Morgunblaðið - 02.09.2021, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 02.09.2021, Qupperneq 2
150 125 100 75 50 25 0 júlí ágúst Staðfest smit 7 daga meðaltal Heimild: covid.is kl. 11.00 í gær 67 ný innan- landssmit greindust sl. sólarhring 2.270 einstaklingar eru í sóttkví Fjöldi innanlands- smita frá 12. júlí 10 einstaklingar eru á sjúkrahúsi, þar afeinn á gjörgæslu Smit meðal óbólusettra í meirihluta - 67 smit greindust á þriðjudag, þar af voru 36 óbólusettir - Staðan á spítalanum hefur vænkast Ragnhildur Þrastardóttir Rebekka Líf Ingadóttir 67 kórónuveirusmit greindust innan- lands á þriðjudag og voru 29 utan sóttkvíar við greiningu. 36 af þeim sem greindust voru óbólusettir en hinir 31 voru bólusettir. Áberandi hefur verið síðustu daga hve hátt hlutfall greindra smita er á meðal óbólusettra. Þeir hafa verið í meiri- hluta síðustu þrjá daga, á sama tíma og mikill meirihluti íslensku þjóðar- innar hefur fengið bólusetningu gegn Covid-19. Fjórtán daga nýgengi inn- anlands á hverja 100.000 íbúa stendur nú í 271,9. Hefur það lækkað verulega síðan 9. ágúst þegar það var sem hæst. Þá var nýgengið 433. Nýgengið á landamærunum er nú 15. Már Kristjánsson, yfirlæknir smit- sjúkdómadeildar spítalans, segir stöðuna tvímælalaust vera að vænk- ast á spítalanum hvað varðar innlagn- ir Covid-sjúklinga. Þá kviknar sú spurning hvort tímabært sé fyrir spítalann að færa sig niður um við- bragðsstig í ljósi stöðunnar. „Ég held að við séum að sjá það núna hvað það þýðir að lifa með veir- unni, mér sýnist það vera sirka tveir þriðju af þeim sem eru að greinast á hverjum degi sem eru utan sóttkvíar, sem segir manni það að það sé tals- vert af smitum á hverjum tíma úti í samfélaginu,“ segir Már. „Það er alltaf fullt af fólki sem er úti í samfélaginu sem er ógreint fyrir utan sóttkvíar og það segir mér að það verður svona stöðugt framboð á þessu en samt með hallatölu niður á við, vonandi“ Már segist vongóður um stöðu faraldursins, að honum haldi áfram hægt og bítandi að slota. 2 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2021 Bi rt m eð fyr irv ar a um pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé rr ét tt il le ið ré tti ng a á slí ku .A th .a ð ve rð ge tu rb re ys tá n fyr irv ar a. 595 1000 Alicante Dagsetning Önnur leið Báðar leiðir 9. september Frá14.900 Frá34.800 16. september Frá24.950 Frá39.850 23. september Frá19.900 Frá34.800 27. september Frá24.950 Frá44.850 flugábetraverðií september Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Sumardagar í Reykjavík í sumar, samkvæmt skilgreiningu Trausta Jónssonar, veðurfræðings og rit- stjóra Hungurdiska (trj.blog.is), voru orðnir 24 síðasta dag ágúst- mánaðar. Sumardagarnir í Reykja- vík voru orðnir fjórum fleiri en sam- kvæmt langtímameðaltali 70 ára en níu dögum færri en að meðallagi á þessari öld. „Þrjú sumur á öldinni hafa skilað færri sumardögum heldur en þetta, 2001, 2013, 2018 og 2020. Komi sumardagar í september fer fjöldinn nú einnig yfir 2005 og jafnvel 2015 líka. Langflestir urðu sumardag- arnir í Reykjavík 2010, 2011 og 2012,“ skrifar Trausti. Hann segir að í Reykjavík hafi langflestir sumar- dagar ársins skilað sér í lok ágúst. Samkvæmt meðaltali hafa aðeins 2-3 sumardagar skilað sér í september en hafa þó orðið 11 þegar mest var. Akureyringar mega vel við una en þar voru sumardagar í sumar orðnir 70 þann 31. ágúst. Það er 22 fleiri en meðaltal þessarar aldar og hafa aldrei verið fleiri þann tíma sem talningin nær yfir eða frá 1950. Að auki bætast við að jafnaði um fjórir sumardagar í september. Trausti skilgreinir „sumardag“ þannig: „Miðað er við daglegar at- huganir í Reykjavík klukkan 12, 15, 18 og 21. Þetta er algengur grilltími, en tekur ekki til morgunathafna – enda segjast menn þá vera svo hressir að veðrið skipti engu máli. Við viljum að það sé alveg úrkomu- laust að minnsta kosti þrjá af þess- um athugunartímum, við setjum okkur líka fyrir að úrkoma frá 9 til 18 mælist minni en 2 mm. Þetta þýð- ir að við leyfum skammvinna smá- skúr. Við viljum líka að ekki sé al- skýjað á öllum athugunartímunum fjórum – en erum að öðru leyti ekki kröfuhörð á sólina. Að lokum viljum við að meðalhiti athugunartímanna fjögurra sé að minnsta kosti 13,1 stig – eða að hámarkshitinn kl. 18 sé meiri en 15 stig.“ gudni@mbl.is Sumardagar í Reykjavík orðn- ir 24 í sumar en 70 á Akureyri - Trausti Jónsson veðurfræðingur telur fjölda sumardaga Morgunblaðið/Eggert Sumardagar Það eru úrkomulitlir og tiltölulega hlýir dagar. Almannavarnir hafa lýst yfir óvissu- stigi vegna Skaftárhlaups. Upptökin eru talin vera í Vestari-Skaftárkatli en þaðan koma að jafnaði minni hlaup. Að sögn Huldu Rósar Helga- dóttur, náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofu Íslands, mun hlaupið lík- lega ná hámarki á næstu dögum en minni hlaup eiga það til að dreifast yfir lengri tíma. Mögulegt er að Skaftá flæði yfir nærliggjandi vegi en ekki er búist við að það valdi skemmdum. Vegfarendur í nágrenni við ána eru þó beðnir um að vara sig. Hægum vindi er spáð á svæðinu og er því hætta á að gas safnist fyrir í lægðum. Umhverfisstofnun hefur þegar sett upp mæla á Kirkjubæj- arklaustri svo hægt sé að fylgjast með brennisteinsvetni. hmr@mbl.is Skaftár- hlaup hafið - Muni ná hámarki á næstu dögum Morgunblaðið/Sigurður Bogi Skaftá Mælar til að fylgjast með mengun eru á Kirkjubæjarklaustri. Prestar og djáknar Þjóðkirkjunnar hafa um ára- tugaskeið hist til skrafs og ráðagerða undir heit- inu prestastefna. Vegna heimsfaraldursins var engin prestastefna haldin í fyrra en nú boðaði biskup til fundar við óvenjulegar aðstæður. „Það má með sanni segja að setning presta- og djáknastefnu 2021 síðdegis í gær hafi verið ein- stök og fari í kirkjusögubækurnar,“ segir í frétt á vefnum kirkjan.is. Aldrei áður hefur presta- stefna verið haldin í netheimum. Biskup Íslands, sr. Agnes M. Sigurðardóttir, flutti setningarræðu sína frammi fyrir upp- tökuvél og athöfninni var varpað út með rafræn- um hætti frá salnum Þingvöllum í Katrínartúni 4. Við hlið biskups sat sr. Kristján Björnsson, vígslubiskup í Skálholti. Fjöldi presta var „mætt- ur“ á skjáinn og sat við sína tölvu heima fyrir eða annars staðar. sisi@mbl.is Prestar og djáknar „hittust“ í netheimum Ljósmynd/Hreinn S. Hákonarson
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.