Morgunblaðið - 19.08.2021, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 19.08.2021, Qupperneq 32
Sonja Sif Þórólfsdóttir sonja@mbl.is MaiaMaia stofnaði hún árið 2017 í eins konar framhjá- hlaupi á meðan hún var að fást við önnur verkefni. Sú lína seldist gríðarvel og fór hún fljótlega að leggja drög að nýrri línu. „En eins og fleiri lentu í tafðist framleiðslan og í raun allt ferlið vegna kórónuveirunnar. Mér fannst vanta þessa tegund fatnaðar hér á Íslandi, eins konar elegant, afslöppuð föt sem hægt er að vera í heima eða úti á meðal fólks, á ensku er þetta kallað „loungewear“,“ seg- ir María. Áður en María hóf að hanna undir merkjum MaiaMaia hafði hún hannað línu sem hét Klukka og var seld í Kiosk fyrir meira en áratug síðan. Í hönnun sinni leggur María fyrst og fremst áherslu á þarfir kvenna. Að flíkurnar séu praktískar, þarfnist ekki mikils viðhalds, séu klæðilegar og end- ingargóðar. „Ég vil að flíkurnar séu klassískar og standist tímans tönn,“ segir María. Fötin sem María hannar er hægt að klæða upp og niður, það er að segja, hægt er að hanga í þeim heima, fara í þeim í vinnuna og poppa þau upp með skartgripum og hælum til að fara út á lífið. „Eitthvað fallegt til að klæðast um leið og maður fer á fætur, en samt verið sætur og fínn. En svo þarf ekkert annað en að bregða á sig varalit og fallegum skóm og maður er tilbúin að taka á móti gestum eða fara út á lífið. Ég legg áherslu á vönduð efni og þægindi. Nútímakon- an á annasaman lífsstíl og leggur mikið upp úr frítíma sínum, það er ekki lengur eitthvað til að skammast sín fyrir að hvíla sig og njóta frí- tímans heima í afslöppuðu umhverfi,“ segir María. Þægindin komin til að vera Heimsfaraldurinn hefur gert það að verkum að fólk ver meiri tíma heima hjá sér. Um tíma þurftu margir einnig að vinna heima og því hefur fatnaður sem er þægilegur komist í tísku. „Það mætti segja að „loungewe- ar“ hafi orðið algengara konsept af því að fólk ver meiri tíma heima hjá sér, breytti sínum lífsstíl og ég held að mikið af því sé komið til að vera. Af hverju ætti maður ekki að viðhafa sama standard fyrir sig þótt maður sé jafnvel einn heima. Klæðnaður er tjáningarform, við klæðum okkur fyrir okkur sjálf og okkar eigin vellíðan,“ segir María. María leggur áherslu á að flíkin geri eins mikið fyrir líkamann og hægt er, að hún dragi fram það besta og því eru form og snið henni hugleikin. Nýju línuna hugsaði hún ekki bara sem sumarlínu eða vetrarlínu, held- ur eru mismun- andi mynstur sem henta hverri árstíð. Mynstrin eru öll í dökkum, ljósum og skærum lit- um og því ættu allir að finna eitthvað við sitt hæfi í línunni. „Klæðnaður er tjáningarform“ Þægilegt María leggur mikið upp úr þægindum. María Björg Sigurðardóttir MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 2021 Í baráttu við COVID-19 býður Donnamaska, grímur og andlitshlífar sem eru gæða vara frá DACH og notuð um allan heim. Vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Covid gríma,þægilegri ogþéttir vel Sími 555 3100 www.donna.is dreifingHeildsölu C-gríma Pandemic Respirator andlitsgríma PORSCHE NOTAÐIR BÍLAR Skoðaðu úrvalið á benni.is Krókhálsi 9 Sími: 590 2000 Virka daga 9 -18 Laugardaga 12 - 16 Upplifðu sanna ökugleði... TMD69 Porsche Panamera 4 E-Hybrid DAA16 Porsche 911 Carrera OGR18 Porsche Cayenne S E-Hybrid THP39 Porsche Cayenne S E-Hybrid Hér er dásamleg bifreið á ferð, allt í senn sportlegur ogelegant! heil-leðraður, næs! Sportpústkerfimeð svörtum stútum,hiti í fram- og aftursætum sem og stýri, panorama glerþak,14 stillinga þæginda- sportsæti svo eitthvað sé nefnt. Geðveikur bíll Verð: 12.990.000 kr. Nýskráður 20.09.2017 | Ekinn 25.000 km. Einstakt tækifæri. Helsti útbúnaður: 19" Carrera S felgur, Sport Chrono pakki, sóllúga, BOSE hljómkerfi, Bi-Xenon aðalljós og að sjálfsögðu, beinskiptur. Glæsilegur og vel hirtur bíll. Verð: 8.490.000 kr. Nýskráður 01.01.2004 | Ekinn 85.000 km. Ljómandi fallegur Cayenne E-Hybrid. Helsti útbúnaður: stillanleg loftpúðafjöðrun, rafdrifinn dráttarkrókur, hiti í framsætum og stýri, litað gler og hugguleg viðarinnrétting til að toppa þetta. Verð: 7.490.000 kr. Nýskráður 20.07.2016 | Ekinn 79.000 km. Lítið ekinn og flottur Cayenne E-Hybrid. Helsti útbúnaður: stillanleg loftpúðafjöðrun, dráttarkrókur rafmagns, hiti í framsætum, lyklalaust aðgengi, skyggðar rúður, fjarlægðarskynjarar og BOSE hljómkerfi svo eitthvað sé nefnt. Verð: 7.490.000 kr. Nýskráður 12.07.2016 | Ekinn 57.000 km. B irt m eð fyrirvara um m ynd - og textab reng l Fatahönnuðurinn María Björg Sigurðardóttir er konan á bak við tískuvöru- merkið MaiaMaia. María sendi nýverið frá sér nýja línu sem samsett er úr fal- legum og klæðilegum flíkum. María hefur síðastliðin ár unnið mest að bún- ingagerð og fatahönnun og starfaði um tíma sem innkaupastjóri í London. Hún stofnaði hönnunarverslunina Kiosk ásamt fleiri íslenskum hönnuðum en þar er fatalína hennar einnig til sölu. Hönnun María stofnaði MaiaMaia árið 2017. Nútímakona Flíkurnar eru hannaðar með þarfir nútíma- kvenna í huga. Árstíðir Litirnir eru fjölbreyttir í línunni og hann- aðir fyrir allar árstíðir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.