Morgunblaðið - 19.08.2021, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 2021
Sýningareldhús - Draghálsi 4 - 110 Reykjavík - Sími: 535 1300 - verslun@verslun.is T
a
k
ti
k
5
7
3
6
#
Djúpsteikingarpottar
Super Easy línan frá FriFri
Afkastamiklir djúpsteikingarpottar
sem standa á gólfi eða upp á
borði, ef plássið er lítið.
Gæða smíði frá einum stærsta
framleiðanda í Evrópu.Super Easy 422 Super Easy 211
Frifri Frita 652000
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
K
apella við Straumsvík,
Staðarborg á Vatnsleysu-
strönd og Selatangar
vestan við Grindavík. Þrír
staðir suður með sjó eru hér til frá-
sagnar, minjar frá fyrri tíð sem
greinarhöfundur hefur gert sér er-
indi til að skoða að undanförnu.
Grúsk í gömlum ritum leiðir í fram-
haldinu oft til ferðalaga þar sem svör
við einu leiða af sér spurningar um
annað. Svipur landsins er fjöl-
breyttur; náttúran og minjar um
menningu, sögu og lífsbaráttu.
Barbara við Straumsvík
Á hraunruðningi sunnan við ál-
verið í Straumsvík er hlaðið byrgi;
friðlýstar rústir kapellu sem láta lítið
yfir sér. Vegur liggur frá Reykjanes-
braut að hólnum þar sem kapellan
blasir við. Veggir þessa húss voru
endurhlaðnir fyrir margt löngu; en
þekjan sem hvíldi á veggjunum er
löngu fallin. Alfaraleiðin til byggða
og verstöðva á Suðurnesjum lá forð-
um daga nærri kapellunni. Við hana
varð kennt hraunið sem hér rann
seint á 12. öld, segir Jónatan Garð-
arsson útvarpsmaður í pistli á vefn-
um hraunavinir.is.
Sjálf húsatóftin er rúmir tveir
metrar á hvern kant og dyr snúa til
vesturs. Á því herrans ári 1950 rann-
sakaði Kristján Eldjárn, þjóðminja-
vörður og síðar forseti Íslands, rústir
kapellunnar og fann þá brot úr lík-
neski heilagrar Barböru.
„Líkneskið sýnir þá að húsarúst
þessi mun vera síðan fyrir siðaskipti
… Það hefur að líkindum verið kap-
ella þar sem vegfarendur gætu stað-
næmzt til að gera bæn sína,“ segir
Kristján Eldjárn í grein í Árbók
Hins íslenska fornleifafélags árið
1955. Kristján tók fram að líkneski
Barböru sanni ekki fullkomlega að
þarna hafi verið kapella „… en hún
bendir þó til þess að menn hafi haft
þar tilbeiðslu um hönd öðrum stöð-
um fremur,“ eins og þar stendur.
Á degi heilagrar Barböru þótti
gott að heita í háska af eldi, spreng-
ingum og slíku, jafnframt því að vera
verndarvættur hermanna. Í dag er í
kapellurústinni eftirgerð líkneskis
Barböru, en stundum kemur fólk
kaþólskrar trúar til bænagjörðar og
annars slíks á þessum stað, sem
stendur við þjóðbraut þvera.
Hringur á heiði
Á Reykjanesbraut, rétt eftir að
komið er suður fyrir Kúagerði og að
afleggjaranum á Vatnsleysuströnd,
sést Staðarborg, sem er á heiðinni
norðan við veginn. Að borginni er
best að ganga afleggjarann að Kálfa-
tjarnarkirkju, hvar er skilti og skýr-
ar merkingar sem koma fólki á spor-
ið. Leiðin er um 1,5 kílómetrar og
þegar komið inn á heiðina sést borg-
in brátt; hringur sem að utanverðu
er um 35 metrar í ummáli. Tveggja
metra háir veggirnir eru hlaðnir úr
grjóti og ummál hringsins er um 8
metrar.
Staðarborg var friðlýst árið
1951, en ekki er vitað hvenær hún
var hlaðin. Um tilurð hennar er að-
eins til munnmælasaga; sú að Guð-
mundur nokkur hafi hlaðið borgina
fyrir Kálfatjarnarprest, sem hafi þótt
nóg um þegar honum varð ljóst að
fullhlaðið með þekju myndi mann-
virkið gnæfa yfir turn kirkjunnar á
Kálfatjörn. Hafi prestur þá bannað
að haldið yrði áfram, svo Guðmundur
hljóp frá verkinu sem síðan hefur
staðið óhreyft um aldir.
Verstöð við suðurströnd
Selatangar eru gömul verstöð
austan við Grindavík, um þrjá kíló-
metra vestan við minni Geldingadals
þar sem hraunelfur úr Geldinga-
dölum hefur runnið fram í átt að
Suðurstrandarvegi. Frá Selatöngum
var um aldir og alveg fram til ársins
1880 róið til fiskjar á vegum Krýsu-
víkurbónda og Skálholtsbiskups og
þarna standa enn minjar um verbúð-
ir, fiskbyrgi og fiskigarða.
Alls eru þarna rústir um 20
húsa og nokkurra annarra mann-
virkja. Þarna tíðkaðist til dæmis að
þurrka fiskinn; sem síðan var
geymdur til vertíðarloka.
„Fiskverkunin fólst fyrst og
fremst í því að þurrka fiskinn. Fisk-
urinn var breiddur á garða eða möl
og roðið ætíð látið snúa niður á dag-
inn en upp að næturlagi. Sums stað-
ar var fiskur þurrkaður í grjótbyrgj-
um eins og þeim sem eru á
Selatöngum. Birgin voru einnig not-
uð til að geyma fullharðnaðan fisk,“
segir í umfjöllun á vef Minjastofn-
unar Íslands.
Hleðslur Kapellan við Straumsvík, lengst til vinstri, þá Staðarborg á heiði við Vatnsleysuströnd og loks Selatangar, hin yfirgefna verstöð sem er fyrir austan Grindavík. Þaðan var róið um aldir.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Rölt að rústum á Reykjanesskaga
Minjar! Hrundar borgir og veröld sem var. Yfirgefnir
staðir við Straumsvík og víðar segja miklar sögur.
Kapella Eftirgerð líkneskis heilagrar Barböru ásamt ljósluktum er að finna
í tóftum hinnar helgu byggingar sem stendur rétt sunnan við álverið. Sér-
staklega þótti Barbara virka vel sem vernd gegn eldi og sprengingum.
Suður með sjó
Keflavík
Grindavík
Hafnarfjörður
Kapella
Staðarborg
Selatangar
Kleifarvatn
Um sl. helgi var Hamingjumót Víkings
í fótbolta haldið í fyrsta sinn, en það
kom í stað Arionbanka-móts sem
haldið hefyr verið undanfarin 10 ár.
Hluti af þátttökugjaldinu nú, ein millj-
ón króna, rennur til Umhyggju – félags
langveikra barna á Íslandi. „Með
þessu viljum við Víkingar stuðla að
velferð barna, líka þeirra sem ekki
geta tekið þátt í fótboltamótum vegna
veikinda,“ segir í tilkynningu, haft eft-
ir Davíð Ólafssyni mótsstjóra.
Um 1.700 þátttakendur mættu í
Víkina í þrjú hólf þar sem vel var gætt
að öllum sóttvörnum. Takmörkun var á
því hversu margir fullorðnir máttu
vera í hverju hólfi. Slíkt fól í sér tals-
verða áskorun varðandi skipulag.
Mótshaldið gekk þó vel upp, en fram-
kvæmd þess var í höndum foreldra,
sjálboðaliða og fleiri.
Allir þátttakendur fengu verðlauna-
poka við mótslok. Í pokanum voru for-
láta hamingjuverðlaunapeningur,
gjafabréf frá Hamborgarafabrikkunni
og bókin um Berta og þjófóttu mýsnar.
Styrktaraðili mótsins, Zaidoon Al-
Zubaidy, er höfundur bókarinnar sem
fjallar um köttinn Berta, sem getur allt
sem hann vill.
1.700 krakkar kepptu á Víkingsmóti í knattspyrnu
Skemmtilegt hamingjumót og
Umhyggja fékk góðan stuðning
Fótbolti Allir skemmtu sér vel á mótinu og í mótslok var fulltrúum Umhyggju
afhent ávísun á myndarlegan fjárstuðning, sem kemur sér vel.