Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2021, Blaðsíða 9

Hinsegin dagar í Reykjavík - 01.08.2021, Blaðsíða 9
Sýnileiki og ósýnileiki Í enskumælandi löndum hafa tilraunir til að endurheimta orðið queer, sem er að mörgu leyti sambærilegt orðinu hinsegin, gengið misvel. Jafnan eru skammstafanir notaðar, en misjafnt er hvort talað er um LGBT fólk, LGBTI fólk, LGBTIQ+ fólk, LGBTIAPQ+ fólk o.s.frv. Allt fer það eftir því hversu langt hver vill ganga í sýnileika þeirra hópa sem falla undir hinsegin regnhlífina, eða í raun hversu mikinn fórnarkostnað viðkomandi er tilbúinn til þess að færa og þá hvaða hópa eigi að gera ósýnilega hverju sinni. Þegar kemur að sýnileika takast þannig á tvö sjónarmið í umræðum um hinsegin orðaforða og þau orð sem er viðeigandi að nota hverju sinni. Orðanotkun getur nefnilega bæði aukið sýnileika og minnkað hann. Sértæk orð um ákveðna hópa auka sýnileika þeirra, en regnhlífarhugtak á borð við hinsegin þurrkar út línurnar milli skilgreininga á sama tíma og það undirstrikar sameiginlega þætti í reynslu okkar allra. Þannig hefur stórsigur hugtaksins hinsegin vakið blendnar tilfinningar meðal sumra homma og lesbía, sem þurftu að berjast fyrir því að fá að nota skilgreiningarnar sínar á sínum tíma. Á móti kemur að fólkinu sem tilheyrir Nafn, fornafn, aldur? Hugrún Britta, er 23 ára og langflestir segja hún þegar talað er um/við mig. Og ég er sátt með í rauninni öll fornöfn en nota sjálf fornafnið hún. Hver er þín fyrsta hinsegin minning? Mín fyrsta hinsegin minning er... vá það eru svo margar að ég rugla þeim öllum saman. Örugglega þegar ég var skotin í vinkonu minni þegar ég var 10 ára. Ég vissi ekkert að þetta væru hinsegin minningar fyrr en mörgum árum seinna samt. Ég er pan og fattaði það þegar ég var í 9. eða 10. bekk en hafði verið skotin í stelpum áður án þess að átta mig á því. Það var alltaf sjálfgefið að ég væri hrifin af strákum þannig þegar ég var hrifin af stelpum skildi ég ekki alveg hvað það var og hvað það þýddi fyrir mér. Mér fannst drekinn í Shrek geggjað sæt til dæmis sem átti að vera kvenkyns. En það er dreki þannig... Hahah. Hver er þín helsta hinsegin fyrirmynd? King Princess er uppáhalds hinsegin tónlistargúrúið mitt þessa dagana. Annars er Sólrún Mjöll systir mín stærsta fyrirmynd mín í tónlist og lífinu en hún er líka hinsegin þannig ætli það sé ekki bara hún. Hvað gleymdist að segja þér þegar þú varst ungmenni? Það sem gleymdist að segja mér þegar ég var lítil er að heimurinn er ekki búinn til fyrir einstaklinga heldur stóra hópa af fólki sem geta hagað sér eins og farið eftir óskrifuðum reglum. Foreldrar mínir voru hins vegar mjög duglegir að hvetja mig áfram að vera ég (hvað sem það er) og synda á móti straumnum. Það gleymdist bara að láta mig vita að það getur verið einmanalegt og mjög ógnvekjandi en ekki bara spennandi og skemmtilegt eins og það lítur oft út fyrir að vera. En mér finnst ég mest heppin að eiga svona opna og góða foreldra sem eru alltaf tilbúnir að taka á móti mér eins og ég er. Það gerir allt minna einmanalegt og ógnvekjandi. ÖRVIÐTAL þeim hópum sem voru yfirleitt ekki nefndir í tengslum við hinsegin réttindi er ekki lengur sleppt í opinberri umræðu, heldur fá nú að vera hluti af menginu. Orðið hinsegin er að mínu mati sterkt hugtak sem getur aukið samstöðu meðal ólíkra hópa og getur líka gengið fyrir fólk sem hefur ekki þörf á nánari skilgreiningu fyrir hinseginleika sinn. Við þurfum samt líka að muna að tilgreina ákveðna hópa þegar það á við, í nafni sýnileikans og virðingarinnar fyrir sjálfskilgreiningu fólks. Orðin sem við hinsegin fólk höfum valið okkur eru nefnilega falleg og skipta mörg okkar miklu máli. Að lokum Mikilvægast er að við höfum sjálf valdið til þess að ákveða hvað við viljum láta kalla okkur og að meirihlutasamfélagið fylgi okkar fordæmi. Til þess þurfum við áframhaldandi fræðslu um hinsegin veruleika og ekki síst að vera óhrædd við að taka okkur pláss í tungumálinu. Við megum vera til, við megum skilgreina okkur ef við viljum og við megum gera kröfu um að annað fólk virði skilgreiningar okkar. Það er svo óendanlega dýrmætt að geta sagt hver við erum. 9
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Hinsegin dagar í Reykjavík

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hinsegin dagar í Reykjavík
https://timarit.is/publication/1512

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.