Morgunblaðið - 02.09.2021, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 02.09.2021, Blaðsíða 4
BAKSVIÐ Andrés Magnússon andres@mbl.is Innan við þriðjungur kjósenda er harðákveðinn um hvaða flokk hann ætlar að kjósa í alþingiskosningun- um 25. september, meirihlutinn telur aðra flokka einnig koma til greina þegar í kjörklefann er komið. Þetta kemur fram í skoðanakönnunum, sem MMR gerði í samstarfi við Morgunblaðið. Þrátt fyrir að ekki hafi verið mikl- ar fylgissveiflur í helstu skoðana- könnunum undanfarna mánuði og misseri, þá er ekki gefið að þar sé allt með kyrrum kjörum. Það sést vel þegar rýnt er í svör, sem MMR fékk við spurningum um hvaða flokk fólk hygðist kjósa, hvort aðrir flokkar kæmu til greina og þá hverjir. Þar er byggt á svörum úr þremur könnun- um MMR, sem fram fóru 24. júní til 6. júlí, 8. til 14. júlí og 18. til 24. ágúst. Minnkandi flokshollusta Við blasir að flokkshollusta er ekki jafnalmenn og raunin var á liðinni öld, líkt og endurspeglast í því að fæstir stjórnmálaflokkar eru þær fjöldahreyfingar og þá var títt. Flokkshollustan er þó enn til staðar, en mjög misjöfn eftir flokkum. Hún er langmest meðal stuðningsmanna Flokks fólksins, en 41% þeirra geta ekki hugsað sér að kjósa neinn flokk annan. Aftur á móti er minnsta staðfestu að finna meðal stuðningsmanna Samfylkingarinnar, en aðeins 19% geta aðeins hugsað sér að kjósa hana. Hún er þó aðeins sjónarmun minni en hjá Miðflokki, Sósíalistum og Viðreisn. Um 25% stuðnings- manna Pírata og Vinstri grænna vilja ekkert annað kjósa, en 31% og 32% stuðningsmanna Framsóknar og Sjálfstæðisflokks. Þetta þýðir líka að þrátt fyrir litlar fylgissveiflur er enn eftir töluverðu að slægjast fyrir flokkana í kosn- ingabaráttunni, mismiklu þó. Sjálf- stæðisflokkurinn kemur þannig til greina hjá 33% kjósenda, en Fram- sókn, Samfylking, Vinstri græn og Viðreisn koma til greina hjá 22-26% svarenda. Kosningabaráttan og lokasprettur hennar getur því skipt sköpum. Bálkaskipting kjósenda Hafi einhverjir áhyggjur af fjölg- un flokka á þingi, þá geta þeir hugg- að sig við að mjög auðvelt er að greina skautun, jafnvel bálkamynd- un, til hægri og vinstri. Það kynni að gefa til kynna kosti á samstarfi eða samruna flokka, nú eða bálkaskipt- ingu, eins og algeng er í norrænum stjórnmálum. Þannig blasir við að margir stuðn- ingsmenn Sjálfstæðisflokks, Fram- sóknar og Miðflokks geta hugsað sér að kjósa hina flokkana á hægri væng. Stuðningsmenn Viðreisnar eru mun blendnari í sinni afstöðu, marg- ir þeirra gætu kosið Sjálfstæðis- flokkinn og Framsókn (en sárafáir Miðflokk) og enn fleiri Samfylkingu og Pírata, svo hann virðist kominn í hina gömlu stöðu Framsóknar- flokksins á miðjunni og opinn í báða enda! Mögulegur tilflutningur á fylgi á vinstri vængnum er ekki minni og raunar má segja að þar sé uppi svip- uð staða og fyrr á árum, þegar vinstrafylgi var miklu frekar fljót- andi á milli flokka en gerðist hægra megin. Þannig er ljóst að Samfylk- ingin er í mjög viðkvæmri stöðu, þar sem fjórðungur stuðningsmanna hennar getur hugsað sér Viðreisn, annar fjórðungur gæti kosið Vinstri græna, 16% Sósíalista og heil 38% Pírata. Þar á móti kemur að nær þriðjungur stuðningsmanna Pírata gæti kosið Samfylkingu. Sömuleiðis gæti Samfylking hogg- ið í raðir Vinstri grænna, þar sem 35% stuðningsmanna geta hugsað sér að kjósa Samfylkingu. Loks blas- ir við samgangurinn milli Pírata og Sósíalista en þar eiga margir fylgis- menn þeirra erfitt með að gera upp á milli þeirra. Hvað annað gætu stuðningsmenn einstakra flokka hugsað sér að kjósa? Samanlagt úr síðustu þremur könnunum MMR, mælt dagana 24. júní - 6. júlí, 8.-14. júlí og 18.-24. ágúst 0% 5% 10% 15% 20% 25% 30% 35% 40% SósíalistaflokkurinnPíratarVinstrigrænSamfylkingViðreisnFlokkur fólksinsMiðflokkurFramsóknSjálfstæðisflokkur B M C F S V P J D M C F S V P J D B C F S V P J D B M C S V P J D B M F S V P J D B M C F V P J D B M C F S P J D B M C F S V J D B M C F S V P B CD F JM PS V Flokkaflakkarar geta ráðið úrslitum - Aðeins þriðjungur harðákveðinn um hvað eigi að kjósa - Aðrir telja aðra flokka vel koma til greina - Greinileg bálkaskipting til hægri og vinstri - Flokkshollusta á undanhaldi en enn rík í sumum flokkum Morgunblaðið/Eggert Kosningar Margir eru óráðnir allt þar til í kjörklefann kemur en 2/3 svar- enda í könnunum MMR telja fleiri en einn flokk koma til greina hjá sér. 4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2021 GOLF Í SEPTEMBER Á ALICANTE GOLF & EL PLANTIO INNIFALIÐ:FLUG, GISTING,INNRITAÐUR FARANGUR, FLUTNINGUR Á GOLFSETTI,AFNOT AF GOLFBÍL OGÓTAKMARKAÐ GOLF ÚRVAL ÚTSÝN HLÍÐASMÁRI 19, 201 KÓPAVOGUR SÍMI 585-4000 GOLF@UU.IS EL PLANTIO GOLF RESORT El Plantio er vinsælasti golfstaður okkar á Spáni. Þessi skemmtilegi staður er steinsnar frá Alicanteborg, dvalið er í góðum íbúðum og innifalið er ótamarkað golf á 18 holu velli sem hentar fyrir öll getustig. ALICANTE GOLF RESORT Alicante Golf er í 15 mínútna fjarlægð frá miðborg Alicante og 10 mínútum frá bænum San Juan. Stutt er í verslun og á ströndina og nokkur skref á golfvöllinn. Alicante Golf inniheldur sex par 3 holur, sex par 4 holur og sex par 5 holur, sem þýðir að þú munt aldrei spila sömu holu tvisvar í röð með sama par. EL PLANTIO VERÐ FRÁ 179.900 KR. Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA ALICANTE GOLF VERÐ FRÁ 199.900 KR. Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA HAUSTTIBOÐ Í SEPTEMBER 2021 ALÞINGISKOSNINGAR Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefur gengið vel síðustu daga, að sögn sýslumannsins á höfuðborg- arsvæðinu. Fyrsti dagur utankjörfund- aratkvæðagreiðslu var þann 13. ágúst, þegar sex vikur voru til kosn- inga, og hefur aðsókn verið þokkaleg síðan þá. Að sögn sýslumannsins er kjörsókn meiri nú en var í alþing- iskosningunum 2017, en minni en var í forsetakosningunum í fyrra. Búist er við að aðsókn muni aukast eftir því sem nær dregur. Alls hafa 3.100 kosið utan kjörfundar á land- inu öllu og 2.400 á höfuðborgarsvæð- inu. Um 200 manns kusu utan kjör- fundar í gær á höfuðborgarsvæðinu. Frá því að utankjörfundaratkvæða- greiðsla hófst í ágúst hefur af- greiðslutími kjörstaða verið lengri en áður, en opið er frá 10 um morg- un til 22. Er það gert til að stemma stigu við að biðraðir geti myndast. Meiri aðsókn en í kosningum 2017 - Kjörstaðir opnir lengur en áður Morgunblaðið/Unnur Karen Smáralind Kosið er utan kjörfundar í verslunarmiðstöðinni í Kópavogi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.