Morgunblaðið - 02.09.2021, Side 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2021
Valborg Ólafsdóttir í Holti undir Eyja-
fjöllum var á dögunum valin sveitar-
listamaður Rangárþings eystra 2021.
Í umsögn menningarnefndar sveitar-
félagsins segir að Valborg Ólafsdóttir
hljóti útnefninguna fyrir frumlega
tónlistar- og textagerð, tónlistar-
sköpun og lifandi flutning. Valborg er
einnig tónlistarkennari við Tónlistar-
skóla Rangæinga og tekur því þátt í
að miðla sinni reynslu og þekkingu til
yngri kynslóðarinnar.
Valborg er fædd og uppalin í Kópa-
vogi en flutti undir Eyjafjöllin árið
2012. Ásamt því að vera tónlistar-
kona er Valborg einnig bóndi í Holti
og býr þar með eiginmanni sínum,
Orra Guðmundssyni, og tveimur
börnum þeirra, Karólínu og Kormáki.
Valborg og fjölskylda hafa lengi verið
með mörg járn í eldinum en þau hjón
hafa verið með ferðaþjónustu í nokk-
ur ár og Valborg tekur á stundum lag-
ið fyrir gesti sína heima í stofu. Val-
borg hefur í áraraðir verið dugleg að
semja og spila sína eigin tónlist og
komið fram víða, bæði heima í héraði
sem og á stærri vettvangi eins og
Airwaves, sem haldin er í Reykjavík á
haustdögum. sbs@mbl.is
Valin sveitarlistamaður Rangárþings eystra 2021
Frumleg tónlistarsköpun með
lifandi flutningi í stofunni heima
Listakona Valborg Ólafsdóttir hér með viðurkenningarskjal. Harpa Mjöll Kjart-
ansdóttir, formaður menningarnefndar Rangárþing eystra, til hægri.
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
F
ramfarir læknisvísindanna
hafa á starfsárum félags-
ins verið miklar og bata-
horfur barna sem greinast
með krabbamein allt aðrar en áður
var,“ segir Gréta Ingþórsdóttir,
framkvæmdastjóri Styrktarfélags
krabbameinssjúkra barna. Félagið
er 30 ára um þessar mundir og verð-
ur tímamótanna minnst með ýmsu
móti á næstunni.
„Sjúkrahúsdvöl barna með
krabbamein svo mánuðum skiptir er
líka úr sögunni. Núna fer stór hluti
meðferðar fram á göngudeild og í
heimahjúkrun og krakkarnir geta þá
– eins og heilsa þeirra leyfir – sótt
skóla, tómstundir og verið með vin-
um sínum. Það dregur úr félagslegri
einangrun sem á árum áður var al-
gengur fylgifiskur meðferða barna.“
300 fjölskyldur í félaginu
Árlega greinast 12-14 börn á Ís-
landi með krabbamein og eru 25-30
börn í meðferð á hverjum tíma. Í dag
lætur nærri að lífslíkur þeirra sem
greinast séu um 80%. Fyrir ekki svo
ýkja mörgum árum var dánartíðnin
hins vegar þessi sama hlutfallstala.
Alltaf er það þó svo að krabbameinið
hefur mikil áhrif og langvarandi á líf
og líðan þess sem veikist.
Í starfi SKB hefur því vaxandi
þungi verið settur í þjónustu við þau
sem hafa veikst en náð bata og glíma
við síðbúnar afleiðingar af meini og
meðferð. Í félaginu eru um 300 fjöl-
skyldur og njóta þær í mörgum til-
fellum stuðnings félagsins löngu eft-
ir að meðferð lýkur.
„Krabbameinslyf og geislar eru
mjög öflugir. Jafnhliða því að vinna
á meinum geta þessar aðferðir líka
unnið skaða, sem getur bæði verið
líkamlegur og andlegur. Einbeiting-
arskortur, kvíði, heyrnarskerðing og
frjósemisvandi er meðal þess sem
okkar fólk glíma við. Stjórn SKB
ákvað fyrir nokkrum árum að setja
fjármagn í eftirfylgd og rannsókn á
síðbúnum afleiðingum í samstarfi við
Barnaspítalann og nú er eftirlit á líð-
an þeirra sem lokið hafa meðferð og
náð hafa 18 ára aldri í mjög góðum
farvegi, auk þess sem þar er safnað
mikilvægum upplýsingum sem
gagnast munu til framtíðar,“ segir
Gréta.
Öll börn sem greinast með
krabbamein á Íslandi fá meðferð hjá
krabbameinsteymi Barnaspítala
Hringsins. Það starfar eftir og tekur
þátt í að þróa samnorrænar með-
ferðaráætlanir. „Í teyminu er frá-
bært fagfólk sem fylgist vel með nýj-
ungum í meðferðum. Núna á allra
síðustu mánuðum og misserum er
farið að nota líftæknilyf og beita
meðferðum sem þróaðar eru í sam-
ræmi við þarfir hvers sjúklings.
Þetta lofar góðu eftir áralanga
stöðnun og bið eftir nýjum lyfjum
fyrir börn.“
Veika barnið fær alla athygli
Þegar barn greinist með
krabbamein hefur slíkt alltaf mikil
áhrif, þá ekki síst á foreldra viðkom-
andi og systkini. SKB hvetur skjól-
stæðinga sína til að huga vel að
heilsu sinni, bæði andlegri og lík-
amlegri, og styrkir félagsmenn til
heilsuræktar. Stærstur hluti þess
fjár sem félagið setur í stuðning við
félagsmenn fer í að greiða fyrir sál-
fræðiviðtöl. Auk þess er boðið upp á
jafningastuðning fyrir mömmur,
pabba og börnin, rétt eins og þeim
hæfir. Í húsakynnum félagsins í
Smáranum í Kópavogi er einnig boð-
ið upp á listmeðferð fyrir börn sem
Harpa Halldórsdóttir, starfsmaður
félagsins, leiðir.
„Veikindi barns gjörbreyta öllu
lífi fjölskyldna,“ segir Gréta. „Veika
barnið fær alla athygli og foreldrum
getur orðið um megn að sinna dag-
legu lífi. Þegar vinir og vandamenn
bjóða fram aðstoð þá er hjálp við
hversdagsleg verkefni, eins og að
finna til mat eða setja í þvottavélina,
það sem oftast kemur sér best.“
Gera sér á glaðan dag
Arfur eftir hjónin Sigurbjörgu
Sighvatsdóttur og Óskar Th. Þor-
kelsson sem SKB fékk á fyrstu
starfsárunum renndi stoðum undir
starfið sem og fjársöfnun sem efnt
var til í sjónvarpi. Einnig á félagið
velunnurum og góðum bakhjörlum
víða að mæta, sem gera mögulegt að
halda úti öflugu starfi. Í seinni tíð
hefur mjög munað um framlag
Team Rynkeby en undir þeirra
merkjum er hjólað árlega frá Kaup-
mannahöfn til Parísar. Um slíkt
munar því SKB nýtur engra beinna
opinberra styrkja og fjármagnar
starfið alfarið með sjálfsafla- og
styrktarfé.
„Við erum þakklát samfélaginu
fyrir stuðninginn og velvildina sem
við njótum,“ segir Gréta sem greinir
frá því að um helgina ætli fé-
lagsmenn saman í Fjölskyldu- og
húsdýragarðinn að gera sér glaðan
dag, enda er það mikilvægt fyrir
alla. Líka þá sem glíma við erf-
iðleika.
Veikindi barnanna gjörbreyta öllu
Tímamót. Styrktarfélag
krabbameinssjúkra
barna 30 ára. Batahorf-
ur æ meiri og vísindum
fleygir fram. 12-14 börn
greinast árlega. Þakklát
samfélaginu fyrir stuðn-
ing og velvildina.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Stuðningur Gréta Ingþórsdóttir, til vinstri, er framkvæmdastjóri Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna og
Harpa Halldórsdóttir starfsmaður þar og býður skjólstæðingum félagsins meðal annars upp á listmeðferð.
Sælgæti Kátir krakkar á sumarhátíð þar sem flogið var yfir með nammi.