Morgunblaðið - 02.09.2021, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 02.09.2021, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2021 Inga Þóra Pálsdóttir ingathora@mbl.is Framfaravog sveitarfélaga, sem Soci- al Progress Imperative (SPI) á Ís- landi gefur út, athugaði þrjú málefna- svið þriggja sveitarfélaga til að bæta þjónustuna. Mál- efnin voru heilsa og líðan, mennta- mál og staða er- lendra íbúa. Sveit- arfélögin þrjú, Árborg, Kópavog- ur og Reykjanes- bær, standa sig öll betur en 2016, þegar verkefnið byrjaði. Árborg og Reykjanesbær standa sig þó verr í ár en þau gerðu í fyrra. „Þessi þrjú sveitarfélög eru öll að koma mjög vel út og eru að sýna framfarir hvert á sínu sviði, eins ólík og þau eru. Þau eru augljóslega að vinna mjög ötullega að úrbótum með ýmsum hætti,“ segir Rósbjörg Jóns- dóttir, fulltrúi SPI á Íslandi, í samtali við Morgunblaðið. Bætt aðgengi að þjónustu Framfaravogin mælir með fé- lagslegum framförum hæfni sam- félaga til að uppfylla grunnþarfir ein- staklinga, hvort grunnstoðir velferðar séu í lagi og hvort einstaklingurinn hafi tækifæri til að bæta líf sitt. Ein- ungis er horft til félagslegra og um- hverfislegra þátta og eru engar efna- hagslegar stærðir mældar. Er þetta í fjórða skiptið sem Framfaravogin er gefin út. Ein vinnustofan fjallaði um málefni fólks af erlendum uppruna, en engar markvissar gagnaupplýsingar eru til staðar sem endurspegla stöðu þeirra. Þátttakendur sögðu að meðal annars þyrfti að bæta aðgengi að túlkaþjón- ustu og sálfræðiþjónustu sem og að huga þyrfti að slökum námsárangri barna af erlendum uppruna. Einn þeirra vísa sem notaðir eru til að kanna heilsufar og vellíðan er mælikvarði á andlega heilsu. Sérstak- lega er horft til andlegrar líðan full- orðinna út frá skilgreindum dags- kömmtum þunglyndislyfja á hverja 1.000 íbúa. Samkvæmt könnunni hef- ur notkun slíkra lyfja farið stigvax- andi sl. 5 ár. Leggur SPI til að fólk leiti sér heldur hjálpar en að nota þunglyndislyf. „Hér má auðvitað spyrja sig þeirrar spurningar hvort ekki sé gott að fólk leyti sér hjálpar, finni það fyrir þunglyndi,“ segir í skýrslunni. Styrkja þyrfti faglega forystu Rósbjörg ítrekar að það sé ekki nóg að mæla heldur þurfi að bregðast við stöðunni. Í menntamálum var litið til niður- staðna í samræmdum prófum í ís- lensku og stærðfræði. Þátttakendur í vinnustofunni lögðu meðal annars til að finna þyrfti nýja mælikvarða til að meta stöðu og þróun menntunar, að styrkja þyrfti faglega forystu menntastofnana og skóla í hverju og einu sveitarfélagi og að kanna yrði hvort beita mætti nýjum kennsluað- ferðum, ekki síst vegna reynslu sem öðlaðist í kjölfar faraldurs Covid-19. Þá var einnig skoðuð virkni og þátt- taka ungs fólks, sem ekki stundar nám né vinnu, í samfélaginu og var niðurstaðan sú að hlutfall þessa hóps hafi hækkað hjá mörgum sveitar- félögum eða staðið í stað á síðustu ár- um. Í umhverfismálum var litið til tveggja þátta. Annars vegar til vatns og hreinlætis og hins vegar umhverfisgæða. Skoðuð voru gæði frárennslis og loftgæða og var niður- staðan sú að ekki væru miklar breyt- ingar milli ára en þó væri mikill mun- ur á milli sveitarfélaga. „Hreinleiki frárennslis er mjög mismunandi milli sveitarfélaga en mikilvægt að fylgjast með honum, ekki síst í ljósi aukins áhuga á sjósundi og sjótengdri af- þreyingu á undanförnum árum,“ seg- ir í skýrslunni. Þá telur SPI það farsælt ef settir yrðu upp loftgæðamælar um allt land. „Það væri mikið framfaraskref ef settir yrðu upp loftgæðamælar í hverju þéttbýli víðs vegar um land þannig að hægt sé að fylgjast með loftgæðum og þeirri þróun sem unnið er að, s.s. rafvæðingu bifreiða og í iðn- aði, bættum vegum og breyttu sam- göngumynstri,“ segir í skýrslunni. Notkun þunglyndislyfja aukist mikið - Framfaravogin gefin út í fjórða skiptið - Takmarkaðar upplýsingar um fólk af erlendum uppruna - Skoða þurfi að beita nýjum kennsluaðferðum - Ungt fólk tekur í minna mæli þátt í samfélaginu Rósbjörg Jónsdóttir Morgunblaðið/Ómar Útsýni Mælt er meðal annars með loftgæðamælum í skýrslunni Oddur Þórðarson oddurth@mbl.is Arnar Þór Viðarsson, þjálfari karla- landsliðsins í knattspyrnu, segist ekki getað svarað því hvort Gylfi Þór Sigurðsson og Kolbeinn Sig- þórsson eigi afturkvæmt í liðið. Kol- beini var nýlega vikið úr liðinu með ákvörðun stjórnar KSÍ eft- ir að mál tengt honum komst í hámæli, þar sem hann er sagður hafa beitt Þór- hildi Gyðu Arn- arsdóttur ofbeldi árið 2017. Þá er Gylfi Þór Sigurðsson einnig ekki í landsliðs- hópnum fyrir mikilvægan leik gegn liði Rúmena í kvöld, en hann var handtekinn í júlímánuði í Manchest- er á Englandi, grunaður um brot gegn barni. Stjórnin ákveði framhaldið Þegar mbl.is spurði Arnar á blaðamannafundi eftir hádegi í gær, hvort Gylfi og Kolbeinn ættu aft- urkvæmt í landsliðið, sagði hann að það hefði ekki verið ákvörðun hans að vísa leikmönnunum úr hópnum. Því gæti hann ekki svarað fyrir ákvörðunina, sem hann segir að hafi verið tekin af stjórn KSÍ. Hann segir að þau mál sem tengj- ast Gylfa annars vegar og Kolbeini hins vegar séu viðkvæm og erfið við- fangs og því sé erfitt að svara því á þessari stundu hvort þeir spili aftur með landsliðinu. Arnar segir einnig að úrvinnsla slíkra mála sé á forræði sambandsins en ekki hans sjálfs, þó sé það ósk allra að sú úrvinnsla gangi sem best. Kári Árnason, leikmaður íslenska liðsins, var einnig til svara á fund- inum og mbl.is spurði hann hvernig stemningin væri innan liðsins fyrir komandi leiki, nú þegar gustað hef- ur allhressilega um knattspyrnu- sambandið. Hann segir að leikmenn liðsins séu mjög einbeittir í því verkefni sem fram undan er, leikur við Rúm- ena í kvöld og leikir gegn Norður- Makedóníu og Þýskalandi á næstu dögum í undankeppni fyrir HM í Katar á næsta ári. Kári segir að það eina sem leikmennirnir geti gert sé að einbeita sér að því verkefni og að inna það vel af hendi. Spurður út í fyrirhugaðan gjörn- ing Tólfunnar, stuðningssveitar landsliðsins, sem segist ætla að sitja þögul í stúkunni á Laugardalsvelli fram á 12. mínútu leiksins til stuðn- ings þolendum ofbeldis, segir Kári að sér finnist það „bara flott“. Tólfan styður þolendur Tólfan, stuðningsmannasveit knattspyrnulandsliðanna, stendur með þolendum. Það segir Hilmar Jökull Stefánsson, einn frammá- manna Tólfunnar, að sé alveg á hreinu. Spurður út í gjörninginn í kvöld segir Hilmar: „Hugsunin er í raun að sýna það táknrænt að við í Tólfunni, sem höf- um gríðarlega rödd innan íþróttar- innar, viljum veita þolendum rými til þess að tjá sig og segja sína sögu,“ sagði Hilmar Jökull við mbl.is í gær. Að þögninni lokinni verður takt- urinn sleginn fyrir víkingaklappið fræga og eru áhorfendur beðnir um að taka undir. Morgunblaðið/Eggert KSÍ Þungt var yfir Eiði Smára Guðjohnsen á blaðamannafundium í gær. Óvíst hvort meintir ger- endur eiga afturkvæmt - Ekki þjálfarans að ákveða framtíð Gylfa og Kolbeins Arnar Þór Viðarsson „Á undanförnum árum hef ég átt í erfiðleikum, verið andlega á slæmum stað, mikið meiddur og framtíð ferils míns sem knattspyrnumanns í mik- illi hættu. Ég kom mér í aðstæður þar sem ég hegðaði mér með óviðeig- andi hætti.“ Á þessum orðum hefst yfirlýsing landsliðsmannsins Kolbeins Sigþórs- sonar, sem umboðsmaður hans og lögmaður hafa komið á framfæri við fjölmiðla. Í yfirlýsingunni víkur Kolbeinn að því að Þórhildur Gyða Arnarsdóttir hafi stigið fram og lýst „sinni upp- lifun af atviki á skemmtistaðnum B5 haustið 2017“. Vorið 2018 hafi Kolbeinn síðan hitt Þórhildi Gyðu og vinkonu hennar og hlustað á þeirra upplifun. „Ég kannaðist ekki við að hafa áreitt þær eða beitt ofbeldi og neitaði sök. Hegðun mín var hins vegar ekki til fyrirmyndar og baðst ég afsök- unar á henni. Ég iðraðist og tók á því ábyrgð og var tilbúinn að leita sátta,“ segir Kolbeinn. Rænd sátt sinni vegna KSÍ „Þær höfðu uppi kröfu um afsök- unarbeiðni og greiðslu sem ég féllst á. Auk þess greiddi ég 3 milljónir króna til samtakanna Stígamóta og studdi þannig mikilvæga baráttu samtakanna gegn kynferðisofbeldi. Með þessu var málinu lokið af okk- ar hálfu. KSÍ var upplýst um fram- vindu sáttaviðræðna og lyktir þeirra en afneitun KSÍ leiddi til þess að Þórhildi Gyðu fannst hún rænd sinni sátt. Ég hef skilning á því,“ segir Kolbeinn. Kannaðist ekki við ofbeldi - Kolbeinn sendir frá sér yfirlýsingu Morgunblaðið/Eggert KSÍ Kolbeinn Sigþórsson á æfingu karlalandsliðsins. Mynd úr safni. Fréttir bárust af því í gær að Klara Bjartmarz, fram- kvæmdastjóri KSÍ, væri farin í leyfi. Það staðfesti Ósk- ar Örn Guð- brandsson, starfsmaður samskiptadeildar KSÍ, við mbl.is. Óskar sagði að ekki yrði gef- ið upp hve langt leyfið væri eða hvers eðlis það er, hvort það væri vegna veikinda eða ann- arra ástæðna. Mikill þrýstingur hafði verið á Klöru að stíga til hliðar, líkt og stjórn KSÍ. Klara fer í starfsleyfi BROT INNAN KSÍ Klara Bjartmarz
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.