Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2021, Page 34

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2021, Page 34
„Ég hélt að ég vissi hver Lola væri, en hún breyttist og myndaðist sjálf með hverri framkomu. Hún átti að vera einhvers konar andstæða við mig en hún varð meiri spegilmynd eða framlenging af sjálfri mér heldur en eitthvað annað,“ segir Oddný og segir að í Lolu búi eitthvað alveg sérstakt sjálfstraust. „Hún veit hvað hún er að gera, og hún er toppurinn, alltaf. Lola hefur líka þennan eiginleika að geta „gert hvað sem er“. Hún hefur gert atriði sem rista djúpt og neyða áhorfandann til að líta inn á við, en hún gerir líka atriði sem eru bara gerð til að vera fyndin.“ En Lola er ekki staðnað íkon á arinhillu heldur tekur, eins og Oddný sjálf, stöðugum breytingum, þroskast og þróast. „Líkt og ég hefur Lola farið í gegnum mörg „tímabil“ útlitslega séð, en það er eiginlega það sem mér finnst skemmtilegast, að fólk viti ekki við hverju það eigi að búast. Mér finnst erfitt að lýsa henni því hún breytist stanslaust. En grunnurinn hennar breytist aldrei; hún er hávær, sterk og máttug. Það er ekkert að fara stoppa hana, því hún er með fullkomið sjálfstraust og fyrir mér er hún bara that bitch.“ Lola hefur blásið fleirum dragdrauma í brjóst og er hún sjálf svokölluð drag- mamma. „Ég er svo stolt af „Haus of Heart“, sem er hópur af mínum nánustu vinum innan dragsenunnar. Þau eiga öll mjög sérstakan stað í mínu hjarta. Þau gera mig betri og leyfa mér virkilega að sýna mínar bestu hliðar.“ Hópurinn er Oddnýju mjög mikilvægur enda er samstaðan, stuðningurinn og þessi tilfinning um að tilheyra, eitthvað sem skiptir höfuðmáli. Dragið og samfélagið/fordómar Það var ákveðið ferli fyrir Oddnýju að sleppa tökum á eigin fordómum fyrir því að vera kona í drottningardragi, en þegar hún hafi svo ákveðið að þetta væri í lagi hafi frelsistilfinningin aukist til muna. „Um leið og ég fór „all in“ og hélt bara áfram, leyfði engum að segja mér annað, vegna þess að á þessum tíma hafði sjálfur RuPaul sagt að konur ættu ekki að vera í dragi, þá fór réttlætiskenndin mín í botn og ég talaði á móti þessum ummælum í öðru show-inu mínu.“ Oddný segir að fordómarnir séu því miður víðs vegar og fólk í dragi, hvort sem um ræðir konur, karla, kvár og/eða trans, mæti fordómum í samfélaginu. Sjálf hefur hún misst af tækifærum, sýningum, viðtölum og fleiru sem henni hefur boðist þegar hún er Lola „en þegar kom að því sáu þau auðvitað að ég er stelpa svo það var tekið til baka“. Oddný hefur þó ekki látið þetta stoppa sig, heldur haldið ótrauð áfram og skapað sér sín eigin tækifæri. Hvað er það við dragið? Það getur verið erfitt, sérstaklega fyrir hinsegin fólk og fólk sem tilheyrir jaðarhópum, að finna öryggi í sjálfum sér. Oddný þekkir þetta sjálf og hefur t.a.m. átt erfitt með að tala fyrir framan aðra. Dragið gefur henni frelsi til að takast á við þann veruleika. „Ég er með rosalegan félagskvíða og hef ekki meikað nokkurs konar framkomu, en þegar kemur að dragi þá er ég ekki Lola og Lola er ekki ég, og ég get aftengt allan minn ótta í henni. Af því Lola er ekki hrædd við neitt.“ Oddný segir að þegar hún kemur fram sem Lola skilji hún sjálfa sig og daglegt amstur eftir heima, grámygla hversdagsins er hvergi nærri í dragsenunni. „En auðvitað er ég ennþá ég og er náttúrulega viðstödd, en Lola veitir áhyggjulaust frelsi.“ Frelsið er Oddnýju mikilvægt, frelsi til að vera hún sjálf, til að vera Lola og til að vera frjáls hvernig sem það lítur út. „Lola hjálpaði mér að komast yfir samfélagslega pressu um hvernig maður eigi að líta út, mér fór að standa mun meira á sama um hvað fólki fyndist um mig og mitt útlit. Nú veit ég að kvenleiki minn er ekki endurspeglaður af útlitinu mínu.“ Drottningardragið veitir Oddnýju ákveðið kynleysi sem hún hefur mikla ánægju af. „Besti parturinn af dragi er að það veit enginn hver ég er, það veit enginn hvort ég sé kona eða ekki. Ég elska þegar ég er í dragi og vinir mínir ganga framhjá mér af því þau þekkja mig ekki. Halda allt eins að ég sé strákur og strákarnir geta allt eins verið stelpur, eða bæði. Dragið fer yfir þennan þröskuld. Okkur er alveg sama um kyn, við erum allt hitt. Þú getur skilgreint þig hvernig sem þú vilt en samt verið í dragi af því drag er gjörningur, laus við kyn. Þetta er búningur sem þú setur upp og tekur niður óháð því hvernig þú skilgreinir þig.“ Að lokum segist Oddný spennt fyrir framhaldinu í dragsenunni á Íslandi. „Ég vil sjá ennþá meiri fjölbreytni, ég vil sjá fleiri koma inn og prófa, brjóta reglurnar og gera þetta að sínu eigin. Ég vil sjá þessa stóru og fallegu fjölskyldu stækka.“ 34

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.