Morgunblaðið - 02.09.2021, Blaðsíða 57

Morgunblaðið - 02.09.2021, Blaðsíða 57
MENNING 57 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2021 S egðu nafn hans „Sælgætissveinn“ fimm sinnum á meðan þú horfir í spegil og hann birtist þér. Frumgerðin kom út árið 1992 og er dálítil költklassík. Hún fylgir Helenu Lyle, meistaranema sem vinnur að rannsókn um flökkusagnir (og er fulltrúi hvítu millistéttarinnar innan frásagnarinnar), inn í út- hverfi Chicago-borgar, nánar tiltekið niður- níddar fátæktarblokkir Cabrini Green. Helen verður heilluð af goðsögninni um sælgætissvein- inn, sem greinir frá illmenni er dreifir kara- mellubréfum með rakvélarblöðum innan í og myrðir fólk með króki í samfélagi svartra í fátæktarhverfum borgarinnar. Frásögnin er greinilega mynduð í gegnum hvíta linsu, en leik- stjóri og handritshöfundurinn var Bretinn Bern- ard Rose, sem braskar með ótta hvítrar milli- stéttar við hverfi jaðarsettra minnihlutahópa innan stórborga. Myndin er þó meðvituð um sjónarhorn sitt að vissu marki, og forréttinda- stöðu aðalpersónu sinnar, og málar jákvæða mynd af fólkinu sem lifir í fátæktarhverfinu. Tilurðarsaga sælgætissveinsins er á þá leið að undir lok nítjándu aldar réð ungur svartur list- málari sig til að mála portrett af ungri hvítri auðvaldsstúlku og tókust með þeim ástir sem gátu af sér afkvæmi. Fyrir vikið var listmálarinn limlestur og drepinn og réttlát reiði hans lét hann ganga aftur sem óvættur er hefnir sín fyrir ódæðið. Kynþáttahyggja og saga hennar í Bandaríkjunum er því undir, og þrátt fyrir ögn holóttan söguþráð og goðsagnasmíð, er táknræn og pólitísk vídd sögunnar slík að gallarnir verða að mestu aukaatriði. Nýr Sælgætissveinn ber marga þessa sömu eiginleika en nú er hrylling- urinn kominn í hendur svartra listamanna sem nýta sér hann til að fjalla um bandarískt sam- félag með augljósum pólitískum hætti. Söguhetjurnar eru ungt svart par, Anthony og Briana, sem starfa bæði innan myndlistar- geirans – hann sem listmálari og hún sýningar- stjóri. Þau eru nýflutt í glæsilega íbúð í nýtísku- legu háhýsi, sem stendur þar sem fátæktar- blokkin stóð áður. Miðstéttarvæðing þessa hluta Chicago-borgar er yfirstaðin, þróun sem á sér stað í ótal borgum um víða veröld um þessar mundir. Yngri bróðir Briönu er skoplegur spé- fugl og hefur gaman af draugasögum og segir þeim söguna af Helenu Lyle og raunum hennar í Cabrini Green. Þetta vekur athygli Anthonys sem er í örvæntingarfullri leit að nýju viðfangs- efni, enda tvö ár liðin frá síðustu einkasýningu hans. Hann fer á stúfana og rannsakar þjóðsög- una um sveininn og afdrif félagsvísindakonunnar þremur áratugum áður. Þetta leiðir hann til að skapa ný verk og eitt þeirra verður hluti af sam- sýningu sem Briana stendur fyrir ásamt uppa- legum kollega þeirra. Verk Anthonys heitir „Segðu nafn mitt“ og inniheldur spegil á vegg gallerísins og eru listunnendur manaðir að nefna sælgætissveininn á nafn fimm sinnum. Þessi gjörningur Anthonys kallar að sjálfsögðu ófreskjuna úr skjóli sínu og setur blóðbað af stað. Myndlistarveröld myndarinnar einkennist af yfirborðs- og tækifærismennsku þar sem allt er falt – og fólk og orðspor gengur kaupum og söl- um. Háðið beinist ekki síður að listamanninum sjálfum og hvernig hann nýtir sér umhverfi sitt í sköpun (til að bæta eigin stöðu). Þegar fjallað er um fyrsta morð myndarinnar í fréttatímanum er minnst á nafn Anthonys og verksins hans og það sem honum dettur í hug er: „Þau sögðu nafnið mitt.“ Viðbrögðin ganga fram af Briönu og bróð- ur hennar en sýna fram á óöryggi og hégóma persónunnar, sem einhverjir listfuglar ættu að kannast við. Persónurnar og sögusviðið kallast skemmtilega á við aðstandendur myndarinnar sem eru einnig ungir, fjáðir, svartir listamenn á uppleið sem fjalla um menningarlega sögu svartra í listsköpun sinni. Morð sælgætissveinsins eru af hrottalegri gerðinni, þó að myndavélinni sé einatt beint frá ódæðisverkunum (eða eru í mikilli víðmynd) sem eru unnin á hvítum fórnarlömbum. Einnig ber á líkamshryllingi, en Anthony er stunginn af bý- flugu og úr vex mein sem smátt og smátt tekur yfir líkama hans. Býflugur eru hluti af ofhlaðinni goðsögn sælgætissveinsins, en böðlarnir notuðu hunangsflugurnar við morðið á listmálaranum á sínum tíma. Þetta er hrópandi dæmi um að of miklu er troðið inn. Merkilegt er að ofgnóttin virkar samt, og í tilfelli Anthonys virkar stungan sem myndlíking fyrir það hvernig áföll erfast milli kynslóða og taka yfir tilveruna, þó stoð- irnar standi röklega höllum fæti. Sumar fléttur myndarinnar eru býsna hæpnar, þá sér í lagi sú sem snertir eiganda þvottahúss, en tilgangurinn helgar þó meðalið. Úrlausnin er slík að ekki er hægt annað en að hrífast með. Í snilldarlegu lokaatriði blikka ljós lögreglubíla á andliti Briönu sem kallar á sælgætissvein sér til hjálp- ar. Pólítískt óp í myrkrið. Leikstjórinn Nia DaCosta er fyrsta svarta konan úr starfsstétt sinni sem skilar kvikmynd á toppinn í Bandaríkjunum. Hennar starf er afar vel unnið – kvikmyndataka, klipping, sviðsmynd og hljóðrás búa til glæsilega heildarmynd og fær hún góða frammistöðu leikaraliðs. Handritið skrifar hún með Jordan Peele (Farðu út!, 2017), sem gegnir einnig hlutverki framleiðanda, og Win Rosenfeld og er það vissulega gallað en býr þó yfir miklum krafti. Niðurstaðan er fyrirtaks samfélagsleg hrollvekja, sem aðdáendur grein- arinnar og bandarískrar poppmenningar ættu ekki að láta framhjá sér fara. Skorin í ræmur Fyrirtak Candyman er „fyrirtaks samfélagsleg hrollvekja“, að mati gagnrýnanda. Hér má sjá Yahya Abdul-Mateen II í hlutverki myndlistarmannsins Anthonys sem leysir morðingjann úr læðingi. Laugarásbíó og Sambíóin Sælgætissveinn/Candyman bbbbn Leikstjórn: Nia DaCosta. Handrit: Nia DaCosta, Jordan Peele, Win Rosenfeld. Klipping: Catrin Hedström. Kvikmyndataka: John Guleserian. Aðalleikarar: Yahya Abdul-Mateen II, Teyonah Parris, Nathan Stewart- Jarrett, Colman Domingo. Bandaríkin, 2021. 91 mín. GUNNAR RAGNARSSON KVIKMYNDIR Listasafn Reykjanesbæjar opnar tvær nýj- ar sýningar í dag, fimmtudag, kl. 18. Annars vegar er það sýningin Form- heimur Bjargar Þorsteinsdóttur og hins vegar Fjölfeldi - hlut- feldi - margfeldi. Á þeirri fyrr- nefndu má sjá akrýlmálverk, krítarteikningar og grafíkverk frá um fimmtíu ára ferli Bjargar sem lést fyrir tveimur árum. Aðdrag- andi sýningarinnar er gjöf frá erf- ingjum Bjargar, 105 verk sem safnið fékk afhent í maí í fyrra. Sýningarstjóri er Helga Arnbjörg Pálsdóttir. Sýningin Fjölfeldi - hlutfeldi - margfeldi er haldin í samvinnu við verkefnið MULTIS sem sérhæfir sig í kynningu, útgáfu og sölu á fjölfeldum íslenskra samtímalista- manna með það að markmiði að gera list aðgengilega almenningi og bjóða upp á myndlist eftir lista- fólk í fremstu röð íslenskrar sam- tímalistar. Á sýningunni er sjónum beint að verkum 29 samtíma- listamanna sem hafa til lengri eða skemmri tíma unnið að gerð fjöl- felda, segir í tilkynningu. Tvær sýningar í Reykjanesbæ Björg Þorsteinsdóttir Sýning á 50 bókverkum eftir Sigurborgu Stefánsdóttur hefur verið opn- uð í Smiðs- búðinni á Geirs- götu 5a í Reykjavík en auk bókverk- anna sýnir Sig- urborg þrjú málverk. Bókverkin eru af ýms- um toga, smáverk sem hvert og eitt inniheldur stuttar frásagnir, ólíkar í formi og efni, sögur sem við könnumst við, eða ekki, auk stuttra myndljóða, eins og segir í tilkynningu. Sýnir 50 bókverk og þrjú málverk Sigurborg Stefánsdóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.