Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2021, Blaðsíða 30

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2021, Blaðsíða 30
Gleðig Frá Hallgrímskirkju, laugardaginn 7. ágúst kl. 14:00. Gleðigangan er hápunktur Hinsegin daga. Í henni sameinast lesbíur, hommar, tví- og pankynhneigðir, trans fólk, intersex fólk og aðrir hinsegin einstaklingar í einum hópi með fjölskyldum sínum og vinum til að staðfesta tilveru sína, sýnileika og gleði, ásamt því að minna á þau baráttumál sem skipta hvað mestu máli hverju sinni. Hinsegin dagar skipuleggja gleðigönguna en atriðin sjálf eru sprottin úr grasrótinni og einstaklingar og hópar geta skipulagt atriði og sótt um þátttöku í göngunni. Hinsegin dagar stýra hvaða atriði fá aðgang að henni en skilyrði er að þau miðli skýrum skilaboðum sem varða veruleika hinsegin fólks á einn eða annan hátt. Gönguleið Gangan leggur af stað frá Hallgrímskirkju stundvíslega kl. 14:00 og bíður ekki eftir neinum. Gengið verður eftir Skólavörðustíg, Bankastræti, Lækjargötu, Fríkirkjuvegi og endað á Sóleyjargötu við Hljómskálagarðinn þar sem taka við glæsilegir útitónleikar að göngu lokinni. Skráning og þátttaka Þátttakendur sem ætla að vera með atriði í gleðigöngunni skulu sækja um eigi síðar en 2. ágúst á heimasíðu Hinsegin daga www.hinsegindagar.is/gledigangan. Nánari upplýsingar um gönguna veitir göngustjórn (gongustjorn@ hinsegindagar.is). Athugið að ekki er hægt að veita fólki með atriði aðgang að göngunni nema rafræna umsóknin hafi verið fyllt út og send og skilmálar samþykktir. Hinsegin dagar leggja áherslu á að þeir sem vilja ganga með, en hafa ekki sótt um þátttöku og eru ekki með sérstakt atriði, bíði með að slást í hópinn þar til síðasti vagninn hefur farið framhjá. Gleðigöngupotturinn Með samstarfssamningi Hinsegin daga og Landsbankans varð til sérstakur styrktarpottur gleðigöngunnar. Pottinum er ætlað að styrkja einstaklinga og hópa til þátttöku í gleðigöngunni og þannig m.a. aðstoða þátttakendur við að standa straum af kostnaði við hönnun atriða, leigu ökutækja, efniskaup o.fl. Dómnefnd velur styrkþega úr innsendum umsóknum og úthlutar styrkjum með það að markmiði að styðja framúrskarandi hugmyndir til framkvæmda. Miðað er við að fjárhæðir styrkja úr Gleðigöngupottinum séu á bilinu 100.000–500.000 kr. The Pride P From Hallgrímskirkja church, Saturday August 7th at 2 p.m. 30
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.