Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2014, Qupperneq 3
Kæru þátttakendur í Hinsegin dögum
Ég á minningu um að hafa verið á gangi í Lækjargötunni
og verið litið upp þegar nokkur „jibbí“ bárust ofan úr
Bernhöftstorfubrekkunni handan götunnar. Þessi fagnaðarhljóð
áttu sér upptök í fámennri samkomu þar á brekkubrúninni, litlum
hópi fólks sem hélt á sjö blöðrum, einum regnbogalitum fána og
tauborðum sem mig minnir að á hafi verið letrað: „Gay Pride“ og
„Samtökin 78“. Þetta voru, sem sagt, nokkrir hommar og lesbíur
að halda upp á alþjóðlegan baráttudag samkynhneigðra um leið
og þau minntu á að í þeirra eigin landi vantaði mikið upp á að þau
nytu sömu réttinda og aðrir borgarar. Og það gerðu þau með því að
gleðjast saman fyrir allra augum.
Ég man að ég hugsaði með mér: „Gott hjá þeim!“
Svo hélt ég áfram göngu minni ...
En saga baráttu samkynhneigðra, tvíkynhneigðra og transfólks
er náttúrlega ekki ein samfelld gleðistund, það er langt í frá. Sjálfur
er ég er nógu gamall til að hafa lifað þá tíma að sjálfsagt þótti
að sýna þeim algjöra fyrirlitningu sem ekki fæddust með þá einu
kynhneigð sem samfélagið kallaði eðlilega. Óréttlætið var bundið í
landslög, andúðin var landlæg og þeir sem þjáðust fyrir útskúfunina
gerðu það einir og afskiptir eða flúðu land og stundum lífið sjálft.
Þetta voru vondir tímar fyrir íslenska þjóð; hún vaknaði ekki heil til
verka, lagðist ekki sátt til hvílu ...
Þegar litið er til þess hversu hlutskipti hinna forsmáðu var
ömurlegt er sú baráttuaðferð að stíga stolt fram í dagsljósið og
bjóða meðborgurum sínum til gleðistundar yfir því „að vera það
sem maður er“ þeim mun merkilegri. Það er hin hugrakka leið þess
sáttfúsa, glaðbeitt ákall um að við játum að ekkert okkar á val um
það hvernig við fæðumst í þennan heim, að öll eigum við skilið að
fá tækifæri til að lifa til fulls þá stuttu stund sem jarðvistin er, með
hverjum þeim gáfum og skavönkum sem við fáum í vöggugjöf.
Það er hin milda leið mennskunnar í allri sinni „hinsegin“ fjölbreytni
andspænis einstrengingshætti grimmdarinnar.
Barátta hinsegin fólks á Íslandi fyrir rétti sínum hefur verið
mikil gjöf fyrir okkar litla samfélag. Okkur var öllum boðið að taka
þátt í því að láta af rótgrónum fordómum, að breyta rétt og af
sanngirni, að standa saman um velferð hvers annars. Við lærðum
merkingu orðsins „mannréttindi“. Og í þakkarskyni fyrir þann góða
lærdóm eigum við að gera þá kröfu til þeirra íslensku ráðamanna
sem fara með mál okkar á alþjóðavettvangi að þeir beiti sér fyrir
því að hin fjölmörgu lönd sem enn misbjóða samkynhneigðum,
tvíkynhneigðum og transfólki meðal þegna sinna taki sér Ísland til
fyrirmyndar. Við vitum að það mun færa þeim gleði.
Sem ungt skáld leitaði ég víða að áhrifum og innblæstri. Ég
var svo heppinn að meðal þeirra sem voru til staðar í bókahillum
verslana og safna voru hinsegin rithöfundar og bækur um hinsegin
listamenn. Og þá eru ónefndir allir tónlistarmennirnir sem heilluðu.
Þau voru ögrandi í því sem þau sögðu frá og sýndu – veruleiki
líkama og huga stækkaði í óvæntri fegurð – og þetta varð mér
mikilvægt veganesti sem höfundur og manneskja.
Já, það var orðhagur maður sem smíðaði orðið „gleðiganga“
upp úr enska gönguslagorðinu „Gay Pride“. Því fátt er fallegra en
að vera glaður, fátt eftirsóknarverðara en að hafa yfir einhverju að
gleðjast og ekkert yndislegra en að hrífast með í gleði og upplifa
gleðistund með öðrum. „Jibbíin“ fáeinu sem sytruðu eins og
klingjandi lækjarspræna niður Bernhöftstorfubrekkuna fyrir öllum
þessum árum hafa aukist að vöxtum og eru nú orðin að miklum
fagnaðarlátum og hinsegin menningarhátíð, að máttugu fljóti,
nærandi og frjósömu.
Gleðilega Hinsegin daga ...
Hin ögrandi gleði
Sjón
Lj
ós
m
yn
d:
D
ag
ur
G
un
na
rs
so
n
F plús fjölskyldutrygging nær til allra fjölskyldugerða
og er hreint ótrúlega víðtæk. Í F plús er meðal
annars heimilistrygging, slysatrygging í frítíma,
farangurstrygging og ferðarofstrygging.
Kynntu þér kosti F plús og tryggðu öryggi
fjölskyldu þinnar.
Gleðjumst saman örugg og áhyggjulaus.
VÍS – þar sem tryggingar snúast um fólk.
Knús á ykkur öll!
VÍS | ÁRMÚLA 3 | 108 REYKJAVÍK | SÍMI 560 5000 | VIS.IS
VÍS ÓSKAR HINSEGIN FÓLKI TIL HAMINGJU MEÐ HINSEGIN DAGA
4