Morgunblaðið - 19.08.2021, Blaðsíða 52
52 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. ÁGÚST 2021
Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
Tímapantanir í síma 533 1320
Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla2
Laserlyfting
Náttúruleg andlitslyfting
Byltingarkennd tækni ímeðferð á línum,
hrukkumog slappri húð!
Þéttir
slappa húð
á andliti og
hálsi!
Styrkir húðina og losar þig við hrukkur og slappa
húð á andliti, hálsi, svæði undir höku, bringu og
handarbökum.
Spornar einnig við öldrun húðarinnar
ásamt því að lífga upp á útlit þitt.
F
yrir utan allt það umtalsverða sem
einsöngleikur (söngeinleikur?)
Bjarna Snæbjörnssonar hefur að
segja okkur um líf og áskoranir sam-
kynhneigðs karlmanns á besta aldri í sæluríki
umburðarlyndis og velsældar þá er hann ekki
síður áminning um gildi þess að halda dagbók.
Og nei, facebook-statusar leysa þær ekki af
hólmi. Facebook er ekki trúnaðarvinur. Face-
book dæmir þig. Þó þú getir sennilega rakið
atburðakeðju lífs þíns þokkalega með því að
skruna aftur í tímann á veggnum þínum þá
verður þú sennilega lítils vísari um hvernig var
að vera þú á hinum ýmsu æviskeiðum. Og svo
er hitt: ef Bjarni hefði birt á samfélagsmiðlum
sumt sem hann trúði dagbókunum sínum fyrir
væri hann löngu kominn í bann. Og hefði ekki
getað notað hinar skrásettu upplifanir til að
leita skýringa á taugaáfallinu sem hann fékk,
tuttugu árum eftir að hafa komið út úr skápn-
um, þegar allt virtist leika þvílíkt í lyndi.
Ef einhverjum vaxa dagbókarskrif í augum
þá er rétt að leggja áherslu á að dagbækur eru
ekki bókmenntir. Nema þá óvart. Þær þurfa
ekki að lúta kröfum fagurfræði eða byggingar-
reglugerðum bókmenntafræðinnar. Varla einu
sinni málfræðinnar. Ekki frekar en lífið sem
þær lýsa. Gildi þeirra liggur í varðveislunni og
vitnisburðinum.
Segja má að Góðan daginn faggi endurspegli
þetta óhamda, óformaða eðli efniviðarins. Sag-
an sem Bjarni segir er mestan part línuleg, frá
barnæsku á Tálknafirði, í gegnum tilvistarkrísu
unglingsára með vaknandi vitneskju um kyn-
hneigðina og viðurkenningu á henni. Það er
ekki fyrr en undir lokin sem staldrað er við til
að greina, leggja út af og draga ályktanir, skýra
hvernig stóð á áfallinu óvænta. Frá sjónarhóli
dramatúrgíunnar er sá hluti ekki sérlega vel
undirbyggður og óþarflega knappur, enda má
segja að þar sé komið að kjarna málsins. Á hinn
bóginn er hann augljóslega jafn einlægur og
játningarnar í dagbókunum og þykkum bréf-
unum sem Bjarni skrifaði vinkonum sínum á
unglingsárunum. Og það skiptir á endanum
meira máli.
Afslöppuð einlægnin einkennir líka stíl og
framsetningu sýningarinnar. Rýmið á sviði
Þjóðleikhúskjallarans er látið að mestu óáreitt.
Þar eru einungis „nytjahlutir“, frekar
tilviljanakennt staðsettir: borð fyrir bakpoka,
tvö statíf til að stilla upp bókum og pappírum.
Eins hef ég á tilfinningunni að verkefni Grétu
Kristínar Ómarsdóttur leikstjóra hafi fyrst og
fremst verið að skapa öryggi og traust fyrir
Bjarna til að segja sína sögu, frekar en að móta
hana og stýra. Hárrétt nálgun auðvitað og
hleypir áhorfendum enn nær persónunni sem
Bjarni afhjúpar fyrir okkur af örlæti, orku og
tæknilegri fimi.
Lengst af er áhersla Bjarna og samstarfs-
fólks hans samt á skemmtun. Vitaskuld, þetta
er jú söngleikur. Það er uppistandsbragur á
upphafinu, sem helst áfram inn í æviágripið og
undirstrikast enn frekar af flestum tónlistar-
atriðunum, þó einlægni og sjálfsskoðun bregði
þar fyrir líka. Lög Axels Inga Árnasonar eru
framúrskarandi smíðar, kirfilega innan söng-
leikjahefðarinnar án þess að virka sem skop-
stælingar. Textarnir eru glúrnir og rímuð
„pönsin“ hitta iðulega beint í mark. Flutning-
urinn stórglæsilegur. Eftirminnilegur er laga-
bálkur sem dregur upp morðfyndnar myndir af
nokkrum staðalmyndum hommans, sem við
gætum þess vegna kallað „skápa“, sem þeim er
stillt út í, af umhverfinu og sennilega líka sínu
eigin samfélagi. Smekklegi Epalhomminn,
hommavinur stelpnanna, lausláti djammarinn
og júróvisjónlúðinn fá hver sín erindi og vægð-
arlausa útmálun.
Annað leiðarstef, sem hefði að ósekju mátt fá
meira andrými og athygli, er sú krafa sem hvíl-
ir sennilega að einhverju leyti á öllum hommum
en kannski þyngst á Bjarna og starfsbræðrum
hans: að geta virkað „streit“ á sviði og annars
staðar. Drepfyndin var endurgerð þeirra Axels
á auglýsingu sem Bjarni lék í, en þótti of
„mjúkur“ og var á endanum skipt út fyrir sér
„harðari“ leikara. Drepfyndin og sorgleg, eins
og fleiri árekstrar hans við hið gagnkynhneigða
norm sem alls staðar er og alls staðar ríkir.
Umburðarlyndi er vissulega gott, en það fel-
ur auðvitað í sér að eitthvað þurfi að „umbera“.
Og að þurfa að umbera sjálfan sig getur auð-
veldlega endað í taugaáfalli úti í hrauni, hvað
sem öllum gleðigöngum og lagaumbótum líður.
Fyrir utan að vera bráðskemmtileg kvöldstund
yfir drykk á fornfrægum skemmtistað tekst
Góðan daginn faggi að minna okkur á þetta og
vonandi hrista smá upp í frjálslyndri sjálfs-
ánægjunni.
Brosa, jákvæðni …
Beint í mark „Textarnir eru glúrnir og rímuð „pönsin“ hitta iðulega beint í mark,“ skrifar rýnir m.a. um einleikinn Góðan daginn faggi.
Þjóðleikhúskjallarinn
Góðan daginn faggi bbbbn
Eftir Bjarna Snæbjörnsson og Grétu Kristínu Óm-
arsdóttur. Leikstjórn: Gréta Kristín Ómarsdóttir.
Tónlist: Axel Ingi Árnason. Sviðshreyfingar: Came-
ron Corbett. Lýsing: Jóhann Friðrik Ágústsson.
Stílisti: Eva Signý Berger. Leikari: Bjarni Snæ-
björnsson. Rýnt í fyrstu sýningu í Þjóðleikhúskjall-
aranum föstudaginn 13. ágúst 2021.
ÞORGEIR
TRYGGVASON
LEIKLIST
Kanadíski tónlistarmaðurinn The
Weeknd, réttu nafni Abel Makkon-
en Tesfaye, sló í vikunni met á
bandaríska lagalistanum, Billboard
Hot 100, en þá hafði lag hans
„Blinding Lights“ verið 88 vikur á
listanum en það var gefið út í nóv-
ember árið 2019. Hefur ekkert lag
því verið jafnlengi á lista yfir þau
100 vinsælustu í Bandaríkjunum.
Fyrra met átti rokksveitin Imagine
Dragons en lag hennar „Radio-
active“ var samfellt 87 vikur á lista
frá árinu 2012 til 2014.
Lag Weeknds er af breiðskífu
hans After Hours og náði fyrsta
sæti bandaríska lagalistans í apríl
árið 2020. Það situr nú í 18. sæti og
allar líkur á því að það verði á lista
yfir 100 vinsælustu lögin einhverjar
vikur til viðbótar.
Lagið hefur einnig notið mikilla
vinsælda í Bretlandi og hefur nú
verið á lista þar í 89 vikur, þar af
átta vikur í fyrsta sæti.
Vinsæll Tónlistarmaðurinn The Weeknd.
Weeknd slær bandarískt lagalistamet
Boðið verður upp á leiðsögn lista-
manna um sýninguna Iðavöllur í
Listasafni Reykjavíkur í Hafn-
arhúsi í kvöld kl. 20. Eru það lista-
mennirnir Anna Rún Tryggvadóttir
og Styrmir Örn Guðmundsson sem
segja gestum frá sýningunni en
bæði eiga verk á henni.
Nauðsynlegt er að skrá sig í leið-
sögnina á vef safnsins og gildir að-
göngumiði í safnið á hana en hand-
hafar árskorts safnsins og
Menningarkorts Reykjavíkur fá
frítt inn. Athygli er vakin á því að
gengið er inn í safnið frá portinu
milli Hafnarhúss
og Tollhúss.
Í sýningunni
Iðavellir koma
saman fjórtán
öflugir listamenn
sem hafa um-
breytt sýning-
arsölum og fleiri
rýmum hússins
með verkum sín-
um og sjónum
beint að þeirri grósku sem einkenn-
ir íslenska myndlistarsenu, eins og
segir í tilkynningu frá safninu.
Anna Rún og Styrmir veita leiðsögn
Anna Rún Tryggva-
dóttir