Morgunblaðið - 19.08.2021, Blaðsíða 25
FRÉTTIR 25Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 2021
Kristjana S.
Williams
Sýning í Gallerí Fold
14.-28. ágúst
„It lies
in the eyes
upstairs“
listamannaspjall
laugardaginn 21. ágúst
kl. 14.
Leigufélag aldraðra hses.
Félagið byggir leiguíbúðir, ætlaðar 60 ára og
eldri, í Reykjavík og á Akranesi. Gert er ráð fyrir
að útleiga hefjist á 3. ársfjórðungi 2022
Til þess að geta sótt um íbúð hjá
Leigufélaginu verður viðkomandi að vera
skráður aðili að því.
Athygli er vakin á að nú hefur heimasíðan
www.leigald.is verið opnuð.
Hafir þú áhuga að verða meðal umsækjenda um
íbúð í eigu félagsins, þegar þar að kemur, vinsamlega
skráðu aðild að félaginu á heimasíðunni.
Nú þegar er hægt að skoða væntanlegt útlit húsa og skipulag
hverrar íbúðar á heimasíðunni. Ennþá er ekki hægt að setja fram
ákveðið leiguverð fyrir einstakar íbúðir, en það verður gert eins
fljótt og allar nauðsynlegar upplýsingar í því sambandi
liggja fyrir.
Nú er
heimasíðan
www.leigald.is
opin
Kær kveðja,
Fh. Leigufélags aldraðra vildarhus@vildarhus.is
tímabundnum erfiðleikum innan-
lands. Það væri eftir sem áður ekkert
mál að greiða reikninga og millifæra
fjármuni í heimabönkum, svo dæmi
sé tekið, en fólk gæti þurft að leggja
inn á bankareikninga þeirra verslana
sem það ætti í viðskiptum við í þessu
ástandi eða nota seðla,“ segir Gunn-
ar. Gunnar ítrekar að ekki sé komin
upp nein krísa vegna þessarar þróun-
ar en eins og greint hefur verið frá í
Morgunblaðinu voru innviðir debet-
korta-kerfisins í innlendri eigu árið
2008 þegar til ágreinings kom milli
Seðlabankans og erlendu kortaris-
anna. Samningsstaða Íslendinga í
þeim hildarleik hefði verið allt önnur
og lakari hefðu debetkortainnviðirnir
ekki verið undir innlendu forræði.
Gunnar segir að Seðlabankinn
vinni nú að uppbyggingu innlendrar
og óháðrar smágreiðslulausnar sem
hægt verði að tengja við millibanka-
kerfin eða halda úti til hliðar við þau
kerfi sem greiðslumiðlun innanlands
byggir á í dag.
Kerfislega mikilvægir með
„Þetta er verkefni sem við höfum
unnið í samstarfi við Reiknistofu
bankanna og þegar verkefnið verður
komið lengra munum við einnig vinna
þetta með kerfislega mikilvægum
bönkum hér innanlands.“
Aðspurður segir Gunnar að nokk-
uð sé í að lausnin verði tilbúin. Nú sé
verið að greina hvaða leið sé hent-
ugast að fara.
„Þetta hefur tafist nokkuð vegna
kórónuveirufaraldursins en við ger-
um ráð fyrir að ákvörðun um hvaða
leið verður farin liggi fyrir í kringum
áramótin. Þá verða næstu skref stig-
in,“ segir Gunnar.
Spurður út í hvort finna þurfi upp
hjólið í þessum efnum bendir Gunnar
á að ýmislegt í núverandi kerfum
gangi nærri því að geta uppfyllt þær
kröfur sem gerðar eru til kerfis af
þessu tagi. Millibankakerfið og
heimabankarnir séu þar lykilatriði en
vandinn sé að tengja „síðasta metr-
ann“ inn til söluaðilanna. Núverandi
posakerfi bjóði ekki upp á slíka teng-
ingu. Svipaðar lausnir séu til staðar
af enhverju tagi eða í þróun á öðrum
Norðurlöndum en áskoranirnar séu
svipaðar á flestum mörkuðum.
Kostnaðurinn dreifist á marga
Aðspurður segir Gunnar að Seðla-
bankinn hafi borið kostnaðinn af
vinnunni við uppbyggingu nýs óháðs
kerfis og að það sé eðlilegt þar sem
málið sé tengt þjóðaröryggi. Kostn-
aðurinn sé hins vegar óverulegur í
samhengi hlutanna.
„Þegar innleiðingin hefst má hins
vegar gera ráð fyrir mun meiri kostn-
aði og hann mun þá falla eftir atvik-
um á Reiknistofu bankanna og bank-
ana sjálfa og á endanum viðskiptavini
þeirra“. Það er hins vegar ekki nei-
kvætt í sjálfu sér enda munu almenn-
ingur og fyrirtæki, notendur kerfis-
ins, njóta góðs af því í framhaldinu af
lægri kostnaði og auknu öryggi og
hagræði í greiðslumiðlun.“
Innlend sjálfstæð lausn í smíðum
Morgunblaðið/Hari
Vandasamt Smágreiðslukerfin bjóða í dag ekki upp á að tengja beint við heimabanka einstaklinga og fyrirtækja.
Hræringar
» Borgun var seld til brasilíska
fyrirtækisins Salt Pay í fyrra.
» Borgun var áður í meiri-
hlutaeigu Íslandsbanka.
» Valitor hefur nú verið selt til
Rapyd sem er ísraelskt fjár-
tæknifyrirtæki.
» Valitor var áður í eigu Arion
banka.
» Rapyd keypti einnig
greiðslukortafyrirtækið Korta í
fyrra.
- Seðlabanki Íslands viðraði áhyggjur af smágreiðslukerfi í bréfi til þjóðaröryggisráðs haustið 2019
- Ráðið hefur fundað um málið fjórum sinnum - Bankinn og Reiknistofa bankanna vinna að lausn
Katrín
Jakobsdóttir
Gunnar
Jakobsson
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
„Ég get staðfest að þjóðaröryggis-
ráði barst bréf frá Seðlabanka Ís-
lands haustið 2019 þar sem viðraðar
voru áhyggjur af eignarhaldi og yf-
irráðum á þeim greiðslumiðlunar-
kerfum sem notast er við hér á landi,“
segir Katrín Jakobsdóttir, sem situr í
forsæti þjóðaröryggisráðs. Hún segir
að ráðið hafi tekið ábendinguna al-
varlega og upplýst fjármála- og efna-
hagsráðuneytið í kjölfarið og haldið
samtali við Seðlabankann áfram.
Þannig hafi þjóðaröryggisráð fundað
fjórum sinnum um stöðuna og til
hvaða aðgerða sé rétt að grípa til þess
að stemma stigu við þeirri ógn sem
þessi staða geti leitt af sér.
Verkefnið hjá Seðlabankanum
„Verkefnið er hjá Seðlabankanum
og samkvæmt þeim upplýsingum
sem ég hef miðar vel áfram,“ segir
Katrín.
Gunnar Jakobsson er varaseðla-
bankastjóri fjármálastöðugleika og
hefur haft málefni greiðslumiðlunar-
kerfa fjármálakerfisins á sinni könnu
frá því hann tók við embætti í byrjun
árs 2020.
„Það er mjög mikilvægt að gera
greinarmun á grunninnviðum milli-
bankakerfisins sem tryggir allar
millifærslur af innlánsreikningum
milli lánastofnana og svo greiðslu-
kortakerfanna sem miðla fjármagni
frá kaupendum til seljenda að vöru og
þjónustu, hvort tveggja er grunnur
að greiðslumiðlun á Íslandi,“ segir
Gunnar til útskýringar á þeim
áhyggjum sem bankinn hefur og lúta
að síðarnefndu kerfunum.
Á sjálfur millibankakerfin
Millibankakerfin í eigu Seðlabanka
Íslands hafa nýlega verið uppfærð og
er rekstur og uppgjör þeirra í hönd-
um bankans.
„Uppgjör á greiðslukortaviðskipt-
unum fer fram í gegnum Visa og
Mastercard sem eru alfarið í erlendri
eigu. Ef þessi fyrirtæki gætu ekki
eða tækju ákvörðun um að eiga ekki
viðskipti við Ísland myndi það valda
19. ágúst 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 126.13
Sterlingspund 173.94
Kanadadalur 100.01
Dönsk króna 19.956
Norsk króna 14.272
Sænsk króna 14.559
Svissn. franki 138.54
Japanskt jen 1.1544
SDR 179.35
Evra 148.4
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 177.2113