Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2021, Blaðsíða 31
g
P
angan
Dómnefndin hefur heimild til að halda
eftir að hámarki 200.000 kr. til veitingar
hvatningarverðlauna að hátíð lokinni.
Þar með hafa allir styrkir og verðlaun
Hinsegin daga verið færð undir einn hatt
og því er ekki hægt að sækja um aðra
styrki eða endurgreiðslu kostnaðar vegna
þátttöku í gleðigöngu Hinsegin daga.
Auglýst var eftir umsóknum í byrjun
júlí og umsóknarfrestur rann út 16. júlí.
Áhugasamir þátttakendur eru hvattir til
að fylgjast með og sækja um á næsta ári.
Sjá nánar á hinsegindagar.is/styrkir.
The Pride Parade
Groups that wish to participate in the
parade must apply to Reykjavik Pride
before August 2nd by filling out a form
on the website, www.reykjavikpride.is.
For further information about the parade
please contact the parade managers Eva
and Anna at gongustjorn@hinsegindagar.
is. The parade starts at 2 p.m. sharp and
goes from Hallgrímskirkja church, down
Skólavörðustígur, Bankastræti, Lækjargata,
and Fríkirkjuvegur. The parade concludes
at Sóleyjargata, near Hljómskálagarður,
where an outdoor concert takes place.
Að gefnu tilefni minnum við á að ófiðraðir
steggir og fjaðralausar gæsir eru ekki
velkomin í gleðigöngu Hinsegin daga.
Við göngum í þágu mannréttinda og
mannvirðingar og biðjum gæsa- og
steggjapartí vinsamlegast að virða það og
finna sér annan vettvang.
Auglýsingar bannaðar
Hinsegin dagar eru stoltir af því að
gleðigangan í Reykjavík er ein af fáum
sambærilegum göngum í heiminum þar
sem auglýsingar fyrirtækja og þjónustu
eru óheimilar. Með auglýsingabanninu
er undirstrikað að gangan er
grasrótarviðburður og þátttakendur taka
þátt til að styðja baráttuna og málstaðinn
en ekki til að styrkja eða auglýsa fyrirtæki.
Í örfáum undantekningartilvikum
eru auglýsingar heimilar en þá þarf
að sækja sérstaklega um undanþágu
til göngustjórnar. Athugið að allar
ósamþykktar auglýsingar á bílum og
fatnaði þarf að hylja áður en gangan fer
af stað. Brot á þessum reglum verður
til þess að atriði er hafnað eða vísað úr
göngunni.
arade
31