Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2021, Blaðsíða 66

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2021, Blaðsíða 66
STÆRSTA HÁTÍÐIN Í KÖBEN OG MALMÖ World Pride er haldið á tveggja ára fresti og í ágúst er komið að Kaupmannahöfn og Malmö, sem sameinast sem gestgjafar. InterPride, alþjóðleg samtök hinsegin hátíða, hefur skipulagt World Pride frá árinu 2000 og fyrri hátíðir hafa verið í New York, Madrid, Toronto, London, Jerúsalem og Róm. World Pride í New York var langstærsti viðburðurinn til þessa og þar var þess minnst að 50 ár voru liðin frá Stonewall-uppreisninni. Engar líkur eru á að Kaupmannahöfn og Malmö nái slíkri hátíðarstærð, í heimi sem enn er plagaður af heimsfaraldri, en World Pride mun samt sem áður tryggja miklu fleiri viðburði í borgunum tveimur en annars hefðu verið. World Pride hátíðarhöldin fara fram undir heitinu Copenhagen 2021, þótt haldin séu í tveimur borgum í tveimur löndum. Það verða tónleikar, drag, Ráðhústorgið í Kaupmannahöfn breytist í World Pride torg með veitingum og tónlist, 6 gleðigöngur hlykkjast um Kaupmannahöfn laugardaginn 21. ágúst, hinum megin við sundið býður Malmö upp á World Pride House með fyrirlestrum, kappræðum og skemmtun og svona mætti lengi telja. Allar nánari upplýsingar um dagskrá er að finna á copenhagen2021.com Það er óhætt að mæla með ferðalagi til Dana og Svía 12.-22. ágúst og fagna fjölbreytninni! Íslendingar koma víða við sögu á Copenhagen 2021: Ragnhildur Sverrisdóttir, hún, 60 ára Forseti Íslands, verndari Samtakanna ‘78, ávarpar sérstakan fund yfir 150 kjörinna fulltrúa frá tæplega 60 löndum í öllum heimshornum í Kristjánsborgarhöll föstudaginn 20. ágúst. Danska þingið býður til fundarins og hefur kallað til t.d. þingmenn þjóðþinga, Evrópuþingsins og ýmissa mannréttindasamtaka. Í hópi þeirra sem sækja þingið eru margir hinsegin þingmenn, þar á meðal Hanna Katrín Friðriksson frá Íslandi, en allir þingmennirnir eiga það sameiginlegt að hafa sýnt hinsegin málefnum áhuga og stuðning. ÖRVIÐTAL Nafn, fornafn, aldur? Arna Arinbjarnardóttir, hún, 34 ára. Hver er þín fyrsta hinsegin minning? 1995 hitti ég lesbíur í fyrsta sinn á Spáni. Við vorum að heimsækja vinkonu mömmu sem bjó með kærustunni sinni og ég man hvað mér fannst þetta meika mikið sens. Hver er þín helsta hinsegin fyrirmynd? Hinsegin krakkar á aldrinum 12/13/14 ára eða jafnvel yngri sem eru að uppgötva hinseginleikann sinn og tala um það sín á milli og við foreldra sína. Hvað gleymdist að segja þér þegar þú varst ungmenni? Að það væri ekkert að því að vera lesbía og það væri fullkomlega eðlilegt að vita að man sé lesbía 13 ára.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.