Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2014, Side 15
Þegar gleðiganga Hinsegin daga kemur á áfangastað laugardaginn
9. ágúst hefst hin árlega regnbogahátíð við Arnarhól. Þar koma
fram glæsilegir skemmtikraftar og litríkar hljómsveitir til að fagna
fjölbreytileika hátíðarinnar með gleði og söng á einni fjölsóttustu
útiskemmtun Íslands, þar sem allir eru velkomnir og allir eiga að
syngja með. Fram koma meðal annars Sigga Beinteins, Páll Óskar,
Felix Bergsson, Lay Low og Kimono.
Árlega mæta allt að 90 þúsund Íslendingar og aðrir gestir á
hólinn, ásamt fastagestinum Ingólfi Arnarsyni sem í ár skartar sínu
fegursta á forsíðu dagskrárrits Hinsegin daga. Hinsegin dagar
bjóða okkar íslensku þjóð og erlenda gesti velkomin á Arnarhól
laugardaginn 9. ágúst að lokinni gleðigöngunni um miðborgina.
Once the Pride Parade has run its course on Saturday 9 August,
an outdoor show will take place at Arnarhóll in Lækjargata.
Performers include well-known Icelandic singers, bands and
entertainers. The Arnarhóll concert has in recent years been the
biggest outdoor event in Reykjavík, with up to 90.000 guests.
We invite both Icelandic and foreign Pride participants to join
us for an afternoon of song and spectacle.
Regnbogahátíð við Arnarhól
Rainbow Concert by Arnarhóll hill