Morgunblaðið - 02.09.2021, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2021
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Þegar þing kemur saman að loknum
alþingiskosningunum 25. september
næstkomandi kemur það í hlut Þor-
gerðar Katrínar Gunnarsdóttur, for-
manns Viðreisnar, að stýra fyrsta
fundinum.
Er það í samræmi við fyrstu grein
þingskapalaga þar sem segir: „Þeg-
ar Alþingi kemur saman við þing-
setningu [að lokn-
um alþingiskosn-
ingum] skal sá
þingmaður, sem
hefur lengsta
þingsetu að baki,
stjórna [fund-
inum] þangað til
forseti þingsins
er kosinn og
standa fyrir kosn-
ingu hans. Hafi
tveir þingmenn eða fleiri setið jafn-
lengi á þingi skal sá teljast aldurs-
forseti sem eldri er.“
Nokkur tími kann að líða áður en
nýtt þing kemur saman. Síðast var
kosið til Alþingis 28. október 2017 en
nýtt löggjafarþing, 148. þing, kom
fyrst saman 14. desember.
Í þingskapalögunum stendur orð-
ið aldursforseti og er þar verið að
vísa til lengstrar þingsetu en ekki
aldurs þingmanna. Enda mun Þor-
gerður Katrín væntanlega ekki
verða elst þeirra þingmanna sem
hljóta kjör síðar í þessum mánuði.
Hún er fædd 4. október 1965 og
verður því 56 ára í næsta mánuði.
Eins og sést á meðfylgjandi yfir-
liti hefur Steingrímur J. Sigfússon
langlengsta þingsetu núverandi al-
þingismanna. En Steingrímur, sem
er nýorðinn 66 ára, gefur ekki kost á
sér í komandi kosningum.
Yfirlitið leiðir líka í ljós að ekki er
mikill munur á Þorgerði Katrínu og
Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkis-
ráðherra. Miðað við kannanir eru
þau bæði örugg um endurkjör.
Aldursútreikningar fyrir aldurs-
forseta hafa verið prentaðir í hand-
bókum Alþingis frá 1991, en þá var
sú breyting gerð á þingsköpum að
lífaldur réð ekki lengur, heldur
starfsaldur þegar talað var um ald-
ursforseta, þ.e. ekki sá sem elstur
væri heldur sá sem lengst hefði setið
á Alþingi. Þingsetan þarf ekki að
hafa verið samfelld.
Samkvæmt þessu þarf skrifstofa
Alþingis eftir hverjar kosningar að
finna út hver telst aldursforseti og
stýri þar með fyrsta fundinum.
Í handbókum sem gefnar voru út
1991, 1995, 1999, 2003 og 2007 voru
reiknireglurnar einfaldar; allur
þingtími þingmanns var talinn að
viðbættri varaþingmannssetu. Í
handbókum sem gefnar voru út
2009, 2013 og 2016 var reiknireglum
breytt, þ.e. sá tími sem þingmaður
hafði verið í launalausu leyfi (hvort
sem það var stutt eða langt) skerti
þingsetutímann.
„Kom í ljós að útreikningar með
þessu lagi voru orðnir mjög flóknir,
með fæðingarorlofi, breyttum
reglum um innköllun varamanna
o.fl. Hér er því horfið aftur til fyrri
reglu og hefur forsætisnefnd Al-
þingis gert sérstaka samþykkt um
það svo enginn vafi leiki á því hverju
sinni hver telst vera aldursforseti.
Tekið skal fram að enginn vafi hefur
ríkt né deilur orðið á seinni árum um
það hver aldursforseti Alþingis er,“
segir í handbókinni, sem gefin var út
eftir kosningarnar árið 2017.
Í skránni það ár er reiknuð út
þingseta þingmanna í dögum frá
kjördegi til síðasta dags fyrir nýjar
alþingiskosningar og bætt við þeim
dögum sem þingmaður hefur setið á
þingi sem varamaður. Framvegis
verði „þingseta“ skv. 1. mgr. 1. gr.
þingskapa talin hefjast frá og með
kjördegi, eða þeim degi sem þing-
maður tekur fast sæti á Alþingi,
fram til næsta dags á undan kjör-
degi. Hafi þingmaður auk þess tekið
sæti á Alþingi sem varamaður bæt-
ist sá tími við útreikningana.
Steingrímur í 4. sætið
Sem fyrr segir er Steingrímur J.
Sigfússon þingforseti að hætta eftir
að hafa setið á Alþingi frá 23. apríl
1983 til 25. september 2021 sem eru
38 ár 5 mánuðir og 12 dagar. Þar
með er hann kominn í 4. sæti yfir þá
þingmenn sem lengst hafa setið á
Alþingi Íslendinga.
Framar í röðinni eru, samkvæmt
handbók Alþingis:
- Pétur Ottesen 42 ár og tæpir 8
mán. (1916-1959 (júní)).
- Eysteinn Jónsson 40 ár og um 9
mán. (1933-1946, 1947-1974; vþm.
(og síðar ráðherra) 1946-1947).
- Ólafur Thors 39 ár, tæp (9. jan.
1926 til ársloka 1964).
Næst á eftir Steingrími koma:
- Gunnar Thoroddsen 37 ár og um 8
mán. (1934-1937, 1942-1965, 1971-
1983).
- Lúðvík Jósepsson 37 ár og rúmur
mán. (1942 (okt.) - 1979).
- Emil Jónsson 37 ár, rétt tæp
(1934-1971).
- Bernharð Stefánsson 36 ár (1923-
1959 (okt.)).
Þorgerður Katrín aldursforseti
- Sá nýkjörinna þingmanna sem hefur lengsta þingsetu mun stýra fyrsta fundi - Sú breyting gerð á
þingsköpum 1991 að lífaldur réð ekki lengur, heldur starfsaldur þegar talað var um aldursforseta
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Alþingi Faraldur kórónuveiru setti mikinn svip á þingstörfin að þessu sinni.
Pétur Ottesen sat á
Alþingi í tæp 43 ár.
Lengsta þingseta sitjandi þingmanna við slit Alþingis 25. sept. nk.
Steingrímur J. Sigfússon 38 ár,5mán. og 12 dagar
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir 18 ár, 10mán. og 19 dagar
Guðlaugur Þór Þórðarson 18 ár,6mán. og 2 dagar
Birgir Ármannsson 18 ár,4mán. og 20 dagar
Bjarni Benediktsson 18 ár,4mán. og 20 dagar
Jón Gunnarsson 14 ár,4mán. og 18 dagar
Kristján Þór Júlíusson 14 ár,4mán. og 18 dagar
Katrín Jakobsdóttir 14 ár,4mán. og 18 dagar
Lilja Rafney Magnúsdóttir 12 ár,6mán. og 15 dagar
Alþingismaður síðan 1983
Alþingismaður 1999-2013 og síðan 2016
Varaþingm. 1993, 1998 og 2007 og alþingism. síðan 2009
Alþingismaður síðan 2003
Alþingismaður síðan 2003
Alþingismaður síðan 2007
Alþingismaður síðan 2007
Alþingismaður síðan 2007
Varaþingmaður 1997-1998 og alþingism. síðan 2003
1980 1990 2000 2010 2020
Hinn 24. ágúst síðastliðinn tók
Heiða Björg Pálmadóttir sæti
Björns Þórs Jóhannessonar í lands-
kjörstjórn með vísan til 17. gr. laga
um kosningar til Alþingis, þar sem
Björn Þór er frambjóðandi í kom-
andi alþingiskosningum.
Sunna Rós Víðisdóttir hefur tek-
ið sæti frá sama tíma sem áheyrn-
arfulltrúi. Frá þessu er greint í til-
kynningu á heimasíðu
landskjörstjórnar. Auk Heiðu
Bjargar sitja í landskjörstjórn
Kristín Edwald formaður, Páll
Halldórsson, Anna Tryggvadóttir
varaformaður og Ólafía Ingólfs-
dóttir. Ritari landskjörstjórnar er
Laufey Helga Guðmundsdóttir.
Nýr fulltrúi tekur sæti í landskjörstjórn
Í baráttu við COVID-19
býður Donnamaska, grímur
og andlitshlífar sem eru
gæða vara frá DACH og
notuð um allan heim.
Vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Covid gríma,þægilegri ogþéttir vel
Sími 555 3100 www.donna.is
dreifingHeildsölu
C-gríma Pandemic
Respirator andlitsgríma
Síðan 1922 - glæsileg hönnun og sérstaklega
hljóðlátar - alvöru vélar með snertiskjá.
Hafðu samband og fáðu nánari upplýsingar
5
1
6
6
#
Draghálsi 4
110 Reykjavík
sími: 535 1300
verslun@verslun.is
Þvottahús l Hótel l Gistiheimili l SPA
l Hreingerningarþjónusta l Snyrtistofur
l Hjúkrunar- og dvalarheimili l Rannsóknarstofur
l Leikskólar l Clinics l Fjölbýlishús l Hostels l
Skólar lMinni iðnaðarfyrirtæki l Líkamsræktarstöðvar
Þvottavélar
og þurrkarar
fyrir stærri
notendur
2021 ALÞINGISKOSNINGAR