Morgunblaðið - 19.08.2021, Side 24

Morgunblaðið - 19.08.2021, Side 24
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 2021 Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum MESTA úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Önnur þeirra er mun sterkari, A týpan, og hentar á erfiðum botni. Sú er framleidd af pólsku ríkisfyrirtæki sem sérhæfir sig í hergagnavinnslu. Hún er vinstra megin á mynd. Hún vigtar á landi 66 kg en ryður frá sér 58 lítrum þannig að í sjó er hún 8 kg. Málin eru: Þvermál 64,5 cm og þykkt 18 cm. Sú hægra megin, B týpan, er betur fallin til bobbingasmíði. Hann er ódýrari enda ekki sami styrkleiki. Málin á honum eru: Landþyngd 78 kg, ryður frá sér 55 lítrum þannig að í sjó vigtar hann 23 kg. Hann er 60 cm í þvermál og þykkt 19,6 cm. Hægt er að framleiða hvað stærðir, þykktir og þyngdir sem er en slíkt er ekki á lager. Útgerðarmenn, netagerðamenn og skipstjórar Höfum til taks tvær gerðir Rock-hoppara A & B S. 898-5463 „Þetta er það sem koma skal“ Snorri Snorrason, skipstjóri á Pálínu Þórunni, en hann hefur verið að nota A týpuna að undanförnu. BRYGGJUSPJALL Líney Sigurðardóttir Þórshöfn Á strandveiðitímabilinu, sem nú er lokið, má iðulega sjá ljósaröð frá höfninni út á fjörðinn kringum mið- nættið þegar smábátar halda á veið- ar. Bátarnir þurfa að landa ekki síð- ar en eftir 14 tíma frá því látið er úr höfn og best er því að ná skammt- inum, 774 kg í þorskígildum, sem fyrst til að ná að selja ferskan fisk samdægurs. Veiðar hafa gengið nokkuð vel í júlí og það sem af er ágúst en í júlí tók Fiskmarkaður Þórshafnar við rúmlega 900 tonnum frá bátum á svæði C, að sögn for- stöðumanns. Veður í júlí og ágúst hefur verið einstaklega gott en sá tími er að jafnaði besti strandveiðitíminn hér á svæði C, sem nær frá Þingeyj- arsveit til Djúpavogshrepps. Strandveiðar má hefja frá 1. maí til ágústloka, 12 daga í mánuði en fyrri hluta tímabilsins er veður oft- ast bæði rysjótt og kalt á á norð- austurhorninu og stærsti fiskurinn sem einnig er verðmætastur, er ekki enn genginn á þessar slóðir. Afli er því yfirleitt rýr fyrstu tvo mánuði strandveiðitímabilsins á svæði C. Smábátasjómenn hér telja því raunhæft að tekið væri mið af aðstæðum á hverju veiðisvæði fyrir sig og að strandveiðitímabilið væri lengra, þó áfram væri það bundið við ákveðinn hámarksafla. Sveigjanleiki nauðsynlegur Í samtölum við sjómenn á Þórs- höfn komu fram ýmis sjónarmið varðandi strandveiðar og hvaða leiðir þeir töldu vænlegastar til hagsbóta fyrir greinina. „Markmið strandveiða ætti að vera það að hámarka verðmæti veiðirétt- arins. Hver bátur fengi sinn veiðirétt og eigandi stjórnaði svo nýtingu hans með mestu hagkvæmni í huga, til dæmis að veiða mætti á hverju svæði á þeim tíma sem fiskurinn er verð- mætastur og nærtækastur. Á okkar svæði er færafiskur bestur frá júlí til september en maí og júní einkennast af lélegum, verðlitlum fiski og getur verðmunur verið allt að 100% milli fyrri og seinni hluta veiðitímabils- ins,“ sagði einn þeirra sem rætt var við á bryggjunni. „Óhagstætt er að þurfa að sækja langt með tilheyrandi kostnaði á þeim tíma sem svæðið gef- ur lítið af sér.“ Annar sjómaður orðaði þetta þannig að með núverandi fyr- irkomulagi væri nánast verið að ganga um takmarkaða auðlind á skít- ugum skónum, eins og það var orðað á sjómannamáli. „Svæðin eru ólík, bæði veiðilega og veðurfarslega séð og lítil hagkvæmni í því að starta 700 strandveiðibátum landsins á veiðar á sama tíma og hefur jafnvel í för með sér verðfall á fisk- inum. Í byrjun tímabils á þessu svæði berjumst við oft í brælu við vond veð- urskilyrði og þá duga varla þessir 14 leyfilegu tímar á sólarhring meðan við náum kannski skammtinum á meira en helmingi styttri tíma síðsumars.“ Fleiri sjómenn taka í sama streng og vilja sjá breytingu á reglunum. „Það má veiða fjóra daga í viku, frá mánudegi til fimmtudags en það væri hagstæðara að fá að veiða þennan ákveðna skammt á þeim dögum sem hentar og með tilliti til veðurs. Það er ógaman að sitja í landi í rjómablíðu á föstudegi því þá má ekki róa en á mánudegi er kannski haugabræla. Eða að taka vikuskammtinn bara á færri dögum ef vel gefur, það eykur bæði framlegð og minnkar kolefn- issporið sem er jú eitt af stóru um- hverfismálunum.“ Með núverandi reglum er meiri hætta á að sjómenn freistist til að fara á veiðar hvernig sem viðrar og dregur það úr öryggi þeirra og telja strand- veiðisjómenn að meiri sveigjanleiki sé nauðsynlegur í greininni. Strand- veiðibátar eru á sóknarmarki en margir sjómenn hér telja aflamarkið hagkvæmara fyrirkomulag. Horfa þurfi til sérstöðu hvers svæðis Strandveiðibátar setja líflegan og skemmtilegan svip á höfnina á sumr- in. Töluverð verðmætasköpun fylgir hverjum strandveiðibát, svo sem þjónusta af ýmsu tagi við bátana og sjómenn svo þessi útgerð er lyfti- stöng fyrir hvert byggðarlag. Viðmælendur fréttaritara sögðu margt vera jákvætt við strandveið- arnar og nauðsynlegt sé að halda þeim í kerfinu þó þar þurfi að laga ýmislegt: „Það þarf að horfa til sér- stöðu hvers svæðis og haga veiðum eftir því. Þannig eykst hagkvæmni strandveiðanna sem er afar mik- ilvægt, ekki síst núna þegar mikilvæg stoð smábátaeigenda, grásleppan, á í vök að verjast vegna sölutregðu og verðlækkana. Sveigjanleiki í grein- inni hámarkar verðmæti veiðirétt- arins,“ sögðu strandveiðisjómenn á Þórshöfn að lokum. Strandveiðisjómenn vilja breytingar Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir Sjómennska Boltafiski landað að morgni í Þórshöfn á dögunum. Á bryggjunni er rætt um gang veiðanna. Afurðaverð á markaði 17. ágúst 2021, meðalverð, kr./kg Þorskur, óslægður 341,57 Þorskur, slægður 293,50 Ýsa, óslægð 286,59 Ýsa, slægð 205,68 Ufsi, óslægður 91,40 Ufsi, slægður 105,49 Gullkarfi 114,19 Blálanga, slægð 201,09 Langa, óslægð 203,46 Langa, slægð 208,39 Keila, óslægð 46,30 Keila, slægð 57,14 Steinbítur, óslægður 132,45 Steinbítur, slægður 277,56 Skötuselur, slægður 732,95 Grálúða, slægð 25,07 Skarkoli, óslægður 143,00 Skarkoli, slægður 335,57 Þykkvalúra, slægð 389,24 Langlúra, slægð 305,04 Sandkoli, óslægður 98,14 Sandkoli, slægður 82,81 Bleikja, flök 3.176,00 Regnbogasilungur, flök 3.177,00 Hlýri, óslægður 269,73 Hlýri, slægður 257,65 Lúða, slægð 652,07 Lýsa, óslægð 102,76 Lýsa, slægð 73,00 Skata, slægð 12,07 Tindaskata, óslægð 0,01 Undirmálsýsa, óslægð 103,14 Undirmálsþorskur, óslægður 139,31 Undirmálsþorskur, slægður 83,95

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.