Morgunblaðið - 19.08.2021, Qupperneq 50
50 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 2021
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
„Þetta er búið að vera æðislega
spennandi verkefni að glíma við og
það eru skemmtilegir hópar og lista-
menn að stíga á svið,“ segir Viktor
Orri Árnason sem sér um útsetn-
ingar á tónleikunum Nýklassík og
Sinfó þar sem
Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands og
margir af vinsæl-
ustu tónlistar-
mönnum landsins
taka saman hönd-
um. Þar koma
fram GDRN,
Flóni, Bríet, Joey
Christ, Logi
Pedro, Unn-
steinn, JóiPé og
Króli, Cell7 og Reykjavíkurdætur.
Hljómsveitarstjórn er í höndum
Daníels Bjarnasonar.
Fyrstu tónleikarnir verða í Eld-
borg Hörpu í kvöld, fimmtudaginn
19. ágúst kl. 20, aðrir annað kvöld,
föstudaginn 20. ágúst, einnig kl. 20,
og loks aukatónleikar laugardaginn
21. ágúst kl. 17.
Viktor segir mest um þekktari lög
tónlistarmannanna að ræða. Sam-
kvæmt upplýsingum frá Sinfón-
íuhljómsveitinni geta gestir tón-
leikanna til dæmis átt von á því að
heyra lög eins og „Án þín“ með
GDRN, „Ógeðsleg“ með Reykjavík-
urdætrum, „Geimvera“ með JóaPé
og Króla og „Rólegur kúreki“ með
Bríeti. Þó segir Viktor að eitt og eitt
lag verði á dagskránni sem er
kannski minna þekkt og í rólegri
kantinum til þess að „skapa dýna-
mík“. „Við reyndum að búa til ein-
hver ris og vera svo með róleg lög
inni á milli.“
„Mikill hausverkur“
Það er ekki alveg einfalt mál að
útsetja þessi vinsælustu popplög
landsins fyrir sinfóníuhljómsveit.
„Þetta var mikill hausverkur. Hug-
myndin er að koma þessum lögum í
sinfónískan búning og að elektróník
hafi ekkert hlutverk og þannig njóti
sinfónían sín best. Við gerum ráð
fyrir því að það þurfi ekki að magna
sinfóníuna upp,“ útskýrir Viktor.
„En það er hægara sagt en gert, því
söngvararnir verða að vera upp-
magnaðir og því tvístrast aðeins
hljóðheimur þeirra sem heyrast úr
hátölurum og hljómur sinfóníunnar.
Þá verður sjálfkrafa erfiðara að
koma töffaralögunum á framfæri,
eins og til dæmis rapplögunum. Þeg-
ar trommur og grúv kemur inn þá er
það fljótt farið að kæfa niður sinfón-
íuna. Maður verður einhvern veginn
að reyna að laga heildarmyndina,“
segir Viktor. Sumum lögunum sé þó
einfaldara að koma vel til skila, sér-
staklega hljóðlátari lögunum.
Þessi vinsælu popplög ættu, að
sögn Viktors, að vera auðþekkjanleg
þótt þau séu komin í nýjan búning.
„Ég hef haft ágæta reynslu af því að
skrifa fyrir sinfóníuna í poppsam-
hengi og ég ákvað að fara þá leið, vit-
andi hvað hvert lag er æft lítið og að
allir listamennirnir eru óvanir því að
fá svona lítinn tíma til að æfa og hafa
kannski aldrei stigið á svið með sin-
fóníusveit. Ég held mig við þeirra
strúktúr og meginmelódíur. Mér
fannst mikilvægt að áheyrendur
tengi við lögin, því þeir eiga að hafa
gaman.“ Einstaka útsetningar á tón-
leikunum verða þó aðeins út fyrir
kassann, að sögn Viktors.
Töffaralögin koma á óvart
Viktor á í erfiðleikum með að velja
uppáhaldslag á tónleikunum. „Þessi
töffaralög, rapplögin, koma
skemmtilega á óvart, en það er erfitt
að segja, ætli „Án mín“ með GDRN
sé ekki samt uppáhaldslagið mitt í
þessum sinfóníska búningi.“
Fyrsta æfing var á mánudag og
það var einmitt eftir hana sem blaða-
maður náði tali af Viktori. Hann
sagði fyrstu æfinguna hafa gengið
vel en þó hafi komið upp ýmis vanda-
mál sem hafi þurft að tækla, eins og
við megi búast á fyrstu æfingu.
Viktor vinnur náið með Daníel
Bjarnasyni, sem sér um að stjórna
hljómsveitinni en fær aðstoð frá
Viktori úr salnum. Viktor segir að
það sé gott að hafa eyru bæði uppi á
sviði og úti í sal og eiga í samtali þar
á milli. „Það er bara búið að vera
mjög skemmtilegt.“
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Viktor tekur að sér útsetningar sem
þessar. Hann útsetti um það bil
helminginn af lögunum sem voru
flutt þegar Hjaltalín lék með Sinfó.
Hann hefur einnig útsett nokkur lög
fyrir Emilíönu Torrini. „Ég gerði
einu sinni voða flókna útsetningu af
„Hafið er svart“ eftir Jónas Sigurðs-
son og lærði mjög mikið af því. Þeg-
ar maður fer að gera of mikið þá
gefst ekki tími til að slípa til. Maður
þarf að fara varlega, vera ekki að
gera of mikið af tilraunum. Maður
þarf að vera öruggur. Ég er að reka
mig á það líka núna. Það er stundum
aðeins of mikil tilraunamennska í
gangi sem tekur kannski of mikið
pláss frá mikilvægari melódíum.“
Viktor hefur einnig reynslu af því
að gera hljómsveitarútsetningar í
kvikmyndaheiminum fyrir virt tón-
skáld á borð við Hildi Guðna, Jóhann
Jóhannsson, Ólaf Arnalds og hinn
þýska Volker Bertelmann. Hann
segir þó að verkefnið Nýklassík og
Sinfó sé allt annað.
„Þetta er „live“ og þetta er popp.
Það er geðveikt spennandi að glíma
við að koma hugmyndunum til skila
og það með sinfóníuna okkar í aðal-
hlutverki. Sinfónían vill bjóða fólki
að heyra hvernig hún getur hljómað
í svona samhengi. Þetta verður al-
veg æðislega skemmtilegt og ég
vona að þetta sé verkefni sem eng-
inn mun gleyma.“
Nýklassík Vinsælu tónlistarmennirnir Flóni, GDRN, Joey Christ, Bríet, Reykjavíkurdætur, Logi Pedro, Cell7 og JóiPé og Króli auk Unnsteins munu
flytja tónlist sína með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Viktor Orri, sem sér um útsetningar, segir það hafa verið spennandi að glíma við verkefnið.
„Verkefni sem enginn mun gleyma“
- Stórtónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands og margra vinsælustu poppstjarna landsins - Viktor
Orri Árnason, sem sér um útsetningar, segir hægara sagt en gert að koma lögunum í sinfóníubúning
Viktor Orri
Árnason
Sími 557 8866 | www.kjotsmidjan.is | Fossháls 27, 110 Reykjavík
Opnunartími
8:00-16:30
Gerðu vel
við þig og þína
með gæða kjöti
Frábært úrval af
flottum steikum
Tónlistarmað-
urinn Benni
Hemm Hemm og
hljómsveit halda
stuðtónleika á
Kex hosteli í
kvöld kl. 20, að
því er fram kem-
ur á Facebook.
Segir þar að
hljómsveitin sé
búin að fara yfir lagalistann með
stuðgleraugun á nefinu og hafi eim-
að saman 100% gleði og gaman. Er
fólk hvatt til að taka með sér dans-
skóna.
Benni heldur stuð-
tónleika á Kexinu
Benni Hemm Hemm
Myndlistarmað-
urinn Lucas
Bury leiðir gesti
um hin ýmsu úti-
listaverk í Efra-
Breiðholti í
kvöld kl. 20 og
segir frá á
pólsku. Gangan
hefst við verk
Söru Riel,
„Fjöðrina“, sem er á húsgafli við
Asparfell við Mini-Market í Drafn-
arfelli 14. Gestir eru beðnir að
skrá sig áður á vef Listasafns
Reykjavíkur.
Leiðir kvöldgöngu í
Breiðholti á pólsku
Lucas Bury
Bandaríski upptökustjórinn
Chucky Thompson er látinn, 53 ára
að aldri, af völdum Covid-19, að því
er fram kemur í frétt á vef The
New York Times. Thompson kom
að mörgum smellum á ferli sínum
og vann með vinsælum tónlistar-
mönnum á borð við Mary J. Blige
og Notorious B.I.G. „Hugur minn er
alltaf stilltur á upptöku,“ mun hann
eitt sinn hafa sagt í viðtali þegar
hann var spurður hvernig hann
færi að því að sækja innblástur svo
víða að úr heimi tónlistarinnar.
Thompson átti stóran þátt í því
að móta hljóm hipphopp- og R&B-
tónlistar í Bandaríkjunum á tíunda
áratug síðustu aldar og var hann þá
á þrítugsaldri. Vann hann þá fyrir
Bad Bo}y Entertainment, útgáfu-
fyrirtæki Seans „Diddys“ Combs.
Thompson lést á spítala í Los Ang-
eles.
Virtur Chucky Thompson var mikils met-
inn upptökustjóri og áhrifamikill.
Chucky Thompson lést af völdum Covid