Morgunblaðið - 02.09.2021, Qupperneq 26
26 FRÉTTIR
Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2021
MITSUBISHI - L200 INSTYLE – RN. 153711
Nýskráður 3/2020, ekinn 17 þ.km., dísel, hvítur,
sjálfskiptur, túrbína, dráttarkrókur, driflæsingar,
upphækkaður, kastarar, palllok, bakkmyndavél.
Verð 7.490.000 kr.
PEUGEOT - 3008 – RN. 340427
Nýskráður 5/2018, ekinn 70 þ.km., bensín,
brúnn, sjálfskiptur, hiti í sætum, litað gler, álfelgur,
dráttarkrókur, bakkmyndavél, akgreinavari, USB.
Verð 3.490.000 kr.
OKKUR VANTAR ALLAR
GERÐIR BÍLA Á SKRÁ!Sími 567 4949 | Bíldshöfða 5, 110 Rvk. | bilahollin.is
VW - GOLF GTE PLUG IN HYBRID COMFORT
RN. 331250. Nýskráður 3/2020, ekinn 11 þ.km.,
bensín/rafmagn, hvítur, sjálfskipting, hraðastillir,
360° nálgunarvarar, akreinavari, bluetooth, HDMI.
Verð 4.590.000 kr.
VW - PASSAT LIMO GTE 1.4 TSI PLUG-IN-HYBRID
RN. 340287. Nýskr. 5/2018, ekinn 35 þ.km., bensín/
rafmagn, dökkgrár, sjálfsk., álfelgur, stöðugleikakerfi,
bakkmyndavél, fjarlægðarskynjarar, bluetooth.
Verð 3.490.000 kr.
rétta hverfið í það á þeim tíma,“
segir Sólrún frá og eru Breið-
holtsbúar nútímans beðnir um að
móðgast ekki mjög mikið yfir þess-
um orðum, margt hefur breyst á
tæpum fjórum áratugum.
Sólrún starfaði á þessum tíma
sem atvinnudansari hjá Dansskóla
Heiðars Ástvaldssonar og keppti
grimmt í svokölluðum freestyle-
dansi í Tónabæ heitnum. „Nú,
þekkirðu þá ekki Önnu Sigurð-
ardóttur?“ freistast blaðamaður til
að spyrja og vísar þar í bekkj-
arsystur sína úr Garðaskóla í
Garðabæ og þekkta freestyle-
danskonu á öldinni sem leið. „Jú, að
sjálfsögðu veit ég hver hún er,“
svarar Sólrún og sannar þar enn hið
fornkveðna um hve heimurinn sem
við byggjum er lítill.
Kjaftforir karlar í skúr
Úr Breiðholtinu fluttist Sólrún til
Sigur Sólrún nælir sér í einn fjöl-
margra bikara ferils síns á Nor-
egsmeistaramótinu árið 2011.
Þessi dama neglir þig næst
- Rammíslensk vaxtarræktardrottning rekur naglastofu í Tønsberg í Noregi - Fékk nóg af Breið-
holti og flutti vestur - Stundaði innbrot með systur sinni - „Skítsama hverjum ég keppti á móti“
Morgunblaðið/Atli Steinn Guðmundsson
Á stofunni Sólrún á naglastofu sinni við Storgaten í miðbæ Tønsberg. Hún þarf ekki að fara um langan veg í vinnuna þar sem hún býr á hæðinni fyrir ofan.
Sólrún kveðst kunna ákaflega vel við sig í Noregi þar sem hún hefur búið síðan á haustdögum 2008, fjögurra barna móðir, vaxtarræktarkona og amma.
Morgunblaðið/Atli Steinn Guðmundsson
Ferillinn Sólrún á veglegt safn bikara frá ferli sínum á sviðinu sem hún stillti upp fyrir myndatöku í stofu sinni. Á
afrekaskránni er auk margs annars annað sæti á HM í bodyfitness en Sólrún ánetjaðist stálinu ung.
VIÐTAL
Atli Steinn Guðmundsson
atlisteinn@mbl.is
Ekki er örgrannt um að lesendur,
sem komnir eru af því allra léttasta,
minnist akureyrsku stuttmyndanna
Skotnir í skónum og Negli þig næst,
er gerðu víðreist á tíunda áratug
aldarinnar sem leið. Titill þeirrar
síðarnefndu kemur óneitanlega upp
í hugann þegar vaxtarræktarkonan
og naglasérfræðingurinn Sólrún
Margrét Stefánsdóttir í hinum fagra
miðaldabæ Tønsberg í Noregi segir
Morgunblaðinu af allskrautlegri ævi
sinni, en snemma á henni fékk Sól-
rún nóg af Breiðholti og flutti vestur
á firði, sem var þó aðeins byrjunin.
Sólrún er ættuð úr Miðfirði í
Húnavatnssýslu í föðurættina,
þangað sem ekki ómerkari menn en
Guðmundur Bergþórsson skáld frá
Stöpum í Vatnsnesi rekja ættir sín-
ar, höfundur Olgeirs rímna danska,
lengstu rímna íslenskra, sem varð-
veist hafa í eiginhandarriti. Frauka
þessi er dóttir Stefáns Þorvarðar-
sonar heitins, en afi hennar var Þor-
varður Júlíusson, sauðfjárbóndi á
Hítarnesi, sem um 1970 var talinn
eiga einna mest á fjalli slíkra bænda
íslenskra og átti auk þess hlut í
hinni gjöfulu laxelfi Miðfjarðará.
Móðir Sólrúnar er Viktoría Lára
Steindórsdóttir frá Ragnheiðar-
stöðum í Flóa, en fjölskyldan var
búsett í Fellahverfinu í Breiðholti
þegar Sólrún kom í heiminn á því
herrans ári 1972, yngst fjögurra
systkina.
Notuð í öllum innbrotum
„Mér þótti Breiðholtið reyndar
ótrúlega spennandi, en á þeim tíma
sem ég var að alast upp í Fellahverf-
inu var svo mikill klíkuskapur þarna
og afbrot að maður vogaði sér ekki
út úr húsi fyrr en maður var búinn
að kíkja út og athuga hverjir væru
þar,“ segir Sólrún og getur ekki var-
ist hlátri yfir ljúfsárum æskuminn-
ingum sínum.
„Viltu fá eina glæpasögu úr
Breiðholtinu?“ spyr þessi vöðva-
stælta kona íbyggin, sem virðist
ekki kalla allt ömmu sína. Í ljós
kemur enda að glæpasagan sú segir
af þeim systrum. „Ég var svo lítil og
mjó þarna upp úr 1980 að ég var
notuð í öllum innbrotum með systur
minni. Þá var mér troðið inn um alla
glugga til að komast inn og opna dyr
ef ég stóð þá ekki á verði til að fylgj-
ast með hvort löggan væri að
koma,“ rifjar Sólrún upp og hlær
öðru sinni, eins og marbendillinn í
þjóðsögunni.
„Svo ákvað ég bara að fara, þegar
ég eltist langaði mig að stofna fjöl-
skyldu, en fannst Breiðholtið ekki