Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2014, Síða 14
„Tíminn flýgur áfram og hann teymir mig
á eftir sér,“ söng Megas í laginu „Tvær
stjörnur“ forðum daga. Það er óhætt að segja
að þessar línur megi heimfæra upp á tilveru
Samtakanna ´78, enda er sjálfboðastarf að
mannréttindamálum tímafrekt og krefjandi og
af nægu er að taka – bæði góðu og slæmu.
Hér að neðan er stiklað á stóru yfir
viðburði og atburði sem bar á góma í lífi
félagsins á milli aðalfunda áranna 2013
og 2014. Listinn er ekki tæmandi en gefur
ágætis innsýn í það hvernig 12 mánuðir í starfi
að mannréttindum hinsegin fólks geta litið út.
Samtökin ‘78 berjast fyrir réttindum, virðingu,
menningu og lífshamingju hinsegin fólks
(lesbía, homma, tvíkynhneigðra, trans- og
intersex fólks). Þau hafa nú starfað í rúm 36
ár og telja um 1000 félaga. Samtökin veita
hinsegin fólki og almenningi margs konar
þjónustu í formi ráðgjafar og stuðnings,
Samtökin ´78:
Ár í lífi mannréttindafélags
9. mars Ísland / Aðalfundur
Samtakanna ´78
Anna Pála Sverrisdóttir tekur
við formennsku af Guðmundi
Helgasyni.
11. júlí Ísland / Tillaga
borgarstjóra um að slíta
samskiptum við Moskvu
Síðar er fallið frá tillögunni
og Rússum þess í stað boðið
til samstarfs um mannréttindi
hinsegin fólks.
4. ágúst Ísland /
Ljósmyndasýningin „Hin
fyrstu ár“ opnuð í húsnæði
Samtakanna ‘78
8. ágúst Ísland /
Mannréttindaviðurkenning
Samtakanna ‘78 afhent
Bandaríska sendiráðið, Jón Gnarr
borgarstjóri og Hrafnhildur
Gunnarsdóttir, fyrrum formaður
félagsins, hljóta viðurkenningu
ársins.
10. ágúst Ísland / Ungliðar halda
fjölmennt ungmennaball
24. ágúst Ísland / „Sjúddírarí
GAY“ – Opið hús á
Menningarnótt
3. september Ísland / Alþjóðleg
mótmæli við rússneska
sendiráðið
28. september Ísland /
Mannréttindahátíðin „Glæstar
vonir“ í Laugardalnum
3. október Ísland /
Þingsályktunartillaga um skipun
nefndar um hinsegin málefni
Þingkonurnar Katrín Jakobsdóttir,
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir,
Svandís Svavarsdóttir og Oddný G.
Harðardóttir leggja fram tillöguna.
24.–27. október Króatía /
Ársþing ILGA Europe í Zagreb
Áframhaldandi áhersla á alþjóðlegt
samstarf. Samtökin senda fulltrúa
á þingið.
20. nóvember Ísland /
Alþjóðlegur minningardagur
transfólks
Trans-Ísland og Samtökin ´78
halda minningarstund í Fríkirkjunni
í Reykjavík með borgarstjóra
og kaffisamsæti í Regnbogasal
Samtakanna.
6. desember Ísland / Jólabingó
Samtakanna ´78 í Vinabæ
12. desember Ísland /
Aðventukvöld Samtakanna ´78 í
Regnbogasalnum
20. desember Úganda /
Refsingar við samkynhneigð
hertar í Úganda
23. desember Ísland /
Þorláksmessufögnuður í
Regnbogasalnum
28. desember Ísland / Jóla- og
áramótaball Samtakanna ‘78 á
Kiki Queer Bar
21. janúar Ísland / Opinn
fundur um hinsegin
ættleiðingar
29. janúar Ísland / Transfólki
í fyrsta skipti tryggð vernd í
hegningarlögum
Breytingar á hegningarlögum taka
gildi. Orðinu „kynvitund“ bætt inn í
180. og 233. grein laganna.
4. febrúar Ísland / Mennta- og
menningarmálaráðherra afhent
kveðjugjöf
Samtökin ‘78 og Hinsegin
dagar í Reykjavík afhenda Illuga
Gunnarssyni kveðjugjöf fyrir för
hans á Vetrarólympíuleikana í
Sochi. Síðar birtast myndir af
Illuga á setningarathöfninni með
regnbogatrefil.
14. febrúar Ísland / Forseti
segir Ólympíuleikana
íþróttahátíð, ekki pólitíska
hátíð
Forseti Íslands segist ekki hafa
verið í aðstöðu til að ræða
málefni hinsegin fólks við
Rússlandsforseta í heimsókn sinni
á Ólympíuleikana. Forseti fundar
engu að síður með fjölmörgum
ráðamönnum um ýmis málefni.
7.–23. febrúar Rússland /
Vetrarólympíuleikarnir í Sochi
Fréttir um aukin
mannréttindabrot og ofbeldi
gegn hinsegin fólki.
6. mars Ísland / Risatónleikar
í Hörpu
Samtökin ´78 og Íslandsdeild
Amnesty International halda
tónleika til stuðnings hinsegin
fólki í Úganda. Fjöldi vinsælla
listamanna kom fram.
13. mars Ísland / Kate
Bornstein í heimsókn hjá
Samtökunum ´78
Hin vel þekkta transkona og
aktívisti slær í gegn á opnu húsi
félagsins.
14. mars Ísland / Ráðist á
ungan homma og hann atyrtur
vegna kynhneigðar
Ofbeldið á sér stað á Austurvelli.
Lögregla mætir ekki á staðinn.
22. mars Ísland / Aðalfundur
Samtakanna ´78
Hilmar Magnússon tekur við
formennsku af Önnu Pálu
Sverrisdóttur.
Tímalína
2013
2014
fræðslu, menningarviðburða og tengslanets
og auðvitað réttindabaráttu – árið um kring.
Þau hafa einungis tvo fasta starfsmenn í hálfu
starfi en reiða sig þar fyrir utan á velviljaða
sjálfboðaliða og velunnara.
Þú getur stutt okkar starf með ýmsum hætti.
Þú getur til dæmis gengið í félagið og greitt
félagsgjöld – en aðild er opin öllum sem vilja
styðja málstaðinn, óháð kynhneigð, kynvitund
eða kyntjáningu. Frjáls fjárframlög og/eða
vinnufúsar hendur eru líka vel þegnar, sem og
auðvitað góðar hugsanir. Kíktu í heimsókn til okkar,
sendu okkur póst eða hringdu. Við tökum vel á
móti þér.
Þinn stuðningur skiptir máli!
Mars Apríl Maí Júní Júlí Ágúst September Október Nóvember Desember Janúar Febrúar Febrúar Mars
18. apríl Ísland / Hinsegin
Alþingi
Stjórnmálafundur Samtakanna ´78
með frambjóðendum til Alþingis.
23. apríl Ísland / Kasha
Nabagesera í heimsókn í boði
Amnesty International
Heimsóknin verður kveikjan að
samstarfi Samtakanna ´78 og
FARUG í Úganda.
1. júní Ísland /
Samtakamátturinn og hinsegin
menningarhátíð
Samtökin ´78 halda fund undir
heitinu „Samtakamátturinn –
þjóðfundur hinsegin fólks“. Hinsegin
menningarhátíð á Hótel Borg.
7. júní Ísland / Samtökin ´78
skora á innanríkisráðherra að
hætta við að senda nígerískan
hælisleitanda aftur til Ítalíu.
11. júní Rússland / Þingið
glæpavæðir tilveru hinsegin
fólks
15. júní Ísland / Ráðgjöf
Samtakanna ´78 fær bókagjöf
Gestir Hinsegin menningarhátíðar
söfnuðu fyrir gjöfinni.
14. júní Ísland / „Allt í sleik!“ við
rússneska sendiráðið
Fjölmenn mótmæli Samtakanna
´78.
17.–19. júní Serbía / Ráðstefna
um stöðu hinsegin fólks í
umsóknarríkjum ESB
Samtökin ´78, Q–félag hinsegin
stúdenta, Styrmir og Háskóli
Íslands taka þátt.
16. maí Ísland / Sendiráð
Bandaríkjanna sýnir How To
Survive A Plague
Myndin var sýnd í tilefni IDAHO
2013.
17. maí
Ísland / IDAHO – Alvadagur
gegn hómó-, bi- og transfóbíu
Samtökin ´78 draga regnbogafána
að húni ásamt mennta- og
menningarmálaráðherra,
sveitarfélögum og stofnunum víða
um land.
17. maí Evrópusambandið /
„Regnbogakort“ ILGA Europe
kynnt
24. febrúar Úganda / Forsetinn
staðfestir hertar refsingar við
samkynhneigð
24. febrúar Ísland /
Þingsályktunartillaga um að
fordæma lög í Úganda
24. febrúar Ísland /
Utanríkisráðherra harmar ný
lög í Úganda
27. febrúar Ísland / Félagar í
Samtökunum ´78 samþykkja
flutninga
Félagsfundur samþykkir formlega
að Samtökin ‘78 flytji í nýtt
húsnæði að Suðurgötu 3.
27. febrúar Ísland / Call Me
Kuchu sýnd í Bíó Paradís
28. febrúar Ísland /
Utanríkisráðherra fordæmir ný
lög í Úganda
Samtökin ´78 | Suðurgötu 3, 101 Reykjavík | s: 552-7878 | skrifstofa@samtokin78.is | samtokin78.is
ATH. nýtt heimilisfang
26 27