Morgunblaðið - 02.09.2021, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2021
N Ý F O R M
H Ú S G A G N A V E R S L U N
Klassísk gæða húsgögn
á góðu verði
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Komið og skoðið úrvalið
GLOBL V
Hvíldarst
KRAGELUND Aya K 129
Casö 701 langborð
Stólar
Sófasett
Borðstofuborð
Skenkar/skápar
Hvíldarstólar
o.m.fl.
Borstofuhúsgön frá Casö
Mikið úrval af
hvíldarstólum
með og án
rafmagns.
Rimme frá Casö, raðau saman þinni samstæðu
Casö 230 viðartegundir nature eik og reykt eik
IKTOR
óll
KRAGELUND Handrup
R
auf Mamedov frá Aser-
baídsjan náði einn for-
ystu eftir sjöttu umferð
Reykjavíkurskákmóts-
ins/Evrópmóts einstaklinga sem
stendur yfir við góðar aðstæður á
Hotel Natura í Reykjavík. Mame-
dov vann Frakkann Maxime La-
garde í 6. umferð með svörtu og hef-
ur því unnið tvær lykilskákir í
toppbaráttunni röð og á þeim tíma-
punkti í mótinu þegar lokasprett-
urinn er að hefjast er hann óneitan-
lega sigurstranglegur með 5½
vinning. Í 2.-5. sæti koma Rússinn
Anton Demchenko, Hovhannes Ga-
busjan frá Armeníu, Pólverjinn Pi-
orin Kacper og Vincent Keymer,
eitt mesta efni sem Þjóðverjar hafa
eignast. 13 skákmenn eru með 4½
vinning.
Hannes Hlífar Stefánsson stend-
ur best að vígi íslensku keppend-
anna með 4 vinninga en þeir Jóhann
Hjartarson, Hjörvar Steinn Grét-
arsson, Vignir Vatnar Stefánsson,
Héðinn Steingrímsson og Bragi
Þorfinnsson eru allir með 3½ vinn-
ing. Góður endasprettur getur fleytt
þeim í efstu sætin.
Vignir Vatnar Stefánsson, sem
fyrr á þessu ári var sæmdur titli al-
þjóðlegs meistara, hefur átt gott
mót þrátt fyrir slæma byrjun. Hann
hefur verið þrautseigur í erfiðum
stöðum, t.d. í skák sinni við Héðin
Steingrímsson í 6. umferð. Í um-
ferðinni á undan komst hannn einn-
ig í hann krappan gegn ítölskum
andstæðingi en þá kom þessi staða
upp:
Pier Basso – Vignir Vatnar Stef-
ánsson
Í þessari stöðu er útlitið ekki gott
því að a7-peðið er að falla og frípeð
hvíts taka síðan á rás. Vignir lék …
44. … Hf4+!
Mun betra en 44. … Hxg4 45.
Hxa7 og hvítur á vinningsstöðu. )
45. Kg3 He4 46. Hxa7?
Hann hefði betur leikið 46. Kf2
og eftir 46. … Hf4+ 47. Ke3! Hxg4
48. d5! er hróksendataflið sennilega
tapað.
46. … He3+ 47. Kf2
Og nú nær áætlun Vignis fram að
ganga …
47. … He2+!
Gefur hrókinn og eltir kónginn
eftir e-línunni.
48. Kxe2
Það er ekkert um annað að ræða.
Vandinn er hins vegar sá að svartur
er patt.
Jafntefli.
Einn fastagesta Reykjavíkur-
skákmótanna er sænski stórmeist-
arinn Nils Grandelius. Hann hefur
fyrir nokkru tekið sæti Ulfs And-
ersson sem langbesti skákmaður
Svía. Nils er hefur farið rólega af
stað en búast má við honum sterk-
um á lokasprettinum. Í 4. umferð
vann hann Tékkann Lubomir Ftac-
nik í aðeins 29 leikjum en skákin
var um margt athyglisverð. Ftacnik
hefur aldrei vikist undan því að taka
slaginn í vinsælum afbrigðum sikil-
eyjarvarnar en kom ekki að tómum
kofunum hjá andstæðingi sínum:
Nils Grandelius –Lubomir Fac-
nik
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 e6 6. g4
Leikur Keresar.
6. … h6 7. Hg1 Rc6 8. Be3 Bd7 9.
Be2 d5 10. exd5 Rxd5 11. Rxd5
exd5 12. Dd2 Bd6 13. O-O-O Bxh2
Það hefur yfirleitt ekki verið talið
gott að teygja sig eftir þessu peði.
Um það vitna nokkrar skákir.
14. Hh1 Be5 15. Rf3 Dc7 16.
Rxe5 Rxe5 17. Kb1 Rxg4 18. Bf4
Dc6 19. Dd4!
Ótrúlega erfiður leikur því það er
vart hægt að valda g7-peðið.
19 … Rf6 20. Hdg1 Kf8?
Eina vörnin að mati „vélanna“
var 20. … Db6 og svartur ætti að
gera barist áfram.
21. Db4+! Kg8 22. Bxh6 Re8
23. Bxg7!
Þetta kostar ekki mikla útreikn-
inga.
23. … Rxg7 24. Dd4! Bg4
Eða 24. … f6 25. Hxh8+ Kxh8 26.
Dh4+ Kg8 27. Dh6 o.s.frv.
25. Hxh8+ Kxh8 26. Hxg4 f6 27.
Df4 Kg8 28. Dh6 Dd7 29. Bf3!
- og svartur gafst upp.
Mamedov einn efst-
ur en lokasprettur-
inn að hefjast
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Morgunblaðið/Heimasíða REK/E
Kóngspeðið Nils Grandelius heilsar andstæðingi sínum í 2. umferð.
Útsjónarsamur Vignir Vatnar við
taflið á Hotel Natura.