún þar að. Störfuðu þau bæði
sem arkitektar hjá ríkinu í mörg
ár. Hugur Selmu leitaði þó alltaf til
sveitalífsins og sá hún aldrei fyrir
sér að búa í borg til framtíðar. Það
var síðan einn sumardaginn sem
Selma var með eiginmanni sínum
að tína jarðarber í sveitum Wash-
ington þegar hugmyndinni um
sveitalífið skaut aftur upp kollinum.
„Ég sagði við manninn minn að
við ættum að leita að sveitabæ hér,
hann horfði bara á mig eins og ég
væri rugluð,“ segir Selma. Þessi
hugmynd reyndist þó ekki svo galin
en í kjölfarið fóru þau hjón að leita
að landi í nágrenninu. Árið 2000
festu þau á endanum kaup á jörð
sem var 40 ekrur, eða um 16 hekt-
arar, fyrir utan Rochester í vest-
urhluta Washingtonríkis. Hefur
Selma nú átt heima þar í rúma tvo
áratugi.
Arkitekt verður jógúrtsali
Eftir kaupin á jörðinni vann
Selma hjá ríkinu samhliða því sem
hún reyndi fyrir sér í búskap. Til
að láta þetta ganga upp vaknaði
hún snemma á morgnana og vann
langt fram á kvöldin. Til lengri
tíma fór álagið þó að segja til sín og
leið ekki á löngu þar til hún tók
ákvörðun um að hætta sem arki-
tekt og láta reyna á búskapinn af
fullum krafti.
Tók hún snemma eftir því að
hana skorti land til þess að dýrin
gætu séð fyrir þeim hjónum. Fór
þá sú hugmynd að kitla að stofna
mjólkurvinnslu og búa til jógúrt.
Selma og Mark voru þó ekki sjálf
með beljur og þurftu því að leita til
verðlaunamjólkurbóndans Keith
Fagernes sem bjó í nágrenninu.
„Keith er alveg eins og íslenskur
bóndi, hann er alveg eins og einn af
þeim í minni ætt,“ segir hún og
hlær við.
Tók Selma ákvörðun um að jóg-
úrtframleiðslan yrði ekki rekin með
hálfkæringi og sótti hún því nám-
skeið í viðskiptafræði.
„Ég sagði bara ókei, ef við ætlum
að gera þetta þá verður þetta að
vera alvörufyrirtæki. Þegar ég
byrjaði á sveitabænum þá vissi ég
ekkert og það tók mig alveg nokkur
ár að vita hvað ég var að gera og
láta vörurnar kosta. Þetta átti að
vera alvöru fyrirtæki með fólk í
vinnu og átti að verða hinn helm-
ingurinn af tekjunum mínum svo
ég gæti búið hérna í sveitinni. Ég
er svo rosalega þrjósk. Ég hugsaði
með mér að ég yrði að gera þetta.“
Þegar jógúrtframleiðslan var við
það að taka af stað greindist Mark
með illkynja krabbamein. Féll hann
frá eftir að hafa barist við sjúkdóm-
inn í eitt og hálft ár, þá 62 ára að
aldri.
„Hann var bara 61 árs þegar
hann greindist. Við vorum í áfalli.
Ég var að reyna að koma þessu
rjómaríi í gang og var í fullri vinnu
heima. Við hugsuðum bara, hvernig
eigum við að „meika“ þetta?“
Að sögn Selmu er sveitabærinn
hennar í litlu samfélagi, ekki ósvip-
uðu því sem finnst á Íslandi, og í
kjölfar fréttanna um krabbameinið
komu allir til hjálpar.
„Vinkona mín bauðst til að vera
minn persónulegi aðstoðarmaður,
hún sá um rjómaríið og ég sá um
Mark. Svo var fólk sem hjálpaði
mér að fara með hann í geisla-
meðferð á spítalann, fram og til
Íslenskur kotbóndi í Washingtonríki
- Selma Bjarnadóttir fór vestur um haf og hóf búskap með eiginmanni sínum - Sagði upp störfum
sem landslagsarkitekt og byrjaði að framleiða jógúrt - Segist ekki passa inn í íslenskt samfélag
Ljósmyndir/Úr einkasafni
Jógúrt Til að ná endum saman ákvað Selma að hefja jógúrtframleiðslu. Fékk hún verðlaunamjólkurbóndann og nú-
verandi eiginmann sinn, Keith Fagernes, í lið með sér og selur nú jógúrt í 50 verslunum í Seattle og nágrenni.
KRINGLAN – SMÁRALIND – DUKA.IS
SVEPPUR (bleikur, blár) - Verð 9.900,-
SVEPPUR (silfur, gull, kopar) - Verð 10.900,-
KANÍNA - Verð 11.900,-
HEICO lampar
í barnaherbergið Kynningafundur
Kynningafundur vegna eftirtalinna skipulagsverkefna verður
haldinn sem netfundur í gegnum teams, fimmtudaginn
19. ágúst 2020 kl. 12:00
Vinnslutillaga: Breyting á Aðalskipulagi Akraness 2005-2017
vegna stækkunar á íbúðasvæði Jörundarholts.
Bæjarstjórn Akraness áformar breytingu á Aðalskipulagi
Akraness 2005-2017 þannig að íbúðasvæði ÍB10 verði stækkað
vegna áforma um byggingu íbúðarkjarna.
Í fyrirhugaðri breytingu felst að íbúðasvæði ÍB10 verður
stækkað um 2000m². Gert er ráð fyrir að afmörkuð verður lóð
fyrir einnar hæðar íbúðarkjarna innan svæðisins. Óbyggt svæði
(ómerkt) er minnkað að sama skapi.
Sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs