Morgunblaðið - 19.08.2021, Blaðsíða 45
áhugamál segir hún að það hafi nú allt-
af verið fjölskyldan og börnin. „Ég tók
þau oft með mér í ferðalögin og einu
sinni spurði ég Óla son minn um
hvernig æska hans hefði verið og hann
sagði: „Hún var alveg dásamlega
skemmtileg því það var farið til út-
landa bæði vor og haust og þú varst
svo „aktív“ í því sem þú varst að gera.“
Ferðir í sumarbústaðinn í Hvítársíðu
voru líka stór þáttur í lífi fjölskyld-
unnar um áratugaskeið.
Stefanía hefur verið verið í Odd-
fellowreglunni frá árinu 1960 og kom-
ist þar til æðstu metorða. Hún ætlar að
halda upp á daginn með fjölskyldunni.
Fjölskylda
Eiginmaður Stefönu var Ólafur Jón
Ólafsson, fulltrúi hjá Flugfélagi Ís-
lands og Flugleiðum og þýðandi og út-
gefandi, f. 8.5. 1930, d. 14.8. 2000. For-
eldrar hans voru hjónin Ólafur
Helgason, skurðlæknir, skólalæknir
og heimilislæknir, f. 14.1. 1901, d. 1.10.
1970, og Kristín Þorvarðardóttir hús-
freyja, f. 19.12. 1912, d. 31.10. 1977.
Þau bjuggu í Reykjavík. Stefana og
Ólafur áttu fjögur börn. Þau eru: Ás-
mundur Karl, f. 2.9. 1952; Arinbjörn, f.
16.12. 1958, d. 17.12. 1958; Ólafur
Kristinn, f. 18.12. 1959, og Margrét, f.
1.5. 1961. Barnabörnin eru sjö og
barnabarnabörnin eru orðin sjö. Systir
sammæðra er Áslaug Kristín Sigurð-
ardóttir, f. 21.9. 1924, d. 15.9. 2009.
Systir samfeðra er Þóra Elfa Karls-
dóttir, f. 5.6. 1939.
Foreldrar Stefönu voru Karl Leó
Guðmundsson Björnsson, sýsluskrif-
ari í Borgarnesi, f. 22.2. 1908, d. 6.7.
1941 og María Ásmundsdóttir, sauma-
og myndlistarkona, f. 27.3. 1898, d.
10.2. 1996.
Stefana Gunnlaug
Karlsdóttir
Helga Jónsdóttir
húsfreyja á Syðri-Krossum, Staðastaðarsókn,
Snæf., síðar á Krossum í sömu sókn
Stefán Jónsson
bóndi á Syðri-Krossum,
Staðastaðarsókn, Snæf.
Kristín Stefánsdóttir
húsfreyja á Krossum, Staðastaðarsókn, Snæf.
Ásmundur Jón Jónsson
bóndi á Krossum, Staðastaðarsókn, Snæf.
Marta María Ásmundsdóttir
ráðskona á Krossum,
Staðastaðarsókn, Snæf., saumakona
í Borgarnesi og í Reykjavík
Guðrún Björnsdóttir
húsfreyja í Lýsudal,
Staðastaðarsókn, Snæf.
Jón Magnússon
bóndi í Lýsudal, Staðastaðarsókn, Snæf.
Ingibjörg Magnúsdóttir
húsfreyja í Borgarnesi og í Reykjavík
Pétur Emil Júlíus
Halldórsson
héraðslæknir í Húnavatnssýslu,
síðar húsbóndi í Reykjavík
Þóra Leopoldína Júlíusdóttir
húsfreyja á Klömbrum og síðar Borgarnesi
Guðmundur Björnsson
bóndi og skáld á Klömbrum í Húnavatnssýslu, sýslum.
í Eyjafirði, Barðastr.s. og Mýra- og Borgarfjarðarsýslu
Þuríður Jónsdóttir
húsfreyja og ljósmóðir á
Svarfhóli í Stafholtstungum
Björn Ásmundsson
hreppstjóri og bóndi á Svarfhóli í Stafholtstungum
Úr frændgarði Stefönu Gunnlaugar Karlsdóttur
Karl Leó Guðmundsson
Björnsson
sýsluskrifari í Borgarnesi
DÆGRADVÖL 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 2021
„ÞÚ ERT NÚ MEIRI ÁHYGGJUPÉSINN!“ „HÚN VILL FÁ SEX KJÚKLINGAVÆNGI. ÞRJÁ
HÆGRI OG ÞRJÁ VINSTRI.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... það þegar lífið er
langt faðmlag.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
MJÁ! MJÁ! JI, HVER SKYLDI VERÐA
LÁTINN FARA FRÁ
EYJUNNI?
MJÁÁÁ!
HVERT ERT ÞÚ AÐ
FARA?
MÍÍÍJÁÁ!
ÚT
ÚT UM DYRNAR!
VOFF!
GETUR ÞÚ VERIÐ
NÁKVÆMARI?!
SKELL
NASA
LOFTSTEINA-
EFTIRLITSDEILD
Ólafur Stefánsson yrkir á Boðn-
armiði:
Pískrað á lágum paldri
um pálma og hitamet.
Kona á óræðum aldri
eldar rófur og ket.
Enn yrkir Ólafur og segist spara
ca 35.000 kr. per dag með því að sóla
sig heima:
Sólardagar safnast upp,
sjö víst komnir hér í röð.
Litur sést á læri og hupp.
Ljúft er að stunda sólarböð.
Benedikt Jóhannsson yrkir um
„áráttur“ mannsins:
Þeir broddstafi’ á hendurnar binda
og brosandi’ á toppnum sig mynda,
við fjallgöngufíkn
finnst engin líkn,
menn taka strax stefnu á tinda.
Við vísnasmiðir gætum litið okkur
nær:
Læknar nú margt kunna’ að laga
sem leitt er og fólki til baga,
við vísnanna fíkn
samt finnst engin líkn,
nema yrkingar alla daga.
„Hrafn spáir skýjuðu,“ skrifar
Friðrik Steingrímsson norður í Mý-
vatnssveit:
Skríður yfir skýjasafn
skekur svali bólin
þegar birtist þessi Hrafn
og þar með kvaddi sólin.
Philip Vogler Egilsstöðum skrif-
aði á mánudag við fallega ljósmynd:
„Nærri lokum morgunhlaupsins var
sólin komin upp yfir Glóðafeyki og
óvönum ljósmyndara varla auðvelt
að taka mynd frá Varmahlíð til aust-
urs. Korter fyrir sex hafði ég fyrst
skynjað upprásina sem hér segir:
Gægist sól við Glóðafeyki,
geisla sendir mér,
segir –hlutverk lykil- leiki
í lífi okkar hér.
Jóhann frá Flögu segir í Vísna-
safni sínu, að vísur þær tvær, sem
hér fara á eftir, séu mismunandi
gerðir sömu vísunnar. Hafa ýmis
skáld notað þær í viðlög við kvæði
sín í ýmsum myndum. Hér verða að-
eins aðalgerðirnar teknar:
Úti ert þú við eyjar blár,
en eg er sestur að dröngum.
Blóminn fagur kvenna klár
kalla eg til þín löngum.
Í hinni gerðinni er vísan á þessa
leið:
Hringa spöng með hýrar brár
hugur tregar löngum.
Út ertu við eyjar blár
en eg er sestur að dröngum.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Mörg er fíknin og
margur sparnaðurinn
Fullt til af
sundfatnaði
Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | Sími 551 3366
Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl.11-15
LONG ISLAND
Sundhaldari kr. 9.850,-
Sundbuxur kr. 5.450,-
Sundbolur kr. 14.850,-