Morgunblaðið - 19.08.2021, Blaðsíða 24
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 2021
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum MESTA úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Önnur þeirra er mun sterkari, A týpan, og hentar á erfiðum botni.
Sú er framleidd af pólsku ríkisfyrirtæki sem sérhæfir sig í hergagnavinnslu.
Hún er vinstra megin á mynd. Hún vigtar á landi 66 kg en ryður frá sér 58 lítrum
þannig að í sjó er hún 8 kg. Málin eru: Þvermál 64,5 cm og þykkt 18 cm.
Sú hægra megin, B týpan, er betur fallin til bobbingasmíði. Hann er ódýrari enda ekki
sami styrkleiki. Málin á honum eru: Landþyngd 78 kg, ryður frá sér 55 lítrum þannig
að í sjó vigtar hann 23 kg. Hann er 60 cm í þvermál og þykkt 19,6 cm.
Hægt er að framleiða hvað stærðir, þykktir og þyngdir sem er en slíkt er ekki á lager.
Útgerðarmenn, netagerðamenn
og skipstjórar
Höfum til taks
tvær gerðir
Rock-hoppara
A & B
S. 898-5463
„Þetta er það sem koma skal“
Snorri Snorrason, skipstjóri á Pálínu Þórunni,
en hann hefur verið að nota A týpuna að undanförnu.
BRYGGJUSPJALL
Líney Sigurðardóttir
Þórshöfn
Á strandveiðitímabilinu, sem nú er
lokið, má iðulega sjá ljósaröð frá
höfninni út á fjörðinn kringum mið-
nættið þegar smábátar halda á veið-
ar. Bátarnir þurfa að landa ekki síð-
ar en eftir 14 tíma frá því látið er úr
höfn og best er því að ná skammt-
inum, 774 kg í þorskígildum, sem
fyrst til að ná að selja ferskan fisk
samdægurs. Veiðar hafa gengið
nokkuð vel í júlí og það sem af er
ágúst en í júlí tók Fiskmarkaður
Þórshafnar við rúmlega 900 tonnum
frá bátum á svæði C, að sögn for-
stöðumanns.
Veður í júlí og ágúst hefur verið
einstaklega gott en sá tími er að
jafnaði besti strandveiðitíminn hér á
svæði C, sem nær frá Þingeyj-
arsveit til Djúpavogshrepps.
Strandveiðar má hefja frá 1. maí
til ágústloka, 12 daga í mánuði en
fyrri hluta tímabilsins er veður oft-
ast bæði rysjótt og kalt á á norð-
austurhorninu og stærsti fiskurinn
sem einnig er verðmætastur, er
ekki enn genginn á þessar slóðir.
Afli er því yfirleitt rýr fyrstu tvo
mánuði strandveiðitímabilsins á
svæði C. Smábátasjómenn hér telja
því raunhæft að tekið væri mið af
aðstæðum á hverju veiðisvæði fyrir
sig og að strandveiðitímabilið væri
lengra, þó áfram væri það bundið við
ákveðinn hámarksafla.
Sveigjanleiki nauðsynlegur
Í samtölum við sjómenn á Þórs-
höfn komu fram ýmis sjónarmið
varðandi strandveiðar og hvaða leiðir
þeir töldu vænlegastar til hagsbóta
fyrir greinina.
„Markmið strandveiða ætti að vera
það að hámarka verðmæti veiðirétt-
arins. Hver bátur fengi sinn veiðirétt
og eigandi stjórnaði svo nýtingu hans
með mestu hagkvæmni í huga, til
dæmis að veiða mætti á hverju svæði
á þeim tíma sem fiskurinn er verð-
mætastur og nærtækastur. Á okkar
svæði er færafiskur bestur frá júlí til
september en maí og júní einkennast
af lélegum, verðlitlum fiski og getur
verðmunur verið allt að 100% milli
fyrri og seinni hluta veiðitímabils-
ins,“ sagði einn þeirra sem rætt var
við á bryggjunni. „Óhagstætt er að
þurfa að sækja langt með tilheyrandi
kostnaði á þeim tíma sem svæðið gef-
ur lítið af sér.“
Annar sjómaður orðaði þetta
þannig að með núverandi fyr-
irkomulagi væri nánast verið að
ganga um takmarkaða auðlind á skít-
ugum skónum, eins og það var orðað
á sjómannamáli.
„Svæðin eru ólík, bæði veiðilega og
veðurfarslega séð og lítil hagkvæmni í
því að starta 700 strandveiðibátum
landsins á veiðar á sama tíma og hefur
jafnvel í för með sér verðfall á fisk-
inum. Í byrjun tímabils á þessu svæði
berjumst við oft í brælu við vond veð-
urskilyrði og þá duga varla þessir 14
leyfilegu tímar á sólarhring meðan við
náum kannski skammtinum á meira
en helmingi styttri tíma síðsumars.“
Fleiri sjómenn taka í sama streng
og vilja sjá breytingu á reglunum.
„Það má veiða fjóra daga í viku, frá
mánudegi til fimmtudags en það væri
hagstæðara að fá að veiða þennan
ákveðna skammt á þeim dögum sem
hentar og með tilliti til veðurs. Það er
ógaman að sitja í landi í rjómablíðu á
föstudegi því þá má ekki róa en á
mánudegi er kannski haugabræla.
Eða að taka vikuskammtinn bara á
færri dögum ef vel gefur, það eykur
bæði framlegð og minnkar kolefn-
issporið sem er jú eitt af stóru um-
hverfismálunum.“
Með núverandi reglum er meiri
hætta á að sjómenn freistist til að fara
á veiðar hvernig sem viðrar og dregur
það úr öryggi þeirra og telja strand-
veiðisjómenn að meiri sveigjanleiki sé
nauðsynlegur í greininni. Strand-
veiðibátar eru á sóknarmarki en
margir sjómenn hér telja aflamarkið
hagkvæmara fyrirkomulag.
Horfa þurfi til
sérstöðu hvers svæðis
Strandveiðibátar setja líflegan og
skemmtilegan svip á höfnina á sumr-
in. Töluverð verðmætasköpun fylgir
hverjum strandveiðibát, svo sem
þjónusta af ýmsu tagi við bátana og
sjómenn svo þessi útgerð er lyfti-
stöng fyrir hvert byggðarlag.
Viðmælendur fréttaritara sögðu
margt vera jákvætt við strandveið-
arnar og nauðsynlegt sé að halda
þeim í kerfinu þó þar þurfi að laga
ýmislegt: „Það þarf að horfa til sér-
stöðu hvers svæðis og haga veiðum
eftir því. Þannig eykst hagkvæmni
strandveiðanna sem er afar mik-
ilvægt, ekki síst núna þegar mikilvæg
stoð smábátaeigenda, grásleppan, á í
vök að verjast vegna sölutregðu og
verðlækkana. Sveigjanleiki í grein-
inni hámarkar verðmæti veiðirétt-
arins,“ sögðu strandveiðisjómenn á
Þórshöfn að lokum.
Strandveiðisjómenn vilja breytingar
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Sjómennska Boltafiski landað að morgni í Þórshöfn á dögunum. Á bryggjunni er rætt um gang veiðanna.
Afurðaverð á markaði
17. ágúst 2021, meðalverð, kr./kg
Þorskur, óslægður 341,57
Þorskur, slægður 293,50
Ýsa, óslægð 286,59
Ýsa, slægð 205,68
Ufsi, óslægður 91,40
Ufsi, slægður 105,49
Gullkarfi 114,19
Blálanga, slægð 201,09
Langa, óslægð 203,46
Langa, slægð 208,39
Keila, óslægð 46,30
Keila, slægð 57,14
Steinbítur, óslægður 132,45
Steinbítur, slægður 277,56
Skötuselur, slægður 732,95
Grálúða, slægð 25,07
Skarkoli, óslægður 143,00
Skarkoli, slægður 335,57
Þykkvalúra, slægð 389,24
Langlúra, slægð 305,04
Sandkoli, óslægður 98,14
Sandkoli, slægður 82,81
Bleikja, flök 3.176,00
Regnbogasilungur, flök 3.177,00
Hlýri, óslægður 269,73
Hlýri, slægður 257,65
Lúða, slægð 652,07
Lýsa, óslægð 102,76
Lýsa, slægð 73,00
Skata, slægð 12,07
Tindaskata, óslægð 0,01
Undirmálsýsa, óslægð 103,14
Undirmálsþorskur, óslægður 139,31
Undirmálsþorskur, slægður 83,95