Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2021, Blaðsíða 5

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2021, Blaðsíða 5
Gleðin hefur verið aðalsmerki Hinsegin daga alveg frá því að þeir voru fyrst haldnir árið 1999. Hátíðin fyllir borgina af lífi og lit og óneitanlega er hápunkturinn sjálf Gleðigangan – þegar um þriðjungur allra landsmanna safnast saman í miðborginni til að fagna fjölbreytileikanum í allri sinni dýrð. Og nú höfum við enn meiri ástæðu til að koma saman og gleðjast, því við þurfum að bæta upp fyrir hátíðina í fyrra sem var haldin á lágstemmdum nótum undir ströngu samkomubanni vegna heimsfaraldursins. En þó gleðin sé alltaf í fyrirrúmi, þá er réttindabarátta hinsegin fólks sterkur undirtónn þessara daga. Hinsegin dagar hafa gegnt stóru hlutverki í réttinda- og hagsmunabaráttu í landinu. Sú öfluga barátta hefur skilað einstökum árangri eins og staða hinsegin fólks hér á landi sýnir, og hefur verið öðrum hópum mikilvæg fyrirmynd. Enn er þó verk að vinna að berjast gegn fordómum og fyrir fullum réttindum allra. Baráttan heldur þannig alltaf áfram með nýrri kynslóð. Það er einmitt barátta kynslóðanna sem ber hæst á Hinsegin dögum í ár. Yfirskrift hátíðarinnar í ár er "Hinsegin á öllum aldri" þar sem áherslan er lögð á samtal kynslóðanna – hvernig það er að eldast hinsegin, börn og Kveðja borgarstjóra hinseginleika, hinsegin fjölskyldur og allt þar á milli. Það nær einmitt utan um kjarnann í Hinsegin dögum á Íslandi – þeir eru fyrst og fremst fjölskylduhátíð ekki síður en borgarhátíð, þar sem kynslóðirnar koma saman í öllum sínum fjölbreytileika og mætast án fordóma. Fyrir hönd Reykjavíkurborgar vil ég þakka ykkur fyrir óbilandi baráttuanda og farsæla réttindabaráttu, sem hefur skilað okkur betra samfélagi fyrir alla. Gleðilega Hinsegin daga 2021 og góða skemmtun. For more than twenty years now, Reykjavik Pride has filled our city with life, colour and joy for a whole week in August. The climax is the Pride Parade – an amazing Saturday event that traditionally brings some one third of the population together within the city centre. This time around, we have even more reason to come together and party in order to make up for last year’s low-key festivities – toned down due to the restrictions on gatherings during the Covid-19 pandemic. Together with the playfulness that has always characterized Reykjavik Pride, the festival maintains a strong undertone for the struggle that the LGBTQIA+ community carries out every day, around the world. This powerful struggle over the years has yielded some unique results here in Iceland, and has been at the same time an important example for other groups. However, the fight against discrimination and inequality is never over and carries on with each new generation. The dialogue between generations is this year’s theme for the Reykjavik Pride, encouraging an open debate on how to grow up and grow older within the LGBTQIA+ community. In Iceland, the Reykjavik Pride is no less a family affair rather than a city festival, where the generations come together to reject prejudice and discrimination – and to celebrate diversity in all its glory. On behalf of the City of Reykjavik, I want to congratulate you on your relentless spirit in the fight for a better world – and you can take pride in every step along the way! More than anything, let’s have fun and enjoy this extraordinary Reykjavik Pride of 2021! Dagur B. Eggertsson Mayor of Reykjavik 5
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.