Morgunblaðið - 02.09.2021, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 02.09.2021, Qupperneq 32
32 FRÉTTIR Erlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. SEPTEMBER 2021 Lyfjafyrirtækið Moderna sagði að það hefði fundið ryðfríar stálagnir í skömmtunum af bóluefni sínu gegn kór- ónuveirunni, sem japönsk stjórn- völd tóku úr um- ferð í síðustu viku. Sagðist fyrirtækið ekki eiga von á að skammtarnir hefðu ógnað ör- yggi sjúklinga eða að mengunin hefði dregið úr virkni bóluefnisins, en stjórnvöld í Japan rannsaka nú andlát tveggja manna, sem fengu mengað bóluefni. Er mengunin rakin til fram- leiðslugalla í verksmiðju á Spáni. JAPAN Stálagnir fundust í Moderna-glösunum Moderna Bólu- efnið innihélt stál. Joe Biden Bandaríkja- forseti fordæmdi í gær nýja og stranga löggjöf um fóstureyð- ingar sem Texas- ríki leiddi í lög fyrr í vikunni. Sagði Biden lög- gjöfina brjóta gegn stjórn- arskránni og dómi Hæstaréttar frá 1973 í máli Roe gegn Wade, sem tryggði rétt kvenna til fóstureyð- inga. Samkvæmt nýju löggjöfinni eru allar fóstureyðingar bannaðar eftir sjöttu viku meðgöngu, en konur vita oft ekki af óléttu á þeim tíma. Þá heimilar hún einkamál ein- staklinga gegn fólki sem grunað er um að hafa látið eyða fóstri eða að- stoðað við slíkt. Sagði Biden að ríkisstjórn hans væri staðráðin í að standa vörð um rétt kvenna til fóstureyðinga, en Hæstiréttur Bandaríkjanna á enn eftir að taka afstöðu til þess hvort löggjöfin í Texas standist stjórn- arskrá. BANDARÍKIN Biden fordæmir löggjöf Texas-ríkis Joe Biden Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Fögnuður talíbana vegna sigurs þeirra í Afganistanstríðinu hélt áfram í gær, með skrúðgöngu í borg- inni Kandahar. Mátti þar sjá sumt af þeim stríðstækjum og -tólum sem þeir náðu að taka herfangi í lokasókn sinni að Kabúl, en þar á meðal var ein Blackhawk-þyrla, sem Banda- ríkjaher notar meðal annars í verk- efnum sérsveita sinna. Sveimaði hún um með hvítum fána talíbana, en nokkur umræða hefur skapast í Bandaríkjunum um það hvaða vígtól hafi fallið í hendur þeirra. Enn er óvíst hvernig starfsemi al- þjóðaflugvallarins í Kabúl verður háttað, en teymi sérfræðinga frá Katar varð fyrst til þess að lenda á vellinum eftir brottför Bandaríkja- hers fyrr í vikunni. Mun teymið leiða viðræður við ta- líbana um hvernig eigi að koma vell- inum aftur í flughæft ástand, en Sameinuðu þjóðirnar hafa varað við að hörmungar séu í nánd, takist ekki að koma matvælum og lyfjum til Afganistans í gegnum flugvöllinn á allra næstu vikum. Skjótist ekki undan skyldum David Sassoli, forseti Evrópu- þingsins, sagði í gær að Evrópusam- bandið gæti ekki skotist undan skyldum sínum gagnvart hælisleit- endum, sér í lagi þegar von væri á auknum fjölda flóttamanna frá Afg- anistan. Ummæli Sassolis féllu degi eftir að innanríkisráðherrar aðildarríkj- anna ræddu málefni Afganistans og samþykktu að reyna að fá nágranna- ríki landsins, einkum Pakistan og Tadjíkistan til þess að taka við megninu af þeim sem vildu flýja Afg- anistan. Sagði Sassoli að hann hefði orðið fyrir vonbrigðum með fund innanrík- isráðherranna, og að Evrópusam- bandið yrði að axla ábyrgð. Varnar- mála- og utanríkisráðherrar sambandsins munu funda í dag og á morgun í Slóveníu, og er gert ráð fyrir að Afganistan verði þar efst á baugi. Sorg og reiði í Pentagon Lloyd Austin, varnarmálaráð- herra Bandaríkjanna, og Mark Mil- ley, yfirmaður herráðsins, héldu í gær blaðamannafund, hinn fyrsta eftir lok stríðsins. Sögðust þeir finna til bæði sorgar og reiði vegna þess hvernig átökunum hefði lyktað, og hét Austin því að herafli Bandaríkj- anna myndi draga lærdóm af því sem úrskeiðis fór, án þess að hann vildi kalla það ósigur Bandaríkjanna. Milley sagði að mögulega myndi Bandaríkjaher vinna með talíbönum í framtíðinni til þess að stemma stigu við Ríki íslams-Khorasan-samtökun- um, sem frömdu hryðjuverkið sem felldi 13 bandaríska hermenn í síð- ustu viku. Talíbanar sýna herfangið - Sérfræðiteymi frá Katar aðstoðar við að koma flugvellinum í gang - ESB geti ekki vikið sér frá ábyrgð - „Reiði og sorg“ ríkir meðal yfirmanna Bandaríkjahers AFP Sigurför Blackhawk-þyrla á valdi talíbana flýgur yfir Kandahar. Íbúar í Louisiana, Mississippi og Alabama glíma nú enn við eftirköst fellibylsins Ídu, og þurfti þessi íbúi í bænum Jean Lafitte í Louisiana að vaða vatnselginn meðan hann beið eftir aðstoð. Enn er rafmagnslaust víða um Suðurríki Bandaríkjanna eftir felli- bylinn, og var staðfest í gær að tveir starfsmenn raforkufyrirtækis hefðu látist á þriðjudaginn þegar þeir voru að gera við raflínur í Ala- bama-ríki. Hafa þá alls sex manns farist af völdum bylsins. Stjórnvöld í ríkjunum reyna nú að koma íbúum sínum til aðstoðar með öllum ráðum, en brýnast er að koma matvælum, vatni og raforku aftur á. Er áætlað að um 750.000 heimili séu enn rafmagnslaus í Louisiana. Enn glímt við eftirköst- in af Ídu AFP ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS VEISTU UM GÓÐAN RAFVIRKJA? Fuse tread 10.995 kr. St. 27-37,5 withMemory Foam SMÁRALIND - KRINGLAN - SKÓR.IS ÞÆGILEGIR SKÓR Í SKÓLANN! KRINGLAN – SMÁRALIND – DUKA.IS TAKTU HAUSTIÐ HEIM Í HÚS
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.