Morgunblaðið - 02.09.2021, Blaðsíða 52
52 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2021
www.gilbert.is
Hjá Gilbert úrsmið sérhæfum
við okkur í úrsmíði, hönnun
og framleiðslu úra
30 ÁRA Guðný fæddist á Egils-
stöðum og ólst upp á Seyðisfirði.
Hún gekk í Grunnskólann á Seyð-
isfirði og hélt svo til Reykjavíkur í
smátíma en lauk stúdentsprófinu við
Menntaskólann á Egilsstöðum. „Það
var gott að alast upp hérna. Þetta er
lítið samfélag og allir þekkja alla.
Svo er ég með alla mína fjölskyldu
hér.“
Guðný kynntist eiginmanninum
árið 2014 á sjómannadagsballi á
Seyðisfirði. „Það er svolítið fyndið
að við Skúli þekktumst ekkert þótt
við værum í svona litlu samfélagi og
ættum marga sameiginlega vini. En
frá því við dönsuðum á þessu balli
höfum við verið saman.“
Guðný er að læra lögfræði í Há-
skólanum á Akureyri og er á þriðja
ári. „Ég byrjaði í lögfræðinni upp-
haflega til þess að ögra sjálfri mér
og sýna sjálfri mér að ég get allt sem
ég ætla mér. Svo hef ég gríðarlegan
áhuga á umhverfis- og alþjóða-
málum og það er akkúrat það sem
Háskólinn á Akureyri býður upp á,
svo stefni ég á heimskautarétt í
meistaranáminu.“ Guðný hefur það
áhugamál að taka myndir. „Ég byrj-
aði að spá í ljósmyndun þegar eldra
barnið mitt fæddist árið 2015, ég
fann aldrei ljósmyndara sem tók
eins myndir og ég vildi fá svo ég
menntaði mig sjálf í faginu með því
að fara á námskeið hjá þekktum ljós-
myndurum sem eru mínar fyir-
myndir og tek nú myndir með svolít-
ið ævintýralegum brag, alveg eins
og ég vil hafa þær.“
Guðný og Skúli hafa gert upp tvö
gömul hús á Seyðisfirði. „Við keypt-
um lítið hús byggt 1928 árið 2017 og
það er eiginlega orðið of lítið fyrir
okkur, svo við keyptum annað yngra
hús byggt 1972 og stefnum á að
flytja í það fljótlega, þegar við höf-
um klárað að gera það upp. Mað-
urinn minn er mjög handlaginn og
getur gert mikið sjálfur svo ég
myndi því segja að ég sé mjög vel
gift.“
FJÖLSKYLDA Eiginmaður Guð-
nýjar er Skúli Vignisson, fram-
kvæmdastjóri MSV á Egilsstöðum,
f. 2.7. 1990. Þau eiga börnin Kjartan
Berg, f. 2015 og Vöku, f. 2018.
Guðný Lára Guðrúnardóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl ,
Hrútur Heildarsýn er það sem þú þarft að
ná svo enginn misskilningur komi upp milli
þín og þinna. Það er mesta furða hvað smá-
vægilegar breytingar geta haft mikil áhrif.
20. apríl - 20. maí +
Naut Þótt þér leiðist að fara ofan í saumana
á málum aftur og aftur er það nauðsynlegt
ef þú vilt hafa allt á hreinu. Reyndu að herða
upp hugann og losna við kvíðann.
21. maí - 20. júní 6
Tvíburar Þú vinnur af öllum kröftum að
uppáhaldsverkefninu þínu. Notaðu alla
þessa ástríðu til að greiða fyrir persónulegri
velgengni þinni.
21. júní - 22. júlí 4
Krabbi Gættu þess að vera ekki of yfir-
þyrmandi eða áhugasamur um eitthvað sem
þig langar til þess að gera í dag. Ræddu hag-
nýtar lausnir við fjölskyldumeðlimi.
23. júlí - 22. ágúst Z
Ljón Það hefur verið mikið að gera hjá þér
upp á síðkastið þannig að nú þarftu á hvíld
að halda. Njóttu hennar sem best þú getur.
23. ágúst - 22. sept. l
Meyja Smekkur þinn fyrir fegurð nýtur sín í
dag. Nú eru góðar aðstæður til þess að
leggja út í hagnýtt samstarf sem skilar ár-
angri til langs tíma litið.
23. sept. - 22. okt. k
Vog Það er hygginna manna háttur að vera
við öllu búinn og þú ættir að hafa í huga að
kallið getur komið hvenær sem er. Alls kyns
spennandi tækifæri til vaxtar eru fyrir hendi
núna.
23. okt. - 21. nóv. j
Sporðdreki Reyndu að hafa alla þræði í
hendi þér áður en þú ræðst í þær fram-
kvæmdir sem þig dreymir um. Næmi þitt á
líðan annarra mun koma sér vel í dag.
22. nóv. - 21. des. h
Bogmaður Farðu varlega núna, tilfinn-
ingasemin er allsráðandi og auðvelt að lenda
í rimmu. Komdu ástvini þínum á óvart.
22. des. - 19. janúar @
Steingeit Þú ert í sannkölluðu íþróttaskapi,
og alltaf þremur skrefum á undan í leiknum.
Gerðu það upp við þig hvað þú vilt og stattu
svo fast á þínu.
20. jan. - 18. febr. ?
Vatnsberi Aukin ábyrgð vegna barnaupp-
eldis er líkleg á næstunni. Ef þú bregst til-
finningalega við fréttum sem vinur þinn fær-
ir þér, skaltu gaumgæfa þýðingu þeirra.
19. feb. - 20. mars =
Fiskar Sígandi lukka er best svo þú skalt
bara halda þínu striki og klára hvert mál eins
og það kemur fyrir.
var þó talsvert erfiðara að vinna í fag-
inu hérlendis þar sem engin hefð var
fyrir hönnun og efnahagsástand bæði
lengst af á Skólavörðustígnum í Pfaff-
húsinu. Þetta voru allt öðlingsmenn
og gaman að vinna með þeim.“ Það
P
étur B. Lúthersson fædd-
ist 2. september 1936 í
Stykkishólmi, lang-
yngstur átta barna
hjónanna Lúthers Jóns-
sonar og Kristínar Theódóru Péturs-
dóttur í Bergsholti í Staðarsveit.
„Móðir mín var orðin 46 ára þegar
hún átti mig og öll systkinin komust á
legg nema eitt. Það verður nú að segj-
ast að það var almenn fátækt í þessum
sveitum og hjá foreldrum mínum
bætti það ekki að tvisvar brann heim-
ilið ofan af þeim. En ég man samt
aldrei eftir að líða skort,“ segir Pétur.
„Sóknarpresturinn séra Þorgrímur
Sigurðsson á Staðarstað tók mig til
sín og ætlaði að gera úr mér mennta-
mann, en ég hafði verið í barnaskóla
sem var farskóli og 14 ára var ég í
landspróf í Reykholti og þá voru veik-
indi heima og ákvað að söðla um og
reyna eitthvað annað. Afar mínir voru
báðir handlagnir og flinkir smiðir og
mömmu fannst ég ætti að gera eitt-
hvað annað en að verða bóndi.“
Pétur fór til Reykjavíkur til að læra
húsgagnasmíði 17 ára gamall og fékk
samning hjá traustum sjálfstæðis-
manni, Hjálmari Þorsteinssyni sem
rak verkstæði á Klapparstíg. „Hann
reyndist mér vel og ég lauk sveins-
prófinu og var hjá honum í átta ár.“
Árið 1961 fór Pétur til Danmerkur og
lærði húsgagna- og innanhúss-
arkitektúr við Kunsthåndværker-
skolen í Kaupmannahöfn og segir
námstímann hafa verið mjög
skemmtilegan, enda Danir þekktir
sem öflug hönnunarþjóð. „Ég var svo
að vinna í fjögur ár í Danmörku eftir
að ég lauk námi. Þar lærði maður
náttúrulega fyrst að teikna og svona
skynja hlutina. Danirnir eru hörku-
duglegir við að koma sinni hönnun á
framfæri.“ Tímabilið var skemmtilegt
því Danir voru þegar stórveldi í hönn-
un og Finnar fylgdu þeim fast á eftir.
Pétur kynntist konu sinni, Brigitte, í
Danmörku og þau giftu sig árið 1964 í
Sviss og þau eignuðust dóttur sína í
Danmörku ári síðar.
Þegar heim var komið byrjaði Pét-
ur með teiknistofu 1974, með arkitekt-
unum Ingimundi Sveinssyni og Einari
Þorsteini Ásgeirssyni og Jóni B. Stef-
ánssyni verkfræðingi. „Við vorum
ótryggt og verndartollar á innfluttum
húsgögnum sem gerði alla nýsköpun
mjög þunga. Pétur framleiddi í sam-
starfi við Gamla kompaníið Tabella-
skrifstofuhúsgögn og þau voru seld
víða og gengu mjög vel. Árið 1980
hannaði hann stálstólinn Stacco fyrir
Húsgagnagerð Steinars Jóhanns-
sonar, en stóllinn var bæði stílhreinn
og þægilegur en líka hentugur því
hægt var að stafla honum upp. Stóll-
inn varð mjög vinsæll og í samstarfi
við danska framleiðendur seldist hann
víða um heim.
Pétur vann að því að koma hönnun
sinni á framfæri erlendis og hefur far-
ið víða á sýningar í faginu. Hann
hannaði fyrir dótturfyrirtæki Rosent-
hal postulínsrisans þýska, Teso-
stólinn, sem hlaut hina þekktu hönn-
unarviðurkenningu Rauða punktinn
árið 1991. Pétur hefur einnig unnið
með fyrirtækjum í Hollandi, á Ítalíu,
Englandi og í Bandaríkjunum. Hér
heima vann Pétur mest með Nýja
kompaníinu, Stáliðjunni, Axis og
Pennanum. „Ég hef verið mjög hepp-
inn með fyrirtækin sem ég hef unnið
með og tel mig lánsaman mann. Það
eru þó takmörk fyrir því hvað sveita-
strákur af Snæfellsnesinu getur gert í
að koma íslenskri hönnun á framfæri,
en ég hef komið nánast að hverju ein-
asta útflutningsævintýri á hús-
gögnum á Íslandi.“
Árið 2002 var haldin sýning á stóla-
hönnun Péturs yfir 40 ára tímabil. Nú
eru árin orðin nánast sextíu og Pétur
er enn þá með skrifstofu heima. Mikið
af hönnun Péturs má finna á stofn-
unum Íslendinga og Háskólinn í
Reykjavík keypti fyrir nokkru mikið
af stólum eftir Pétur sem eru mjög
vinsælir hjá nemendum, því bæði eru
þeir þægilegir og svo er hægt að
renna sér mjúklega á milli borða. Þar
fer saman góð hönnun, fallegt útlit og
gott notagildi. „Síðast teiknaði ég
bekk fyrir Fríkirkjuna,“ segir Pétur
en hann vinnur enn þá ýmis smærri
verkefni.
Pétur býr með konu sinni Brigitte í
fallegri útsýnisíbúð og er falleg og
stílhrein hönnun hans hvert sem litið
er. Myndlist eftir Brigitte prýðir
veggina og mikið er af fallegum blóm-
um sem hún ræktar og heimilið ein-
Pétur B. Lúthersson húsgagnahönnuður og innanhúsarkitekt – 85 ára
Hönnuðurinn Pétur í Teso-stólnum sem hlaut hönnunarverðlaun árið 1991.
Hefur hannað húsgögn í sextíu ár
Morgunblaðið/Golli
Sýningin 2002 Stólar frá sýningu á stólum Péturs í 40 ár árið 2002.
Til hamingju með daginn