Morgunblaðið - 19.08.2021, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 19.08.2021, Blaðsíða 56
FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 231. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Selfoss vann sinn fyrsta sigur í mánuð er liðið hafði betur gegn Fylki á útivelli í Pepsi Max-deild kvenna í fótbolta í gærkvöldi, 4:3. Brenna Lovera var hetja Sel- foss því hún skoraði þrennu. Sigurinn var sá fyrsti hjá Selfossi síðan liðið vann Keflavík 13. maí síðastliðinn. Með sigrinum fór Selfoss upp í 22 stig og er liðið með jafnmörg stig og Þróttur í þriðja sæti deildarinnar. Fylkir er hins vegar í basli með aðeins tólf stig og í fall- sæti. Fylkir hefur aðeins unnið einn leik af síðustu átta í öllum keppnum. »46 Selfoss vann Fylki í markaleik ÍÞRÓTTIR MENNING Vatnslitahópurinn Flæði opnar sína þriðju samsýningu í Gallerí Grásteini við Skólavörðustíg í dag kl. 15. Flæði er hópur kvenna sem hittast reglulega og mála saman og lærðu allar í Myndlistarskóla Kópavogs hjá Derek Mundell. Konurnar í Flæði eru Elín Fanney Guðmunds- dóttir, Guðrún Steinþórsdóttir, Rósa Traustadóttir, Sesselja Jónsdóttir, Sigríður Ásgeirsdóttir, Svanheiður Ingimundardóttir og Þóra Mínerva Hreiðarsdóttir. Eftir opnunardag verður sýningin opin mánudaga til laugardaga frá 10-18 og á sunnudögum 11-17. Þriðja samsýning vatnslitahópsins Flæðis opnuð í Gallerí Grásteini Hólmfríður María Ragnhildardóttir hmr@mbl.is Í kvöld hefur herferðin WeThe15 göngu sína og til marks um það munu rúmlega 80 fræg kennileiti víða um heim standa upplýst í fjólubláum lit, þar með talið Harpa og Perlan. Nafn herferð- arinnar vísar til þeirra 1,2 millj- arða einstaklinga sem eru með fötl- un, eða um 15% jarðarbúa, og er fjólublái liturinn alþjóðlegur litur fötlunar. Að sögn Þórðar Árna Hjaltested, formanns Íþróttasambands fatlaðra, er markmið herferðarinnar að auka sýnileika fatlaðra einstaklinga og vekja athygli á getu þeirra. Er vonin sú að þetta muni skapa jákvæðari ímynd, draga úr fordómum og auka jafnrétti. Fer verkefnið nú af stað samhliða því að Ólympíumót fatlaðra í Tókýó hefst í næstu viku.Verður herferðin áberandi á mótinu en að sögn Þórðar er þetta tilvalinn vettvangur til að koma skilaboðum herferðarinnar á framfæri til sem flestra. „Þetta byggist á þeirri reynslu sem menn höfðu fengið af Ólympíu- mótinu í London árið 2012. Þar skynjuðu menn ákveðin ruðnings- áhrif. Fatlaðir urðu mjög sýnilegir meðan á mótinu stóð, sem gerði það að verkum að breska þjóðin opnaði arma sína fyrir fötluðum miklu meira en hún hafði áður gert. Eftir mótið var vitund þjóðarinnar um getu fatlaðra til að starfa og vera virkir meðlimir í þjóðfélaginu mun meiri sem gerði það að verkum að fatlaðir áttu auðveldara með að fá vinnu við hæfi og var almennt betur tekið innan samfélagsins,“ segir Þórður. Njóti jafnréttis Herferðin mun halda áfram til ársins 2030 og sækjast talsmenn hennar eftir því að WeThe15 verði stærsta mannréttindahreyfingin sem berst fyrir réttindum fatlaðra. Aðspurður segir Þórður Íslend- inga meðal annars geta verið með með því að deila herferðinni á sam- félagsmiðlum og horfa á mótið. „Það er verið að vinna að því að fatlaðir njóti jafnréttis á við alla aðra menn í öllum samfélögum. Þetta er í raun ákall til hinna 85%. Við hvetj- um alla Íslendinga til að fylgjast með þessari sjónvarpsútsendingu og fylgjast með keppendum hvaðanæva úr heiminum sigra sjálfa sig og fötl- un sína,“ segir Þórður. AFP Tókýó Þórður vonar að Ólympíumótið veki athygli á getu fatlaðra og opni fyrir atvinnumöguleika. Vilja auka vitund fólks um getu fatlaðra - Ólympíumótið kjörin leið til að auka sýnileika fatlaðra Þórður Árni Hjaltested 20% Sparadu- af borðstofu- húsgögnum 12. – 30. Ágúst 20% Sparadu- af öllum borðbúnaði 20% Sparadu- af öllum borðbúnaði RICHMOND BORÐSTOFUBORÐ Olíuborinn eikarspónn. Síldarbeinamynstur. Fætur úr eik. 222 x 95 cm. 129.900 kr. Nú 103.920 kr. 160 x 95 cm. 109.900 kr. Nú 87.920 kr. Ø120 cm. 79.900 kr. Nú 63.920 kr. ILVA Korputorgi Lau. og sun. 12-18 virkir dagar 11-18:30 ILVA Akureyri Lau. 10-17 Sun. 13-17 virkir dagar 11-18 s: 522 4500 - www.ILVA.is 20% Sparadu- af öllum loftljósum LOGINA LOFTLJÓS Reyklitað gler með svörtu eða brass perustæði. Ø18 cm. 8.995 kr. Nú 7.196 kr. Ø27 cm. 12.995 kr. Nú 10.396 kr. # W e T h e 1 5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.